Fréttir - Eyjafréttir

Tölublað

Fréttir - Eyjafréttir - 16.11.2000, Blaðsíða 6

Fréttir - Eyjafréttir - 16.11.2000, Blaðsíða 6
6 Fréttir Fimmtudagur 16. nóvember2000 Bára Friðriksdóttir skrifar um tónleika Tónsmíðafélagsins: Tónaflóð í Vélasalnum Það var eftirvænting í gamla úhaldahúsinu síðastliðið laugar- dagskvöld þegar Tónsmíðafélag Vestmannaeyja hélt tónleika. Salurinn var orðinn að kaftihúsi með sviði þar sem trommurnar voru afgirtar með plastbúri. I einu horninu lúrði Citroenbifreið skólastjóra Tónlistarskólans eins og tónvörður og salurinn að fyllast. Fyrir mig, sem Vestmannaeying, var það mjög spennandi að fá að hlýða á Eyjagrúppu og satt að segja komu sum andlitin á óvart, hvað þá að lang- flest laganna og textamir væru frumsamið efni eftir Eyjamenn. Brasstríóið 3/5 hitaði upp með nokkmm þekktum lögum, en þar verma stólana Ósvaldur Freyr Guð- jónsson, Eggert Björgvinsson og Páll Pálsson. Tónsmíðafélag Vestmanna- eyja skipa Ósvaldur Freyr Guð- jónsson, píanó, gítar ásamt söng og átti hann flest lög og texta. Högni Hilmisson spilaði á bassa, gítar og raddaði en bróðir hans Óðinn lék á bassann og ásláttarhljóðfæri. Hrafnhildur Helgadóttir er söng- kona hljómsveitarinnar en „grúpp- peyjar“ hennar þetta kvöld voru Kristleifur Guðmundsson og Kristinn Bjömsson sem einnig spilaði á harmonikku og munnhörpu. Þau eiga það sammerkt að vera að feta sín fyrstu spor í opinberri söngfrægð. Agúst Ingvarsson á gítar og slagverk og í búrinu barði Grímur Gíslason húðir. Kynnir kvöldsins Palli Páls. sá einhverja líkingu með Grími og Dýra í Prúðuleikurunum, hvort rétt er skal ósagt látið. Þegar kemur að tónlistargagnrýni get ég ekki haft mörg orð sökum fá- fræði en eitt veit ég að skemmtunin var mín þetta kvöld og er ég viss um að svo var um fleiri. Leikgleði Tón- smíðafélagsins var mikil og góð í hverju popplaginu á fætur öðru. Aðeins bar á því að stilla hefði betur mátt saman raddir í hljóðnemum og jafnvægi á milli hljóðfæra var ekki alltaf sem skyldi. En eitt var það sem kom óþægilega við eyru. Þar var á ferð málvilla en ekki tónlist. Lag Einars Þórs Hannessonar heitir Það er bara þú, en persónufomafnið þú tekur alltaf með sér ert en ekki er. Hvað tónlistina snertir var það óneitanlega ánægjuefni að sjá kokkinn á trommunum og Gústa á Herjólfi á bongó. Vestmannaeyingar vissu að þeir ættu góðan tónlistarmann í Obba en hver vissi um Hrafnhildi, Kristleif fmm j [[> . ' j|^( , - T % 1 1 ~Tj|i HLJÓMSVEIT Tónsmíðafélagsins, Kristinn, Högni, Óðinn, Grímur og Ósvaldur. GAMLI vélasalurinn, sem hýst hefur margar athyglisverðar myndlistarsýningar var allt í einu orðinn að kaffihúsi sem bauð upp á skemmtilega tónlist. og Kristin? Bræðurnir tóku ótrúlega syrpu í laginu Allra veðra von, frumsamið af Óðni. Stflbrigðin minntu á eitthvað frá 1970 og krafturinn var mikill. Engu líkara en að Eyjaveðrið brytist út í hljómunum. Tónsmíðafélagið llutti tólf frum- samin lög, þar af vom átta eftir Ósvald og átti hann texta við sjö laganna. Óðinn átti eitt lag. Tómas Ingi Tómasson eitt lag þar sem texta- höfundur er tilgreindur ónefndur KR-ingur. Jóhannes Agúst Stefáns- son og Einar Þór Hannesson áttu hvor sitt lagið með texta. Ámi Johnsen samdi texta við eitt laga Ósvalds. Eina lagið í sjálfri dagskránni sem var ekki eftir Eyjamann var Angels, samið af KK, svo ekki var ráðist á garðinn þar sem hann er lægstur. Sérstaka athygli mína vakti lagið Stjama skær eftir Ósvald. Perla kvöldsins var Iris Guð- mundsdóttir með sína fallegu rödd. Hún flutti fjögur frumsamin lög og texta. Allt „gospel" eða eins og hún sagði sjálf: „Þetta em trúarleg lög eins og þið hafið sjálfsagt átt von á.