Fréttir - Eyjafréttir - 28.09.2000, Page 17
Fimmtudagur28. september 2000
Fréttir
17
Hlynur Stefánsson hefur verið
fyrirliði ÍBV frá 1996, en þá var
árangur IBV svipaður og í ár.
Hlynur hefur jafnframt verið einn
sterkasti leikmaður ÍBV undan-
farin ár en nú er farið að síga á
seinni hluta ferilsins og íhugar
fyrirliðinn nú að hætta. Síðasti
leikur hans var síst til að auka
líkurnar á því að hann haldi áfram
enda spilaði IBV einn sinn allra
lélegasta leik í sumar, í sjálfum
bikarúrslitaleiknum.
Hlynur segist fyrst og fremst vera
svekktur yfír að hafa brugðist
stuðningsmönnum liðsins og liðinu
sjálfu. „Eg er mjög vonsvikinn með
þennan leik. Við náðum okkur aldrei á
strik og þetta var vægast sagt mjög
slakur leikur af okkar hálfu, við
náðum aldrei takti í sóknarleiknum og
það er mjög sárt að ná ekki betri leik
þegar svona mikið er undir. Það er
líka mjög sárt að sjá svo marga
stuðningsmenn liðsins standa á bak
við okkur og við náum ekki að standa
undir væntingum. Maður hefur
auðvitað sínar skýringar á þessu,
taktikin var kannski ekki rétt enda
sáum við það eftir þijátíu mínútna leik
að þetta var ekki að ganga, þá hefðum
við átt að bregðast við. Skagamenn
voru greinilega búnir að kortleggja
okkur mjög vel og settu m.a. menn til
höfuðs Goran og Momir, en það var
eins og menn gátu reiknað með. Það
hefði verið hægt bregðast við þessu
með því t.d. að færa Goran framar á
völlinn, eða út á væng . Maður sá eftir
hálftímann að þetta gekk ekki og svo
þegar brugðist var við því í seinni
hálfleik, þá var það einfaldlega orðið
of seint. Ég hefði viljað sjá Tómas
Inga koma fyrr inn á því hann er
sterkur á boltann og hefði gefið liðinu
meiri tíma til að koma framar á
völlinn og hefði getað komið
mönnum inn í leikinn með góðum
sendingum.Við lögðum upp með það
að við værum með betra lið, sem ég
tel vera rétt og maður vonaði að
styrkleikamunur liðanna myndi ráða
úrslitum í leiknum. En það var
einfaldlega meiri barátta í þeim og
þeir vildu greinilega meira. Mörkin
sem við fengum á okkur voru svipuð,
bæði mjög ódýr enda tapast boltinn á
slæmum stöðum og okkur er refsað
fyrir það. En eins og ég segi þá á
maður mjög erfitt með að sætta sig við
þetta.“
Leikur liðsins hefttr legið niðttrá við
undir lok tímabilsins, þrjú töp í röð.
Atti ekki að bregðast við þessum
vandrœðum ?
„Ég veit það býr miklu meira í liðinu
en við höfum sýnt í síðustu leikjum.
Við spiluðum ekki vel í síðustu
leikjunum, sérstaklega sóknarlega séð
og auðvitað hefðum við átt að
bregðast einhvem veginn við því. Við
hefðum átt í það minnsta að hafa
eitthvað upp í erminni í staðinn fyrir
að láta þetta renna svona úr
höndunum á okkur aðgerðalaust.
Yfirgnæfcmdi
líkur á að
Hlynur hætti
- nema komi til róttækra
breytinga hjá ÍBV
Kannski hefði ég sem fýrirliði liðsins
átt að láta í mér heyra en ég er lflca
leikmaður og er því að reyna að
standa mig í því hlutverki, enda hefði
maður haldið að þeir sem standa við
hliðarlínuna hefðu átt að sjá þetta.
Þetta var ekkert að gerast bara á
sunnudaginn, heldur í mörgum leikj-
um í sumar.“
Var undirbúningur liðsins þá ekki
nógu góður ?
„Ég set kannski spumingarmerki við
það að við vomm með vissa leikmenn
í meiðslum, Kjartan, Baldur og
Tommi vom búnir að vera meiddir og
Palli Guðmunds búinn að vera veikur
en samt sem áður vomm við að æfa á
fullum krafti. Æfingamar vom
kannski full langar og erfiðar fannst
mér og sumir hefðu kannski ekki mátt
við þvf eins og ástandið var. En
undirbúningurinn sem slíkur var
„Ég hefði viljað að við hefðum staðið okkur betur, stuðningsmennimir stóðu sig
frábærlega en við ekki. Ég hefði viljað sýna þeim betri leik en því miður gekk það
ekki. Eg vil líka þakka fyrir persónulegann stuðning í gegnum árin, ég hef alltaf verið
vel studdur utan vallar sem innan og er mjög þakklátur fyrir það.“
að klára dæmið en það er eitthvað í
sambandi við t.d. samvinnu leik-
manna og stjómar sem verður að
skoða. Er eitthvað sem við leikmenn
getum gert betur til að ná árangri? Er
eitthvað sem stjómin verður að gera
betur? Þetta em spumingar sem við
verðum að skoða.“
Var kannski tekin ofmikil áhœtta með
ráðningu Kristins Jónssonar, sem var
óreyndur sem aðalþjálfari meistara-
flokks í efstu deild ?
