Fréttir - Eyjafréttir - 28.09.2000, Síða 3
Fimmtudagur 28. september 2000
Fréttir
3
Little Cook
núðlur
verö áður 29
afsláttur
,á kassaj
1944 1
Kjöt í karrý
verö áður 41
Kindabjúgu
afsláttur
,á kassa /
1944 V
Hakkbollur í sósu
verð áður 328
Byrja á Hárhúsinu í næstu viku.
Pantanasími 481 2500
Þorsteina Grétarsdóttir
hárgreiðslumeistari
I_____________________________________________________________I
Hátíðarmessa, Diddú og
Risaterta á laugardegi
Hátíðarmessa verður í Landakirkju laugar-
daginn 30. september kl. 13.30. í messunni
syngur Sigrún Hjálmtýsdóttir einsöng og með
Hátíðarkór Kjalarnesprófastsdæmis. Um leið er
verið að Ijúka hátíðahöldum á vegum Kjalarnes-
prófastsdæmis vegna 1000 ára kristni á íslandi
sem staðið hafa yfir síðan vorið 1999, víðs vegar
í umdæminu.
Prófastur, dr. Gunnar Kristjánsson á Reyni-
völlum í Kjós, mun þjóna fyrir altari ásamt, sr.
Báru Friðriksdóttur og sr. Kristjáni Björnssyni
sem einnig prédikar.
Söngstjóri er Guðmundur H. Guðjónsson, en
honum til aðtoðar verða organistarnir Einar Örn
Einarsson, frá Keflavíkurkirkju, og Úlrik Ólafs-
son, frá Víðistaðakirkju.
Eftir messu verður öllum kirkjugestum boðið
að snæða risatertu í Safnaðarheimilinu sem
Vilberg kökuhús og Magnúsarbakarí gefa í tilefni
kristnihátíðarárs í Eyjum. Ættu þá allir að vera
tilbúnir fyrir opnunarhátíð á Skanssvæðinu og
Landlyst en dagskrá hefst þar kl. 16.00 þennan
sama laugardag.
Ráðstefna haldin íTýsheimilinu laugardaginn 14. október
Ráðstefna ungs fólks um framtíð Vestmannaeyja
Hverjar eru væntingar og kröfur ungs fólks til heimabyggðarinnar?
Þú færð svarið á Eyjar 2010.
Markmiðin með ráðstefnunni:
Skapa vettvang fyrir fólk á aldrinum 20 til 35 ára til að koma saman og ræða stöðu og
framtíð Vestmannaeyja.
Finna ástæður þess að fleiri flytja frá Vestmannaeyjum en til þeirra.
Fá fram vonir, væntingar og kröfur ungs fólks til framtíðarinnar í Vestmannaeyjum.
Fá fram hvað ungt fólk telur sig geta gert til að skapa það umhverfi sem það vill búa í.
Viltu hafa áhrif? Viltu vera sýnilegur? Viltu sýna ábyrgð?
Láttu þá sjá þig á ráðstefnunni og taktu þátt í mótun framtíðarinnar.
www.eyjar201 O.eyjar.is
Göngugreining og mæling fyrir inn-
legg, sársmíðaða skó, spelkur o. fl.
Lýður B. Skarphéðinsson sérfræðingur frá Stoðtækni -
Gísli Ferdinandsson ehf. verður staddur á Heilbrigðis-
stofnuninni í Vestmannaeyjum laugardaginn 7. október nk.
Upplýsingar og tímapantanir
hjá Skóvinnustofu Stefáns í s. 481 2396
Stoðtækni - Gísli Ferdinandsson
Aðalfundur
ÍBV ÍÞRÓTTAFÉLAGS
Aðalfundur ÍBV íþróttafélags verður haldinn miðvikudaginn
11. október kl. 20.00 í Þórsheimilinu við Hamarsveg.
Venjuleg aðalfundarstörf
Stjórnin