Fréttir - Eyjafréttir - 30.01.2003, Blaðsíða 17
Fimmtudagur 30. janúar 2003
Fréttir
17
BOÐSVEIT Óðins í 4x100 m hlaupi gerði sér lítið fyrir og sló 27 ára gamalt íslandsmet á árinu. Sveitina skipa
Berglind Björg, Eyrún Eva, Helga og Kristín Sólveig.
GOLFKONUR gerðu það gott í sumar.
þurfti Sigurlína að breyta út af venju-
legum undirbúningi fyrir mót og m.a.
æfa upp dansatriði. Sigurlína endaði í
fimmtánda sæti sem hlýtur að teljast
ágætis árangur í fyrstu tilraun.
Frjálsar
Árið 2002 var mjög viðburðaríkt hjá
frjálsíþróttafólki Eyjanna og eru
nokkrir einstaklingar í þeirra röðum
augljóslega komnir í fremstu röð
frjálsíþróttamanna landsins í sínum
aldursflokkum. Félagið hélt á nokkur
mót með sitt fólk auk þess að halda
tvö slík hér á malan'ellinum.
Á Meistaramóti íslands 15 til 22 ára
náði Tryggvi Hjaltason sér í silfur-
verðlaun í hástökki en í móti sem ber
sama nafn en var haldið síðar náði
Birgit R. Becker bronsi í langstökki án
atrennu. Tryggvi hélt svo áfram að
gera góða hluti og á boðsmóti IR
nældi hann sér í gullverðlaun í
hástökki í flokki 15-16 ára.
Sumarvertíðin hófst svo af krafti í
byrjun júní en þá fóru níu keppendur
frá Óðni á Bama- og unglingamót
fslands en í Óðinn varð stigahæsta fél-
agið að móti loknu.
Sjö keppendur frá Óðni tóku svo
þátt í Gogga galvaska mótinu sem er
eins konar íslandsmót krakka 14 ára
og yngri. Boðsveit Óðins í 4x100 m
hlaupi gerði sér lítið fyrir og sló 27 ára
gamalt íslandsmet en tími þeirra var
jafnframt sá næstbesti í þeim aldurs-
flokki á Norðurlöndunum. Sveitina
skipuðu þær Kristín Sólveig Kor-
máksdótúr, Helga S. Hartmannsdóttir,
Eyrún Eva Eyþórsdóttir og Berglind
B. Þorvaldsdóttir. Berglind og Helga
lentu svo í íyrsta og öðm sæti í 600 m
hlaupi.
Ámý Heiðarsdóttir sló ekkert af á
síðasta ári og varð hún m.a. íjórfaldur
fslandsmeistari á Meistaramóti öld-
unga. Árný var svo valin Frjáls-
íþróttakona íslands í flokki öldunga á
uppskemhátíð FRI.
Þau mót sem Óðinn hélt vom
Vöruvalsvinamótið þar sem Selfyss-
ingar komu í heimsókn og tókst mótið
einstaklega vel í ár enda lék veðrið við
þátttakendur. Kappamót öldunga var
einnig haldið í byrjun júní en þá var
veðrið hins vegar mjög slæmt sem
setti sinn svip á mótið.
Á meistaramóti Vestmannaeyja
setti Ámý tvö Vestmannaeyja- og
Islandsmet og Bergvin Oddsson lék
það einnig eftir í langstökki og 100 m
hlaupi.
Golf
Golfklúbbur Vestmannaeyja komst
vel frá nýliðnu ári enda náðist bæði
góður árangur á sjálfum vellinum og í
rekstri golfklúbbsins. í skýrslu stjóm-
ar kom fram að skuldir félagsins hafi
lækkað um níu milljónir á árinu sem
hljóta að teljast góðar fréttir. Reyndar
vom framkvæmdir í lágmarki á síð-
asta ári en árið þar á undan voru þær
allmiklar enda var húsnæðið þá
stækkað.
Vandamálin vom mörg sem þurfti
að hyggja að, t.d. kom völlurinn ein-
staklega illa undan vetri og vom
flatimar sérstaklega slakar. Þrátt fyrir
það var vallarmetið slegið á fyrsta
móti í Golfkortsmótaröðinni sem fram
fór á vellinum en þá lék Helgi Dan
Steinsson hringinn á 63 höggum sem í
ljósi ástands vallarins var einstakt
afrek. En þegar á leið sumars tóku
flatirnar við sér og var völlurinn eins
og hann á að sér að vera mestan hluta
sumars.
Fjölmörg mót vom haldin á vegum
GV, þeirra stærst vom að sjálfsögðu
fyrmefnt Golfkortsmót og svo var
sveitakeppni karla í 1. deild haldin í
Eyjum. Sveit GV hafði unnið sér sæti
í 1. deild árið áður og var sveitin sterk
en Björgvin Þorsteinsson, lands-
þekktur golfari gekk í raðir GV og
spilaði með sveitinni. Mótið gekk vel
fýrir sig ef frá er talinn síðasti keppnis-
dagur þegar blása þurfti keppnina af
vegna veðurs en GV endaði í fimmta
sæti. Öldungasveitin náði samt sem
áður bestum árangri af þeim sveitum
klúbbsins sem tóku þátt í sveita-
keppnum sumarsins en sveit GV varð
íslandsmeistari og unglingasveitin
náði einnig góðum árangri eða
bronsverðlaunum.
Af einstaklingunum bar árangur
Júlíusar Hallgrímssonar hæst en hann
náði þeim frábæra árangri að enda í
öðm sæti á Islandsmeistaramóti í
höggleik. Júlíus var í harðri baráttu
allt fram á síðustu holu en endaði
fjómm höggum á eftir Sigurpáli Geir
Sveinssyni en þeir tveir léku á
jafnmörgum höggum síðasta daginn.