„Nei það held ég ekki, enda var hann
búinn að vera aðstoðarmaður Bjama
Jó í tvö ár og þjálfari annars flokks
þannig að menn vissu alveg hvað
hann stóð fyrir. Ég held að framboð
af góðum þjálfurum sé bara ekki nógu
mikið. Þetta eru alltaf sömu andlitin
sem maður sér í efstu deild og búið að
reka flesta einu sinni eða oftar. Menn
teljast kannski ekki alvömþjálfarar
nema búið sé að reka þá minnst einu
sinni. Það er spuming hvort íslenska
knattspyman þurfi ekki bara að fara
leita út fyrir landsteinana að
þjálfumm, kannski til Skandinavíu, til
þess að fá nýtt blóð í þetta og nýjar
hugmyndir. En Kristinn stóð sig
ágætlega og var ekkert öðmvísi en við
bjuggumst við.“
En spurning vikunnar er sú hvort
Hlynur Stefánsson sé að hœtta.
„Eins og staðan er í dag þá em
yfirgnæfandi líkur á því að ég sé að
hætta. En ég ætla að bíða aðeins með
að gefa endanlegt svar, ég ætla að taka
mér gott frí og jafna mig á þessu, sjá
síðan hvaða stefnu ÍBV ætlar að taka í
vissum málum, eins og með þjálfara
og leikmenn. Það þurfa hins vegar að
koma til stórkostlegar breytingar til
þess að ég nenni að standa í þessu. Ég
er þreyttur á þessu, ég er þreyttur á því
að gefa mig allan í þetta meðan
einstakir leikmenn, sem koma nálægt
þessu, gera það ekki og em ekki að
gefa neitt af sér og komast upp með
það. Og á meðan svo er þá nenni ég
ekki að standa í þessu, þá vil ég frekar
eyða tímanum í eitthvað annað.“
En viltu koma einhverju að í lokin ?
„Ég vil auðvitað þakka stuðnings-
mönnum liðsins fyrir frábæran
stuðning í sumar, ekki síst núna um
helgina. Ég hefði viljað að við hefðum
staðið okkur betur, stuðningsmenn-
imir stóðu sig frábærlega en við ekki.
Ég hefði viljað sýna þeim betri leik en
því miður gekk það ekki. Ég vil líka
þakka fyrir persónulegan stuðning í
gegnum árin, ég hef alltaf verið vel
studdur utan vallar sem innan og er
mjög þakklátur fyrir það.“
Júltus Ingason.
Ég á erfitt með að sætta mig við að við
létum Skagamenn, sem em með
miðlungs lið, stjóma leiknum."
IBV hejurá undanfömum árum verið
að spila illa á útivelli og virtist liðið
vera spila í sama gœðaflokki í
úrslitaleiknum eins og í svo mörgum
útileikjum liðsins. Hefur ekkert verið
reynt að bregðast við þessu ?
„Ég held að þetta útileikjadrauga-
spjall sé að stórum hluta bara í
hausnum á okkur sjálfum. Við unnum
Fylki á útivelli en þeir vom þá á toppi
deildarinnar, við unnum Keflavík í
Keflavík og sigmðum Leiftur tvívegis
en þar áttum við bara ekkert meira
skilið en það sem við fengum. Við
náum hins vegar ekki að nýta okkur
yfirburði okkar í mörgum leikjum og
sitjum því uppi með fjórða sæti
deildarinnar. Það munar ekki mörgum
stigum í lokin að við séum á toppnum
en það vom þessi stig sem við
töpuðum íjafnteflisleikjunum. Þannig
að þetta útileikjaspjall er kannski bara
eitthvað bull. Auðvitað er erfiðara að
spila á útivelli, andstæðingunum líður
að sjálfsögðu betur á sínum heimavelli
alveg eins og okkur líður best á
Hásteinsvellinum."
Hlynur: „Það er líka mjög sárt að sjá svo marga stuðningsmenn liðsins standa á bak
við okkur og við náum ekki að standa undir væntingum.
ágætur, við vomm á Loftleiðum
þannig að menn vom ekkert að þreyta
sig á rútukeyrslu eins og hefúr
stundum komið fyrir. Mér fannst
mórallinn góður, menn virkuðu
afslappaðir og fullir tilhlökkunar fyrir
leiknum. Maður er bara svo undrandi
á þessu, við vorum búnir að hafa svo
mikið fyrir að komast í þennan leik,
lentum í vandræðum með Fylki, en
unnum þá þannig að ég hélt að þessi
bikarstemmning sem var í liðinu þá
myndi fylgja liðinu í úrslitaleikinn
sjálfan. Maður spyr sjálfan sig
hvernig sé hægt að klikka svona. spila
heilan leik og gera ekkert sóknarlega.
fyrir norðan, í deild og bikar. Þama
em níu stig í deildinni en ég held að
Islandsmeistaratitillinn hafi einfald-
lega tapast á þessum jafnteflum gegn
slakari liðum í deildinni. Mér fannst
við vera að spila mjög vel í upphafi
móts en fengum ekki út úr þeim
leikjum sem við stjórnuðum og réðum
algjörlega ferðinni. Ég get tekið leiki
eins og Leiftursleikinn hér heima og
Fylki heima. Framleikurinn í bænum,
þar sem við ráðum ferðinni allan
leikinn en fáum bara eitt stig. Við
áttum náttúmlega mjög slaka útileiki
t.d. á móti Stjömunni og Breiðabliki
Telur þú að sumarið í ár sé það
slakasta síðan þú gekkst aftur til liðs
viðÍBV 1996?
„Þetta er sami árangur, silfur í bikar
og íjórða sætið. Þetta er líka svipað og
í fyrra, þegar kom að úrslitaleikjum þá
höfðum við ekki það sem þurfti og
eitthvað vantaði sem var í lagi 1997
og 1998. Nú verða menn innan
klúbbsins að setjast niður og athuga
hvað hefur farið úrskeiðis. Út af
hveiju emm við að klikka þegarjnest
ríður á að við stöndum okkur. Ég er
alveg sannfærður um að við vomm
með nógu góðan mannskap í sumar til