“ Textarnir vom allir á ensku, fannst mér það helst til ljóður, en hver hefur heyrt gospel á íslensku? Þetta er í fyrsta sinn sem íris syngur eigin lög og texta opinberlega. Margrét Hjálm- arsdóttir var bakrödd og undirleik annaðist Högni. Féll klassískur gítarhljómurinn vel að röddunum. Kvöldið var sigur fyrir tónlistar- fólkið allt. Það er frábært að vita til þess að á dimmum síðkvöldum sé fólk í bænum að vinna að skapandi verkefnum eins og dægurlögum og textagerð. í því felst sköpunargleði og fmmkraftur. Þetta kom berlega í ljós á tónleikum Tónsmíðafélagsins og ber félagið nafn með rentu. Þetta er lof- samlegt framtak og óska ég þátt- takendum til hamingju. Séra Bára Friðriksdóttir. Að þessu sinni féllst skrifari á að Ijá dálk sinn undir lesendabréf og auk þess að aðstoða höfimd þess lítillega við orðalag bréfsins. Höfundurinn, sem lagður hefur verið í einelti, bœði af yftrvöldum og Fréttum, vill ekki koma fram undir nafni vegna ótta umfrekara einelti. Nú er mér nóg boðið. Undanfama mánuði höfum við ökumenn í Vestmannaeyjum verið lagðir í einelti og undir það kynt af blaðinu Fréttum sem vikulega slær því upp að ökumenn í Vestmannaeyjum hafi verið kærðir fyrir það sem þeir kalla brot á umferðarlögum. Já, mér er nóg boðið því að í síðustu viku, þegar ég kom að bílnum mínum einn morg- uninn, var búið að klippa af honum númerin. Þau höfðu verið klippt af í skjóli nætur. Þegar ég fór svo að grennslast fyrir hverju þetta sætti þá fékk ég það beint í andlitið að komið hefði verið langt fram yfir skoðun. Nú vissi ég vel að komið var fram yfir skoðun og búinn að fá einhvem blaðsnepil unt það. En síðustu vikur hef ég bara ekki mátt vera að því að láta skoða bflinn, ætlaði að gera það í vikunni ef ég hefði haft tíma til. Svo fæ ég nú ekki séð að það skipti höfuðmáli þótt einhverjir dagar eða vikur fari fram yfir skoðun enda er bfllinn alltaf í topplagi hjá mér og ef eitthvað er að þá ek ég bara þeim mun varlegar svo að engin hætta er á ferðum. En þá kemur þessi aðkomumaður sem segist stjóma löggunni í Vestmannaeyjum og tekur menn úr vinnu hjá lögreglunni til þess eins að stela númemm af bflnum mínum. Svo hótar hann að kæra mig og sekta. Síðan þessi aðkomumaður kom til Vest- einetti og smjatti mannaeyja og fór að skipta sér af öllum mögulegum hlutum, ekki síst okkur öku- mönnum, hefur ástandið stórversnað og nú fáum við aldrei að vera í friði með neitt. Við emm hundeltir, teknir fyrir að aka of hratt, leggja ólöglega, gefa ekki stefnuljós og láta ekki skoða bflana okkar. Og svo smjatta Fréttir á öllu saman. Ég var gráti nær þama um morguninn þegar ég sá hvemig búið var að fara með bflinn minn og það fyrir ekki meiri sakir en þær að hafa dregið í nokkra mánuði að fara með hann í skoðun. Svo datt mér í hug hvað hefði nú verið sagt ef svona hefði verið farið með fólkið sem lenti í árekstri á Þrengslaveginum unt daginn. Ef númerin hefðu nú bara verið klippt af bflnum þeirra og sagt að hann væri ekki ökufær og þeim væri nær að vera að lenda í árekstri. Það hefði ekki þótt góð latína þegar ég var að læra. Ég er orðinn aldraður maður. Ég er fæddur og uppalinn í Vestmannaeyjum og hef unnið hörðum höndum allt mitt líf. Ég hef borgað mín gjöld til bæjarins og haft fólk í vinnu, margt af því fætt og uppalið í Vestmannaeyjum, og það hefur líka borgað sín gjöld til bæjarins. Eina ánægjan mín í ellinni hefur verið að keyra um á bflnum mínum, nú er búið að hafa þá ánægju af mér, það er aðkomumaður sem stendur fýrir því og Fréttir smjatta á þessum ófögnuði. Ég fæ ekki séð að íbúum eigi eftir að ijölga í Vestmannaeyjum ef svona á að koma fram við okkur sem erum fæddir hér og búum hér enn og emm lagðir í einelti alla daga. Greinarhöfundur er aldraður, harðduglegur, fyrrverandi athafnamaður í Eyjum, fœddur þar og uppalinn.

x

Fréttir - Eyjafréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.