Fréttir - Eyjafréttir

Tölublað

Fréttir - Eyjafréttir - 16.11.2000, Blaðsíða 2

Fréttir - Eyjafréttir - 16.11.2000, Blaðsíða 2
2 Fréttir Fimmtudagur 16. nóvember 2000 Siyðja blómaskála við Hilmisgötu Fyrir skömnru var greint frá því í Fréttum að þeir Andrés Sig- mundsson, bakari og Eiríkur Sæ- land, í Eyjablómum, hefðu sótt um lóð við Hilmisgötu. Þ;u hyggjast þeir reisa gróðurskála og kal'filiús. Á fundi bæjarstjómar, á mið- vikudag í síðustu viku, lögðu fulltrúar minnihlutans fram bókun þess efnis að þeir fögnuðu hug- mynd umsækjenda og legðu áherslu á að þeim verði úthlutað umræddri lóð. „Umræddur blómaskáli yrði án efa lil að hleypa nýju lífi í miðbæinn," segii' í bókun þeirra. Dæmdur í sjö mánaða fangelsi Rúmlega tvítugur karlmaður var á föstudaginn dæmdur í 7 mánaða fangelsi fyrir líkamsárás á fósturföður sinn í desember á síðasta ári. Atvikið átti sér stað á heimili þeirra í Dverghamrinum í Eyjum. Maðurinn stakk fósturföður sinn með hnífi í öxl og háls. Héraðs- dómur Suðurlands dæmdi hann til 7 mánaða fangelsisvistar og til greiðslu sakarkostnaðar. Héraðsdómurinn taldi að ósann- að væri að maðurinn hefði vís- vitandi ætlað að ráða fósturföður sínum bana. Honum hljóti hins vegar að hafa verið ljóst, að alvar- legir áverkar gætu hlotist af þegar hnífierbeitt. Vill úr landnytjanefnd Á fundi bæjarráðs á þriðjudag lá fyrir bréf frá Magneu Bergvins- dóttur, frá 8. nóv., þar sem hún óskar eftir lausn úr landnytjanefnd og sem varaskoðunarmaður. Þetta erindi var samþykkt og verður tilnefnt í ofangreindar nefndir á næsta fundi bæjarstjórnar. Handalögmál í dagbók lögreglu voru alls 185 færslur eftir síðustu viku. Er það heldur færra en var í vikunni á undan og því ekki annað sjá en enn sé rólegt hvað löggæsluna varðar. Ein líkamsárás var kærð í vikunni og átti sér stað á öldurhúsi að- faranótt föstudags. Þar varð ósætti milli tveggja gesta staðarins og endaði með handalögmálum. Hlaut annar þeirra áverka eftir þau samskipti og hefur kært verknaðinn. Árekstur og á hvolf Tvö umferðaróhöpp urðu í vikunni. Hið fyrra á Birkihlíð þar sem léttbifhjól og bifreið rákust saman. Ekki urðu slys á fólki en nokkurt tjón varð á ökutækjum. Seinna óhappið átti sér stað á Fellavegi en þar missti ökumaður stjórn á bifreið sinni með þcim afieiðingum að hún lenti á hvolfi. Ökumaðurinn var fluttur á sjúkrahús en slapp með mar og skrámur. Bifreiðin er töluvert skemmd. Vetrargolf Þó svo að golfvertíðinni sé lokið cr rétt að benda á Vetrarkeppnina í golfi sem l'ram fer á hverjunt laugardagsmorgni þegar veður leyfir. Mótsgjald er 500 kr. og er kaffi og meðlæti innifalið í því. Fjárhagsstaðan rædd í bæjarstjórn: Harðar deilur Á bæ jarstjórnarfundi í síðustu viku urðu talsverð orðaskipti milli meiri- hluta og minnihluta vegna milli- uppgjörs og skuldastöðu bæjarins. I bókun frá minnihlutanum segir að samkvæmt milliuppgjöri bæjarsjóðs, sem miðast við 31. ágúst sl., komi fram að ýmsir liðir muni standast, miðað við ijárhagsáætlun, en aðrir fari langt fram úr áætlun og sé það áhyggjuefni. Á sama tíma rjúki skuld- ir bæjarsjóðs upp úr öllu valdi, aukist um 520 milljónir frá áramótum til ágústloka og sýni að fjármálastjórn sjálfstæðismanna hafi gersamlega mistekist. Höfuðástæða