Fréttir - Eyjafréttir


Fréttir - Eyjafréttir - 30.01.2003, Blaðsíða 9

Fréttir - Eyjafréttir - 30.01.2003, Blaðsíða 9
Fimmtudagur 30. janúar 2003 Fréttir 9 ^ ^ ^ I HERJOLFI Laugardaginn l.febrúar Skipið opnar kl. 19.00 og hefst skemmtun 19.30 Vínkynning og ýmis skemmtiatriði s.s. íris Guðmunds og Sigmundur Einars Heiðursgestur er sr. Hjálmar Jónsson Dómskirkjuprestur, hagyrðingur og fyrrverandi Alþingismaður Matseðill: Steikar og sjávarréttarhlaðborð ístertuhlaðborð í desert Miðaverð aðeins kr. 3.300,- Miðapantanir og sala hjá Magga Braga og Viktori Rakara Bæjarstjórnarfundur Almennur fundur verður haldinn í bæjarstjórn Vestmannaeyja kl. 18.00 í dag í Listaskólanum við Vesturveg. Bæjarstjóri „Fegrun bæjarins“ Vestmannaeyjabær hefur farið af stað með sérsakt verkefni sem nefnist „Fegrun bæjarins.“ Óskað er eftir ábendingum um svæði þar sem taka þarf til hendinni og einnig er óskað eftir hugmyndum sem geta komið að framkvæmd verkefnisins. Fyrirtæki og verslanir eru hvött til samstarfs með kynningum, afsláttarkjörum o.fl. Hugmyndum skal skila sem fyrst á garðyrkjudeild Vestmannaeyja, Áhaldahúsinu (gardyrkja@vestmannaeyjar.is)^ Nánari upplýsingar veitir Sigurður Páll Ásmun starfsmaður garðyrkjudeildar gsm. 698-9002. Tveir sóttu um starf á Sjúkrahúsinu Heilbrigðisstofnun Vestmannaeyja auglýsti eftir starfskrafti í býtibúr og ræstingu á sjúkrasviði í síðustu viku. Tveir höfðu sótt um starfið í gær að sögn Önnu Ólafsdóttur ræstingarstjóra. Vekur það óneit- anlega athvgli þar sem um hundrað og fimmtíu manns eru á atvinnu- leysisskrá. Þess ber að geta að um tímabundið starf er að ræða eða frá 1. febrúar til 1. maí. Vilborg Þorsteinsdóttir, sem hefur verið ráðin til að vinna að úr- ræðum gegn atvinnuleysi, var mjög undrandi þegar hún heyrði að um- sækjendur væru einungis tveir. Hún telur helstu skýringuna vera þá að fólk reikni með svo mörgum umsækj- endum að það þýði ekki að sækja um. „Ég vil hvetja alla sem vantar vinnu Þorsteinn Ingi Sigfússon og Páll Marvin Jónsson: Hvetja menn til að slíðra sverðin í þeirri pólitísku baráttu sem er að verða að lamandi eitri í þjóðlífi Eyjanna Þeir Þorsteinn Ingi Sigfússon, prófessor og formaður stjórnar Samstarfsnefndar Háskóla Islands og Vestmannaeyja og Páll Marvin Jónsson, forstöðumaður Rann- sóknasetursins sendu bæjarráði bréf í síðustu viku þar sem varað er við því að gengið verði á Samstarfs- nefndina, vegna skulda Þróunar- félagsins, sem einn af eigendum félagsins. Rakið er samstarf þessara aðila og kemur þar fram að aldrei hefur verið um fjárhagsbindingu að ræða, heldur var samstarfið fólgið í greiningarvinnu og að Þróunarfélagið hefði aðgang að þekkingu innan Háskólans endur- gjaldslaust. Þeir bentu á að 1998, þegar þegar Þróunarfélagið skilaði rekstrarhagnaði, hafi aldrei komið til tals hjá Samstarfsnefndinni að gera tilkall til hlutar í þeim hagnaði. I loka- orðum bréfsins segir svo: „Ef bæjaryfirvöldum dettur til hugar að gera fjárhagslegar kröfur til stjómar Samstarfsnefndarinnar er verið að kippa rekstrargrundvelli undan Há- skólasetrinu í Eyjum sem getur haft mjög alvarlegar afleiðingar sem við treystum okkur ekki til þess að starfa við. Munum við væntanlega heQa ítarlega greiningu á því með hvaða hætti framlag Rannsóknasetursins verður metið til fjár með það í huga að gera gagnkröfu. Við hvetjum til þess að menn slíðri sverðin f þeirri póli- tísku baráttu sem einkennir starf í Vestmannaeyjum og er að verða að lamandi eitri í þjóðlífi þessa einstaka staðará íslandi...