Fréttir - Eyjafréttir - 28.09.2000, Síða 4
4
Fréttir
Fimmtudagur 28. septembers 2000
Bókvitiá
'askana
Skrítni dagurinn
Ég þakka Bám kærlega fyrir
áskorunina. Það verður að viður-
kennast að lítill tími hefur gefist til
lestrar nú í haust ef frá em taldar
skólabækur, skólanámskráin og
annað sem tengist starfinu. Þó finnst
mér lestur vera eitt af því skemmti-
legra sem ég get hugsað mér. Að
hreiðra um sig með gott lesefni og
verða vitni að því þegar „orðin fá
vængi“ - eins og einhver orðaði það
svo skemmtilega, það er toppurinn.
Fyrst tilgangurinn með þessu pári
er að segja frá góðum bókum sem
viðkomandi hefur lesið koma fljótt
nokkrar upp í hugann. Má þar nefna
Tímaþjófinn e. Steinunni Sigurðar-
dóttur, sem mér fannst með albrigð-
um skemmtileg, og bók sem gefin var
út hér á landi árið 1963 og heitir
Blómin í ánni, e. Edita Morris. Segir
sú bók örlagasögu tveggja japanskra
systra sem lifðu af kjamorku-
sprenginguna í Hírosima 6. ágúst
1945. Aðrar og nýlega lesnar em
„Aður en þú sofnar" eftir Linn
Ullmann. Var Linn þessi gestur á
bókmenntahátíð hér á landi í haust og
kom þá m.a. fram með mjög
skemmtilegan samanburð á norræn-
um kvensöguhetjum og þeim
enskumælandi - okkur dætmm
norðursins mjög í hag. Önnur bók
sem skildi mikið eftir sig var bók
Sindra Freyssonar, Augun í bænum.
Segir þar frá ungum lækni sem strax
að loknu námi snýr aftur í litla
sjávarplássið þar sem hann ólst upp.
Hulda Karen Róbertsdóttir
er bókaunnandi vikunnar
Á bókarkápu segir að þetta sé
„...þroskasaga, ástarsaga og saga um
glæp og refsingu...“. Sjálfri fannst
mér stíll þessa unga rithöfundar slíkur
að hrein unun var að lesa bókina og
kemur ekki á óvart að hann hafí hlotið
Bókmenntaverðlaun Halldórs Lax-
ness árið 1998.
Þessa dagana em nokkrar bækur á
náttborðinu. Spennusagan Unholy
Trinity, e. breska rithöfundinn Paul
Adam. Fjallar hún um breskan
fréttaritara á Italíu sem flækist inn í
vef þar sem við sögu koma morð á
presti, gömul falin skjöl frá
fasistatímabilinu, nýfasistar og Vati-
kanið. Allt mjög spennandi ! Önnur
bók, er handbók um ólíkar kennslu-
aðferðir sem nefnist Litróf kennslu-
aðferða og er eftir Ingvar Sigurgeirs-
son. Síðast en ekki síst er ég að
endurnýja kynnni mín af Halldóri
Laxness og er núna að lesa Bam
náttúmnnar sem ég las fyrst á heitum
sumardögum í Svíþjóð þegar ég var
I4ára.
Annars er ein bók sem ég hlakka
mikið til að lesa þegar hún kemur út.
Ekki er kominn titíll á hana ennþá en
upphafið lofar góðu:
SKRÍTNl DAGURINN. Það var
helgi. Æ, æ sagði Hulda Karen
(mamma) og dæsti, hún hafði hellt
niður í FJÓRÐA skiptið á klukku-
tíma, og hún sem hellir aldrei niður (
Mjög OVENJULEGT). ÞóraKristín
(systir) átti að fara að hvíla sig og hún
gerði það með glöðu geði. (EINNIG
MJÖG ÓVENJULEGT). Þetta átti
eftir að verða MJÖG SKRÍTINN
dagur. Það vom FIMM FÓT-
BOLTALEIKIR í sjónvarpinu
þennan dag og Bergur Páll (pabbi)
horfði ekki á einn einasta leik ( AL-
VEG ÓTRÚLEGT)...............
Höf. Áslaug Dís Bergsdóttir.
Sem arftaka minn í bókaþáttinn
skora ég á Hönnu Bjömsdóttur.
Við erum keppnisfólk
Kvennahandboltinn er hafinn. Lið ÍBV,
sem varð íslandsmeistari á liðnum vetri,
á erfiðan róður fyrir höndum vegna
mikilla leikmannaskipta. Undanfarin ár
hefur starfið kringum kvenna-
handboltann að verulegu leyti hvílt á
herðum þriggja fjölskyldna í Eyjum og
Eyjamaður vikunnar er úr einni þeirra.
Fulltnafn? Þorvarður Vigfús Þorvalds-
son.
Fæðingardagur og ár? 20. nóvember
1956.
Fæðingarstaður? Vestmannaeyjar.
Fjölskylduhagir? Kvæntur Guðrúnu
Ragnarsdóttur. Við eigum þrjú börn.