versnandi efnahags bæjarfélagsins sé röng stefna sjálfstæðismanna í fjármálum og aðgerðaleysi í atvinnumálum. Þá segir í bókuninni að þessi stefna sýni ótrúlega skammsýni enda láti afleið- ingamar ekki á sér standa. Því sé nauðsynlegra en nokkru sinni fyrr að snúa vöm í sókn og freista þess að koma íjármálum bæjarfélagsins í lag og efla atvinnulífið í stað þess að aðhafast ekkert eins og sjálfstæðis- menn hafi gert. Bæjarfulltrúar sjálfstæðismanna lögðu fram bókun þar sem segir að í endurskoðaðri ijárhagsáætlun komi fram að jafnvægi sé milli breytinga á gjalda- og tekjuliðum í rekstri. Þá liggi fyrir samhljóða samþykkt bæjar- stjómar um byggingu á nýjum, tvöföldum íþróttasal, kaup á tveimur kennslustofum við Bamaskólann og framkvæmdum við bókasafn skólans, ásamt búnaðarkaupum og ýmsum samþykktum í bæjarráði og nefndum bæjarins. Samt sem áður sé lántaka níu milljónum króna lægri en sam- þykktir ársins og sé það ánægjulegt. Þá segir í bókuninni að á næsta ári verði haldið áfram með byggingu íþróttasalarins og hugsanlega bmgðist við með fjölgun stofa í Hamarsskóla. Síðar verði tekin ákvörðun um framtíðarbyggingu grunnskólanna þegar reynsla verði komin á notkun nýju kennslustofanna og aðrar breyt- ingar í skólamálum. Lántöku- og stimpilgjaldakostnaður vegna Kaup- þingsláns sé allur færður á árinu. Áð því loknu sé framkvæmdastaða mjög sterk og ekki víst að fara þurfi í miklar framkvæmdir til viðbótar. „Þjónustu- stig í Eyjum verður eitt það hæsta sem boðið er upp á á landsbyggðinni og af því emm við bæjarfulltrúar Sjálf- stæðisflokksins mjög stoltir," segir í lok þessarar bókunar. Þessu svaraði minnihlutinn, að loknu umbeðnu fundarhléi, með enn einni bókun þar sem segir að bókun meiri- hlutans beri með sé að bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokks geri sér ekki grein fyrir alvarlegri stöðu íjármála bæjarins, á sama tíma og umræða fari fram í bæjarstjóm um þessa alvarlegu stöðu. „Samþykktir okkar um auknar lántökur hafa allar verið í trausti þess að breytt verði um stefnu í fjárhags- og atvinnumálum í Vestmannaeyjum, enda er það forsenda þess að rétta megi við alvarlega stöðu bæjar- félagsins," segir í þessari lokabókun minnihlutans. Megi klukkan vernda Fyrir skömmu barst formanni sóknarnefndar Landakirkju, Jó- hanni Friðfinnssyni, bréf frá íbúum bæjarins Lom í Noregi en þeir gáfu kirkjuklukkuna í Stafkirkjuna á Skansinum og aibcntu gjöfina þann 30. júlí í sumar. Við birtum hér bréfið, lítið eitt stytt. Agætu Islendingar. Fyrst af öllu viljum við þakka þá hlýju sem við fundurn fyrir á Islandi, bæði þá hlýju sem við fundum frá íslenskri jörð og einnig þá hlýju hjartans sem við fundum hjá ykkur íslendingum hvar sem við komum. Okkur fannst freistandi að fara að dæmi Ingólfs Arnarsonar, fyrir rúmum 1100 ámm, hann fórekki aftur heim. Hvort sú kirkja, sem hinn fyrsti Ólafur í röð norskra konunga sendi yfir hafið til íslands, var búin kirkju- klukku, vitum við ekki með vissu. Þó hefur klukkan fylgt kristinni kirkju frá upphafi hennar þannig að þeir Gissur og Hjalti gætu hafa haft klukku með til Vestmannaeyja. Þegar þessi klukka kallar til tíða í Vestmannaeyjum í dag og í framtíðinni, vonum við Lom-búar að hljómurinn