Fréttir - Eyjafréttir

Tölublað

Fréttir - Eyjafréttir - 16.11.2000, Blaðsíða 9

Fréttir - Eyjafréttir - 16.11.2000, Blaðsíða 9
Fimmtudagur 16. nóvember 2000 Fréttir 9 Árlegur göngudagur fjölskyldunnar var sl. laugardag. Alls tóku milli 30 og 40 manns þátt í göngunni og létu ekki á sig fá frost og stífan vind en veður var bjart. Gangan hófst á Skanssvæðinu þar sem Olafur Týr Guðjónsson, kennari, rakti sögu þeirra minja sem er að finna á safnasvæðinu við Skansinn en þar eru m.a. Landlyst og stafkirkjan. Þaðan var gengið sem leið lá upp að Safnahúsi þar sem veitingar biðu göngufólksins. Frá handknattleiksráði kvenna: Bestu stelpur í heimi? Leikur okkar gegn einu sterkasta liði heims, Buxtehude frá Þýskalandi, var frábær reynsla fyrir okkur. Buxtehude sýndi handboltatakta eins og þeir gerast bestir í heiminum í dag. Okkar stelpur sáu aldrei til sólar í þessum leik og ekki furða þar sem um allt annan styrkleika á liðum er að ræða. Samt sem áður var hér um að ræða mikilvæga reynslu fyrir okkar stelpur að fá að spila við eitt besta liðs heims. Það er ekki oft sem slíkt tækifæri býðst á ævinni. Einnig gátu áhorfendur orðið vitni að handbolta eins og hann gerist bestur í dag. Þrátt fyrir slæmt tap gegn Buxtehude megum við vera ánægð að hafa fengið þetta tækifæri til að spila gegn einu besta liði heims. Þessir evrópuleikir voru dýrmæt reynsla fyrir liðið og ekki síður skemmtileg lífsreynsla. Það er einnig frábært að Vest- mannaeyingar skuli hafa fengið tækifæri til að sjá þetta frábæra lið frá Þýskalandi og vonandi höfðu áhorf- endur mikla ánægju af. Við vorum að vonast eftir fleirri áhorfendum en við þökkum þeim kærlega íyrir er komu á leikinn. Einnig viljum við þakka öllu því fólki er lagði hönd á plóginn með vinnu og íjárframlögum til að gera þessa Evrópuleiki mögulega. Stuðn- ingsmenn og fyrirtæki okkar eiga þakkir skildar. Nú loks er allur hópurinn kominn saman, nú síðast komu Anita And- reassen ffá Noregi er lék með okkur á síðasta ári og spilaði frábærlega fyrir okkur þá. Þá hefur einnig gengið til liðs við okkur júgóslavnesk stúlka er heitir Tamara Mandzic en hún lék annars í Þýskalandi í 4 ár og varð evrópumeistari fyrir 2 árum. Tamara er frábær leikmaður sem á eftir að styrkja lið okkar mikið. Við lofum Vestmannaeyingum góðum kvennahandbolta í vetur og vonumst eftir sama stuðningi og á síðasta ári frá öllu okkar stuðn- ingsfólki, bæði einstaklingum sem og fyrirtækjum. Handknattleiksdeild kvenna ÍBV KYNNING A föstudaginn verður kynning á haust- og vetrarlínunni í förðun frá OO^olx/íiE. li liGo 10% kynningarafsláttur Verslunin JfWOB&R Miðstræti 14 Vestmannaeyjum Ársfundur Ársfundur Þróunarfélags Vestmannaeyja verður haldinn miðvikudaginn 22. nóvember kl. 20.00 í húsnæði Háskóla Islands í Vestmannaeyjum. Allir velkomnir. Stjórnin. Nýtt merki Héraðsskjalasafnsins: Logi Jes hlutskarpastur í tílefni af 20 ára afmæli Héraðssk jalasafns Vest- mannaeyja, fyrr á þessu ári, var haldin hugmyndasamkeppni um merki fyrir safnið. Ákveðið var að tiliögunum skyldi skiiað undir dulnefni, og að nafn, heimilisfang og símanúmer höfundar skyldi fylgja með í lokuðu umslagi. Verðlaun fyrir endanlega útfærslu merkisins voru ákveðin 50.000 kr. Alls bárust 28 tillögur frá fimm aðilum í keppnina. Sérstök dómnefnd, sem skipuð er héraðsskjalaverði, menningar- málafulltrúa, menn- ingarmálanefnd og forstöðumanni Safnahúss, hefur nú samþykkt að velja tillögu sem merkt var dulnefninu „Friðrik“ sem framtíðarmerki fyrir Héraðsskjalasafn Vestmannaeyja. Höfundur tillögunnar reyndist vera Logi Jes Kristjánsson, Brekkuseli 30 í Reykjavík. Dómnefndin taldi þessa tillögu vera mjög vel ígrundaða og Héraðsskjalasafn vestmannaeyja ÞANNIG lítur merkið út sem Logi Jes hannaði. fagmannlega unna og að afraksturinn sé einfalt og stflhreint merki sem auðvelt sé að vinna með í allri prentvinnslu í framtíðinni. Dómnefndin vill hér með þakka öllum þátttakendum í hugmyndasamkeppninni fyrir allar skemmtilegu tillögurnar sem komu virkilega á óvart og voru margar hverjar stórsnjallar. FORELDRAR Loga Jes, Ágústa Friðriksdóttir og Kristján Egilsson taka við verðlaunum úr hendi Jónu Guðmundsdóttur, forstöðumanns Héraðsskjalasafnsins.

x

Fréttir - Eyjafréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.