Þá varð Erla Adolfsdóttir íslands-
meistari í öldungaflokki kvenna og
Karl Haraldsson varð í öðm sæti í
íslandsmóti unglinga. Karl var einnig
í landsliði Islands í sínum aldursflokki
og Sigmar Pálmason sömuleiðis í
landsliði öldunga.
Á aðalfundi félagsins vom útnefnd-
ir efnilegasti og besti golfari ársins en
efnilegastur var Örlygur Helgi Gríms-
son og sá besti var að sjálfsögðu
valinn Júlíus Hallgrímsson.
Á næsta ári verður íslandsmeist-
aramót í höggleik en það mun fara
fram í enda júlí og verður fróðlegt að
fylgjast með hvort Júlíus nær jafn-
góðum árangri og árið áður. Gera má
ráð fyrir að sjónvarpið muni sýna
beint frá mótinu einhvern hluta þess,
eins og var gert í fyrra og er því mótið
líka góð auglýsing fyrir klúbbinn.
Körfubolti
Körfuboltinn hefur tekið nokkrum
breytingum frá því á síðasta tímabili.
Þá var liðið gert út frá Reykjavík og
spilaði liðið þar af leiðandi enga leiki
hér í Eyjum þar sem flestir leikmanna
liðsins voru búsettir á svæðinu. Liðið
náði hins vegar góðum árangri í 2.
deild, komst alla leið í úrslitaleikinn
þar sem liðið tapaði reyndar fyrir
Fjölni 86 - 84 en vann sér engu að
síður sæti í 1. deild.
IV ákvað hins vegar að fara ekki
upp um deild og var ákveðið að gera
liðið út að nýju frá Eyjum og byggja
liðið á þeim sem þar eru. Það hefur
gefist ágætlega í vetur, liðið er í
toppbarátunni í sínum riðli í 2. deild
og á ágæta möguleika á að komast í
úrslitakeppnina.
Yngri flokka starílð hefur blómstr-
að með tilkomu nýja íþróttahússins og
er boðið upp á þrjá flokka hjá
félaginu. Iðkendur eru um 50 og eru
tveir flokkar skráðir í Islandsmótið þar
sem strákamir hafa tekið miklum
framfömm.
Motocross
Motocross-menn héldu áfram sínu
uppbyggingarstarfi frá því að klúbb-
urinn var reistur úr öskustónni fyrir
tveimur ámm. Eins og alltaf er keppt
í tveimur flokkum í íslandsmótinu, A-
og B-flokki og áttu Eyjamenn fulltrúa
í báðum flokkum. Sigurður B.
Richardsson skipti um lið fyrir
tímabilið og gekk í raðir KTM-liðsins
sem gerði sér lítið fyrir og varð
Islandsmeistari í liðakeppni. Eyja-
liðið, team Bragginn endaði hins
vegar í sjöunda sæti sem er prýðis
góður árangur.
Eyjamenn halda árlega fyrsta mótið
á keppnistímabilinu en það telur til
stiga í íslandsmótinu. Þetta mót nýtur
mikilla vinsælda hjá vélhjólaknöpum
enda aðstæður hér í Eyjum engu líkar.
Þá hafa menn líka verið að sækja til
Eyja til æfinga yfir vetrarmánuðina en
brautin í Eyjum er ein af fáum
brautum á landinu sem er nothæf yfir
veturinn vegna hitans í hrauninu.
Sund
Sundiðkenndur á síðasta ári voru
svipað margir og árið á undan. Á milli
40 til 50 sundmenn æfa með félaginu
í 5 hópum. Nýr þjálfari korn lil liðs við
félagið og sér um þjálfun ynstu
krakkanna - Díana Jónasdóttir.
Fyrir hjá félaginu eru Iouri Zinovev
sem sér um þjálfun bama frá 10 ára
aldri og svo er Halla Ólafsdóttir sem
er með böm 6 til 9 ára.
Félagið tók þátt í fjölmörgum mót-
um eins og áður. Þar stendur hæst
IMÍ, AMÍ, Sprettsundmót ÍBV og
Bikarkeppni Sundsambandsins (SSÍ).
Á IMI voru 2 keppendur frá IBV og
var árangur þeirra góður en þar féllu
tvö yestmannaeyjamet. í sumar, á
AMI voru líu keppendur búnir að ná
lágmörkum og skunduðu á Laugar-
vatn. Þar var att kappi við jafnaldra og
stóðu stelpumar sig mjög vel, náðu að
halda sinni stöðu frá í fympog var
æsispennandi keppni á milli IBV og
Selfoss þegar að stigatölum kom.
Stelpumar bættu líka mörg persónu-
leg met.
Fyrsta mót sundvertíðarinnar er
alltaf Sprettsundmótið í Eyjum og var
þátttakan framar öllum vonum. Frá
félögum ofan af landi voru um 200
sundmenn því var um mjög stórt mót
að ræða. Á mótinu voru sett mörg
lágmörk fyrir mót erlendis í velur, tvö
íslandsmet voru sett og svo tvö
heimsmet. Mótið gekk í alla staði vel
og ljóst er að mótið er búið að skipa
sér sess meðal vinsælustu móta
vertíðarinnar hjá sundfólkinu. Það
voru því ánægðir þátttakendur sem
fóru heim að móti loknu.
Bikarkeppni SSÍ var svo haldin nú í
nóvember sl. og var árangurinn ágæt-
ur. Félagið náði að halda sinni stöðu í
deildinni. Á árinu voru sett 10 ný
Vestmannaeyjamet.
ÞESSIR ungu fimleikamenn vöktu athygli þegar nýja íþróttahúsið var vígt.
MILLI40 og 50 æfa sund.