beri vott um sterk tengsl milli bræðraþjóða. Von okkar og trú er að þau tengsl eigi eftir að styrkjast í fullvissu um sameiginlegan menn- ingararf okkar. Frummynd þeirrar kirkju sem vígð var í júlí, stafkirkjan frá Haltdalen, stóð þar í nær 600 ár. Sú kirkja hefur séð norrænar bræðraþjóðir í stríði. Þessi eftirlíking hennar á Islandi á að vera tákn unt frið og vináttu á Norðurlöndum. Við Norðmenn eigum það mest Snorra Sturlusyni að þakka að saga okkar skuli hafa varðveist. Því erum við Lom-búar þakklátir fyrir að hafa fengið að heimsækja Reykholt og sjá gröf Snorra. Við þekkjum áhuga ykkar Islendinga á að nota söguna sem verkfæri til að mynda framtíðina. Að hringja kirkjuklukkunt hefur um aldir verið örugg leið til að særa burt illar vættir og tröll. I þúsund ára gam- alli norskri þjóðsögu segir af því þegar Ólafur konungur helgi vildi láta reisa kirkju en var illa séð af tröllum sem bjuggu í fjallinu ofan við þann stað sem kirkjan skyldi rísa. Þegar kom að því að vígja kirkjuna, á hvítasunnu, ákváðu tröllin að urða kirkjuna með grjóti. En þá hringdi klukka Ólafs hins helga, stöðvaði grjótskriðuna og unt leið steinmnnu tröllin. Von okkar er sú að klukkan í Stafkirkjunni megi einnig vemda kirkjuna fyrir ágangi þeirra afla sem vilja eyða henni. Til hamingju með kirkjuna og klukkuna. Kveðjurfrá Listafélaginu í Lom. Erik Holö. Nemendur Framhaldsskólans tölvuvæðasí Búið er að ganga frá samningi milli Framhaldsskólans, Nýherja og Islandsbanka, vegna kaupa nemenda Framhaldsskólans á svonefndum fistölvum. Á laugardaginn var, um leið og Tölvun flutti í nýtt húsnæði, voru samningar undirritaðir og fyrstu 20 tölvurnar afhentar nemendum. Alls hafa um 40 nemendur Iýst yfir áhuga sínum á þessum tölvukaupum og enn eru nemendur að bætast við á þann lista en um 30 þeirra hafa þegar staðfest kaup á tölvum. Ólafur Hreinn Sigurjónsson, skólameistari, segir að á næstu dögum verði byrjað að koma upp örbylgjuneti í Framhaldsskólanum sem gerir notendum kleift að tengjast netinu þráðlaust en það er gífurlegur kostur og í raun frumsenda þess að tölvurnar geti nýst nemendum að fullu í sínu námi. Frá undirskrift samningsins, Óðinn Steinsson frá íslandsbanka, Ólafur skólameistari, Davíð Guðmundsson framkvæmdastjóri Tölvunar og Þórarinn Kópsson frá Nýherja. Útgefandi: Eyjaprent ehf. Vestmannaeyjum. Ritstjóri: Ómar Garðarsson. Blaðamenn: Benedikt Gestsson & Sigurgeir Jónsson. íþróttir: Júlíus Ingason. Ábyrgðarmenn: Ómar Garðarsson & Gísli Valtýsson. Prentvinna: Eyjaprent ehf. Vestmannaeyjum. Aðsetur ritstjórnar: Strandvegi47 II. hæð. Sími: 481-3310. Myndriti: 481- 1293. Netfang/rafpóstur: frettir@eyjar.is. Veffang: http//www. eyjaf retti r. is FRÉTTIR koma út alla fimmtudaga. Blaðið er selt í áskrift og einnig í lausasölu í Turninum, Kletti, Veitingaskálnum Friðarhöfn, Tvistinum, Toppnum, Kránni, Vöruval, Herjólfi, Flughafnarversluninni, Tanganum, Söluskálanum Friðarhöfn og i Jolla í Hafnarfirði. FRÉTTIR eru prentaðar í 2000 eintökum. FRÉTTIR eru aðilar að Samtökum bæjar- og héraðsfréttablaða. Eftirprentun, hljóðritun, notkun Ijósmynda og annað er óheimilt nema heimilda sé getið. 1 FRETTIR

x

Fréttir - Eyjafréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.