Fréttir - Eyjafréttir

Tölublað

Fréttir - Eyjafréttir - 16.11.2000, Blaðsíða 18

Fréttir - Eyjafréttir - 16.11.2000, Blaðsíða 18
18 Fréttir Fimmtudagur 16. nóvember2000 Landa- KIRKJA - hjartanlega velkomin! Fimmtudagur 16. nóvember Kl. 10.00 Foreldramorgunn, hjúkr- unarfræðingur verður til skrafs og ráðagerða. Kl. 14.30 Helgistund á Heil- brigðisstofnun, dagstofu 3. hæð, heimsóknargestir velkomnir. kl. 17.30 TTT Tíu til tólf ára starf á fullu. Laugardagur 17. nóvember Kl. 14.15 æfing Litlir lærisveinar, safnaðarheimili. Sunnudagur 19. nóvember Kl. 11.00 Sunnudagaskólinn á sínum stað. Litlir lærisveinar syngja og bam borið til skímar. Kl. 20.00 Þjóðlagamessa. Notaleg stund í kirkjunni fyrir alla fjöl- skylduna. Litlir lærisveinar leiða söng og valinkunnur hópur tón- listarfóks leikur undir. Ferm- ingarböm leggja sitt að mörkum í stundinni. Æskulýðsfundurinn rennur inn í þjóðlagamessuna. Mánudagur 20. nóvember Kl. 17.00 Æskulýðsstarf fatlaðra í safnaðarheimilinu. Kl. 20.00 Saumafundur kven- félagsins. Þriðjudagur 21. nóvember Kl. 16.30 Kirkjuprakkarar, heim- sókn á Hraunbúðir, allir 7-9 ára krakkar velkomnir. Miðvikudagur 22. nóvember Kl. 20.00 Opið hús fyrir unglinga í KFUM&K-húsinu. Hleypt inn meðan húsrúm leyfir. Hvi'tasunnu- KIRKJAN Fimmtudagur Kl. 20.30 Biblíulestur Laugardagur Kl. 20.30 Bænasamkoma - um- sjón Lilja Óskarsd. Sunnudagur Kl. 15.00 Vakningarsamkoma - Þriðjudagur Kl. 17.30 Krakkakirkjan Verið hjartanlega velkomin að leita Drottins meðan hann er að finna! Hvítasunnukirkjan Allir hjartanlega velkomnir Aðventkirkjan Fimmtudagur 16. nóvember Kl. 20.00 Samvera og bænastund Luugardugur 18. nóvember Kl. 10.00 Biblíurannsókn. Allir hjartanlega velkomnir. Biblían talar sími 481-1585 Knattspyrna: Lokahófið hjá stelpunum Karen besti leikmaðurinn -Samantha Britton markahæst Lokahóf kvennadeildar ÍBV í knattspyrnu fór fram í Þórsheimilinu á laugardagskvöldið og var þar mikið fjör eins og alltaf þegar ÍBV-konur bregða á leik. Veittar voru viðurkenningar fyrir afrek sumarsins og bar þar hæst að Karen Burke var valin besti leikmaður tímabilsins. Samantha Britton var markahæst í sumar, Petra Bragdóttir þótti sýna mestu framfarirnar í sumar og Sigríður Inga Kristmannsdóttir fékk bikar fyrir að vera jákvæðasti persónuleikinn. Þá fékk Lind Hrafnsdóttir Fréttabikarinn. uír m' 10 flfw 3 Al Wr *« 1B ■1 H m wML - 1 Wttk mfi ÍL mIa ' . - T ■■ m t imr .aW’ ÞEIR leikmenn sem mættir voru á lokahófið. Efri röð frá vinstri: Rakel Rut Stefánsdóttir, Elfa Ásdís Ólafsdóttir, Hjördís Jóhannesdóttir, Elena Einisdóttir, Fanný Yngvadóttir, Sigríður Inga Kristmannsdóttir, Sigríður Ása Friðriksdóttir, Hanna Guðmundsdóttir. Neðri röð frá vinstri: Svetlana Balinskaya, íris Sæmundsdóttir, Hjördís Halldórsdóttir, Petra Bragadóttir og Bryndís Jóhannesdóttir. Á myndina vantar Kelly, Samönthu og Lind sem var veðurteppt í Reykjavík. SVEINN Þorsteinsson í knattspyrnuráði kvenna og Heimir Hall- VERÐLAUNAHAFARNIR og markverðirnir Sigríður Inga Krist- grímsson skemmtu sér vel á slúttinu. mannsdóttir og Petra Bragadóttir. Upp með endurskinsmerkin Lögreglan vill benda gangandi vegfarendum á að núna í skamm- deginu er rétti tíminn til að nota endurskinsmcrki. Lögregla hefur orðið vör við fólk á gangi, klætt dökkum fötum sem sjást illa í myrkri og fylgir því mikil slysahætta. Jafnvel hefur umrætt fólk verið á gangi á röngum vegarhelmingi en þar sem hvorki er gangstétt eða gangstígur er öruggara að ganga vinstra megin á vegi. Síðan má velta þeirri spumingu fýrir sér hvers vegna fullorðið fólk er ekki jafnduglegt og böm að nota endurskinsmerki. Er hugsanlegt að fólki finnist það „bamalegt" að nota endurskinsmerki? Ef sú er reyndin má benda á að það hefur hingað til ekki talist bamalegt að koma í veg fyrir slys. Lögreglan hvetur því alla gangandi vegfarendur til að nota endurskinsmerki. Hemmi Heimaklettur? Hermann Hreiðarsson og félagar hans í enska úrvalsdeildarliðinu Ipsvvich hafa svo sannarlega komið á óvart það sem af er vetrar. Liðið hefur nú sigrað í sex leikjum af þrettán og situr í sjötta sæti úrvalsdcildarinnar en í næstu sætum á eftir Ipswich er m.a. Newcastle og Leeds. Hermann hefur verið fastamaður í liðinu og er öðrum fremur þakkaður traustur varnarleikur liðsins, enda hefur hann verið að spila mjög vel það sem af er vetrar. A fréttavefnum Teamtalk er Hermanni einmitt hrósað fyrir skipulagðan varnarleik liðsins í leik liðiðsins gegn Charlton og er hann m.a. kallaður the Icelandic rock, eða íslenski kletturinn. Ætli þeir séu að tala um Heimaklett?

x

Fréttir - Eyjafréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.