“ Bæjarráð staðfesti við afgreiðslu málsins á þriðjudag að ekki verða gerðar fjárhagslegar kröfur á sam- starfsnefnd Háskóla Islands og Vestmannaeyjabæjar. Guðrún Er- lingsdóttir tekur afstöðu til málsins á næsta bæjarstjómarfundi sem er í dag klukkan sex. Hún óskaði eftir að bóka: „Hlutverk kjörins fulltrúa í bæjar- stjóm er að tryggja að vel sé farið með það fé sem rennur í sameiginlega sjóði bæjarfélagsins. Vegna fyrirliggjandi bréfs er rétt að taka fram að fulltrúar minnihlutans hafa ekki aðrar upp- lýsingar um samstarf eigenda Þró- unarfélags Vestmannaeyja en fram kemur í stofnsamningi félagsins sem finna má á heimasíðu þess. Ef aðrir samningar eða annað samkomulag liggur fyrir er nauðsynlegt og mjög mikilvægt að það verði skýrt frekar og lagt fram á næsta fundi bæjarstjórnar. Það vekur sérstaka eftirtekt að bréfritarar skuli lýsa því yfir að kröfur minnihlutans um vandaða meðferð almannafjár skuli verða að „lamandi eitri í þjóðlífinu" eins og það er orðað í erindinu. Minnihlutinn mun áfram sem hingað til reyna að tryggja að vel verði farið með almannafé. Abyrgð bæjarfélagsins vegna skuldbindinga félagsins verður að vera skýr.“ Úrskurðarnefnd um upplýsingamól: Vegagerðinni ber að afhenda samning Úrskurðarnefnd um upplýsingamál kvað upp sinn úrskurð í máli Vestmannaeyjabæjar gegn Sam- skipum og Vegagerðinni um ný- gerðan samning þeirra á milli um rekstur Herjólfs. Vegagerðin neitaði að veita bæjarstjórn aðgang að viðaukasamningnum sem gerður var 4. október sl. á þeim forsendum að um verksamning við fyrirtæki í einkarekstri væri um að ræða og því taldi stofnunin sig hvorki hafa heimild né vera það skylt að af- henda samninginn þriðja aðila. I úrskurðarorðum nefndarinnar er vísað í þriðju grein upplýsingalaga en þar segir: „Stjómvöldum er skylt, sé þess óskað, að veita almenningi að- gang að gögnum sem varða tiltekið mál með þeim takmörkunum sem greinir í 4. til 6. grein.“ Vegagerðin vildi meina að með þvf að opinbera samninginn væri verið að skaða stöðu Samskipa enda mörg ákvæði samningsins viðskiptalegs eðlis, m.a. er rætt um einingarverð fyrir hverja ferð og gefnar upp ein- greiðslur begna breyttra forsendna frá upphaflegum verksamningi. Þessar upplýsingar taldi Vegagerðin óheimilt að veita og vísaði í 5. grein upplýs- ingalaga. I þeirri grein segir: „Oheimilt er að veita almenningi aðgang að gögnum er varða mikilvæga tjárhags- og við- skiptahagsmuni fyrirtækja og annarra lögaðila_“ Úrskurðamefndin segir að vissulega megi búast við að almenn vitneskja um umsamið endurgjald fyrir jjjónustu geti skaðað sam- keppnisstöðu þeirra fyrirtækja sem taka að sér slík verkefni fyrir ríkið, og kunni jafnvel að skaða sam- keppnisstöðu ríkisins sjálfs. Það sjónarmið verður þó að jafnaði að víkja fyrir almennum fyrirmælum upplýsingalaga um upplýsingarétt almennings. Því verður ekki talið að Vegagerðin hafi sýnt fram á að halda beri þeim upplýsingum leyndum fyrir almenningi sem fram koma í við- aukasamningnum. Þó undanskilur úrskurðamefndin þær upplýsingar sem fram koma í ákvæði til bráða- birgða við samninginn. V-listinn ólyktar um Þróunarfélagið: Fagna rannsókn félagsmálaráðuneytisins Vestmannaeyjalistinn ályktaði unt málefni Þróunarfélags Vestmanna- eyja á mánudaginn. Þar er sú staða, sem málefni félagsins eru komin í, undir forystu Guðjóns Hjörleifssonar, hörmuð. Þeirri ákvörðun félagsmálaráðu- neytisins, um að taka málefni fé- lagsins og reikninga þess til sérstakrar rannsóknar, fagnað. Einnig fagna þeir því að ráðuneytið ætlar að skoða nýlega ákvörðun meirihluta bæjar- stjómar um að gera bæjarsjóð ábyrgan fyrir tugmilljóna lántökum félagsins, auk annarra ábyrgða sem bæjarsjóður hefur áður tekist á herðar vegna félagsins. í ályktuninni kemur fram að afar brýnt sé, að tilurð reikninga félagsins fyrir árið 2001 verði skýrð til hlítar í ljósi þess að bókhald félagsins var ekki til staðar. Þá verði að skýra sérstaklega hvað varð um þær kr. 6.000.000,- sem afhentar voru Skúlason ehf. án þess að nokkur sjáanleg verðmæti kæmu í staðinn. Með hliðsjón af því alvarlega atvinnuástandi sem hér ríkir, telur fundur Vestmannaeyjalistans afar mikilvægt að málefni félagsins komist á hreint hið fyrsta. Einnig kemur fram að Vestmanna- eyjalistinn telur ljóst af bréfum ráðuneytsins til stjórnar Þróunar- félagsins, bæjarstjórnar o.fl. að ráðuneytið hefur ákveðið að taka enn fleiri atriði til rannsóknar en áður hafði verið bent á í opinberri umfjöllun um málefni félagsins. Því telur fundur Vestmannaeyjalistans rétt að fresta að sinni beiðni um opinbera rannsókn.

x

Fréttir - Eyjafréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.