Menntun og starf? Húsasmíðameistari
og dúklagningameistari. Starfa aðallega
við það síðarnefnda.
Laun? Ágæt.
Bifreið? Izusu Rodeo '93.
Helsti galli? Spurðu Guðrúnu.
Helsti kostur? Spurðu hana líka að
þessu.
Uppáhaidsmatur? Fiskur.
Versti matur? Ég man ekki eftir neinu sem mér
finnst vont.
Uppáhaldsdrykkur? Vatnið.
Uppáhaldstónlist? Elton John er í uppáhaldi.
Hvað er það skemmtilegasta sem þú gerir? Vera
í fríi með fjölskyldunni.
Hvað er það leiðinlegasta sem þú gerir? Að hafa
ekkert fyrirstafni.
Hvað myndirðu gera ef þú ynnir milljón í
happdrætti? Bjóða fjölskyldunni í ferð tilÁstralíu.
Uppáhaldsstjómmálamaður? Enginn.
Uppáhaldsíþróttamaður? Börnin mín eru í uppá-
haldi.
Ertu meðlimur íeinhverjum félagsskap? Já, ÍBV
og Oddfellow.
Uppáhaldssjónvarpsefni? íþróttir og spennu-
myndir.
Uppáhaldsbók? Ofvitinn eftir Þórberg.
Hvað meturþú mest í fari annarra? Að menn séu
þeirsjálfir.
Hvað fer mest ítaugarnar á þér í fari annarra? Hið
gagnstæða, sýndarmennska.
Fallegasti staður sem þú hefur komið á? Ætli
Eyjarnar séu ekki fallegastar.
Hve lengi ert þú búinn að vera viðloðandi
kvennaboltann? Líklega ein tólf, fimmtán ár, ég man
það ekki nákvæmlega.
Eru miklar breytingar á liðinu í vetur? Geysilega
miklar, sjö leikmennfamir af ellefu. En ístaðinn koma
ungir og efnilegir leikmenn, ásamt þremur út-
lendingum.
Er stefnt að því að halda titlinum? Að sjálfsögðu.
Það verður erfiður róður en við erum keppnisfólk og
stefnum ótrauð að því.
Eitthvað að lokum? Vonast eftir góðum stuðningi
áhorfenda í vetur og þakka fyrirliðinn vetur.
Nýfaeddir ?cr
Vestmannaeyingar
Þann 28. maí eignuðust Guðbjörg Hermannsdóttir og Bela von
Hoffmann dóttur. Hún vó 12 merkur og var 48 cm að lengd. Hún hefur
verið skírð Emelía Margrét. Fjölskyldan býr í Gautaborg.
Þann 6. september eignuðust Goremykina Kristina og Jósef Róbertsson
dóttur. Hún vó 16 Vi mörk og var 55 cm að lengd. Hefur fengið heitið
Tanya Rós. Ljósmóðir var Guðný Bjamadóttir.
Á döfírmt 4*
29. sept. Opnun handverkssýningor safnaðorsal Landakirkju Id. 19.00
30. sept. Uppskervhátíð Skólagarðanna í Löngulág kl. 10.00. Foreldrar mega koma með!
30. sept. Héraðslundur Kjalamessprófastsdæmis í SafnaðarheimiliLandakirkjukl. 09.00- 12:00
30. sept. 30. sept. Lundaballið í umsjá Elliðaeyinga
og 1. okt. Námskeið í list- og sköpunargáfu á vegum KÍ haldið á Hallveigarstöðum
30. sept. Vígsla söguminjasvæðis í Vestmannaeyjum við Skansinn. K\. 15.30. Allir á svæðið.
30. sept. Bændaglíman í golfi. Síðasta slórmót ársins.
02. okt. Heilsuefíing í Leikskólum. Fyridestur í Bamaskólanum kl. 20.00
03. okt. Skóvinnustofa Stefáns heldur upp á 25 ára afmælið. Allir í veislu á stofuna.
02.-04. okt. Seinni hluti náms í Ökuskóla Vestmannaeyja
04. okt. Fyrsta kyrrðarstund vetrarins við orgelleik í Landakirkju. Kl. 12.00
04. okt. Félagsfundur Verslunarmannafélags Vestmannaeyja, kl. 20.00
05. okt. Foreldramorgnamir í Landakirkju byrjaðir, kl. 10.00
05. okt. Undirbúningsnámskeið fyrir veiðimenn í Rannsóknasetrinu kl. 18.00
08. okt. Tónlistarmessa með Tónsmíðafélaginu í Safnaðarheimilinu kl. 20.00
11. okt. Aðalfundur ÍBV-íþróttafélags kl. 20.00
12. okt. Bjórhátíð á Mánabar, stendur í þrjá daga!
14. okt. Eyjar 2010.
14. okt. Grillveosla ÍBV-íþróttafélags við Þórsh. Id. 20.00
15. okt. Poppmessa í Landakirkju kl. 20.00