Fréttir - Eyjafréttir - 30.01.2003, Blaðsíða 20
h3 rsnyrtistofa
SÍMI 481 3666
^mmmmmmmmmmm—^^
LSHTERRS
VEITINGAHÚS
BÁRUSTÍG 11 ('T A ^
SÍMI 481 3393
IGóður matur. Góð þjónusta.
Kostar minna en þú heldur.
Vilhjálmur Bergsteinsson
> 481-2943 SMBkpMBÍUi
* 897-1178
Fráleit kæra
-segir Kristján Bjarnason garðyrkjustjóri
sem er kærður fyrir sauðaþjófnað.
íhugar að fara í mál fyrir meiðyrði
Kristján Bjarnason garðyrkju-
stjóri segir neðangreinda kæru
vera fráleita.
„Það höfðu verið kindur á beit
vikum saman þarna, bæði inni á
golfvelli og á þessu íbúðarsvæði í
vesturbænum," sagði Kristján.
„Þrátt fyrir ítrekaðar ábendingar
formanns landnytjanefndar var
ekkert gert og var það algert
neyðarúrræði að fjarlægja þær úr
beit á heimalóðum."
Kristján bætti við að honum þætti
það tíðindum sæta ef eitthvað at-
hugavert væri við það. „Þetta
hljómar eins og hver önnur vitleysa
í mínum eyrum og ég er að athuga
hvort ekki sé hægt að kæra manninn
fyrir meiðyrði."
Hann sagði jafnframt að það hafi
verið alveg Ijóst að skepnunni hafi
verið komið fyrir á góðum stað og
ekkert hafi verið við það að athuga,
vel hafði verið hugsað um hana,
hún hafi fengið bæði vatn og fóður.
„Við auglýstum svo eftir eiganda
daginn eftir en enginn svaraði. Það
var svo brotist inn tveimur dögum
síðar að nóttu til og skepnan fjar-
lægð,“ sagði Kristján.
Garðyrkjustjóri bæjarins
kærður fyrir sauðaþjófnað
PRESTAR,
gamlir og nýir
Alls voru fínim prestar,
núverandi og fyrrverandi
prestar í Eyjum, viðstaddir
athöfnina þegar þess var
minnst að 30 ár eru frá
upphafí goss. Þeir eru, séra
Bjarni Karlsson fyrrverandi,
Þorvaldur Víðisson núver-
andi, Kjartan Örn Sigur-
björnsson fyrrverandi,
hiskupinn yfir Islandi herra
Karl Sigurbjörnsson sem er
fyrrverandi og séra Kristján
Björnsson sem er núverandi.
Garðyrkjustjóri hefur verið
kærður fyrir sauðaþjófnað. Upp-
haf málsins niá rekja til 10.
október á síðasta ári þegár hann
handsamaði lamb í blómagarði
við hús sitt að Dverghamri. Hann
lét lögreglu vita og ákvað að
auglýsa eftir eiganda marksins og
þá lambsins og á meðan yrði
lambið haft í geymslu bæjarins.
Eftir að eigandinn kom í leitirnar
var gerð skaðabótakrafa á hann frá
Vestmannaeyjabæ vegna kostnaðar
við smölun og geymslu í tvær
nætur. Upphæðin var 13.718 krónur
fyrir utan vexti.
Það var svo 21. janúar sl. sem
Gunnar Arnason, tómstundabóndi,
kærði Kristján Bjarnason garð-
yrkjustjóra fyrir sauðaþjófnað. I
kærunni segir að hann sé skráður
eigandi lambsins samkvæmt marka-
skrá og haft aldrei fengið vitneskju
um afdrif þess. Það hafi tveimur
dögum síðar horfið úr vörslu garð-
yrkjustjórans. Svo segir: „En á mig
er í framhaldi send skaðabótakrafa
og er ég síðan í opinberum fjölmiðli
sakaður jafnvel um að hafa brotist
inn í áður nefnda sauðfjárgeymslu
og stolið „eigin larnbi." Efni
kærunnar er að Kristján hall tekið
lambið ófrjálsri hendi og fært til
geymslu sem ekki er gerð fyrir
sauðfé. Ekkert leyfi sé til að halda
búfé þar og það hafi horfið í vörslu
Kristjáns og fer Gunnar fram á
lögreglurannsókn á því hvarli.
Einnig skrifar Gunnar bæjar-
stjórn bréf þar sem hann óskar eftir
upplýsingum samkvæmt lögunt um
upplýsingaskyldu er varða vinnu-
brögð garðyrkjustjóra, starfssvið
hans og starfsmanna Vestmanna-
eyjabæjar hjá Ahaldahúsi bæjarins.
Þar spyr hann hvort það sé í
verkahring garðyrkjustjórans að
elta rollur, handsama og setja í
gæsluvarðhald. Eins spyr hann
hvers vegna ekki hafí verið farið að
búfjárlögum í sambandi við lambið
og hvort starfsmennirnir sem hand-
sömuðu lambið ásamt garðyrkju-
stjóra hafi fengið greidd smalalaun.
Bæjarráð fól formanni bæjarráðs
og bæjarstjóra framgangs málsins.
Verð Nú
SS ítalskt salat 91,-
1944 Bolognese 249,-
1944Lasagne 344,-
1944 Kjúklingalasagne 362,-
1944 ítalskir töfrar 259,-
Barilla spaghetti 1 kg 139,-
Barilla Farafelle 500 g 89,-
Barilla Fuisille 500 g 89,-
Barilla Mezze penne tricoli 500 g 112,-
Barilla Pasta sósur
Barilla Passioni kex 150 g
Frosnir Kjúklingaleggir
Frosin Kjúklingalæri