Fréttir - Eyjafréttir


Fréttir - Eyjafréttir - 21.08.2003, Síða 10

Fréttir - Eyjafréttir - 21.08.2003, Síða 10
10 Fréttir / Fimmtudagur 21. ágúst 2003 Júlíus Jónsson, forstjórí Hitaveitu Suðurnesja, í viðtali: Það er ekki stefnan að minnka þjónustuna -og starfsfólkið úti í Eyjum hefur ekki fengið önnur fyrirmæli en þau að halda áfram á sömu braut Þegar sameining Bæjarveitna Vestmannaeyja og Hitaveitu Suðurnesja gekk í gegn á fyrri hluta síðasta árs eignaðist Vestmannaeyjabær sjö pró- sent eignarhlut í fyrirtækinu sem nú er eitt af þremur stærstu orkufyrirtækjum landsins. Sitt sýndist hverjum um þessa sameiningu en eitt er Ijóst að Hitaveita Suður- nesja er orðin mikilvægur þáttur í þjónustu við Vest- mannaeyinga og því rétt að kynna fyrirtækið og forstjóra þess fyrir Eyjamönnum. Upphafið má rekja til ÁRSINS 1953 Það er athyglisvert að skoða virkj- unarsvæði Hitaveitu Suðurnesja við Svartsengi. Þetta er stórt svæði, undirlagt af lögnum og húsum. Þar em rúmlega tuttugu borholur en aðeins rúmlega helmingur þeirra er í notkun núna. í nágrenni við stór mannvirki Hitaveitunnar er svo stolt Suðumesja, Bláa lónið. Hitaveita Suðurnesja var formlega stoi'nuð í árslok 1974 en undirbún- ingur hafði þó staðið yfír tvo áratugi á undan. Það var árið 1953 sem fjár- magni var fyrst úthlutað til rannsókna á möguleikum til hitaveilu og var það Keflavíkurbær sem það gerði. Alla tíð stóðu þó sveitarfélögin á Suðumesjum saman um verkefnið og undir lok sjötta áratugarins var skipuð hitaveitu- nefnd sem átti að kanna nánar möguleikann á hitaveitu fyrir svæðið. Það má svo segja að Hitaveita Suðurnesja hafi komist á koppinn þegar hreppsnefnd Grindavíkur sam- þykkti einnar milljónar króna framlag til reynsluborunar eftir heitu vatni skammt vestan þjóðvegarins á móts við Svartsengi. Þar hafði lengi verið vitað um jarðhita. Þrjár holur voru boraðar og í kjölfarið samþykkti hreppsnefnd Grindavíkur að bjóða öðrum sveitarfélögum á svæðinu til samvinnu um nýtingu jarðhitans við Svartsengi. Undirbúningsfundur Hitaveitu Suð- urnesja var haldinn laugardaginn 15. september 1973 í Félagsheimilinu Festi í Grindavík. Það var svo um áramótin 1974 sem forseti Islands samþykkti lög um stofnun hitaveit- unnar. Fyrsti stjómarfundurinn var haldinn í febrúarmánuði 1975 en við stofnun var samþykkt skipting hluta- ijár í hinu nýja fyrirtæki. Það skiplist þannig að ríkið átli ijörutíu prósent en sveitarfélögin sjö sem nýttu sér borholurnar skiptu með sér hinum sextíu prósentunum eflir íbúafjölda. JÚLÍUS: Það voru ákveðin atriði í þjónustunni sem við vorum ekki ánægð með, til dæmis að skipta reikningum fyrir fólk í fjöbýli en við breyttum kerfunum okkar til að geta haldið því áfram því við vilduni ekki leggja eitthvað af sem Bæjarveiturnar höfðu boðið upp á. Eyjamenn EIGA SJÖ PRÓSENT Talsverðar breytingar hafa orðið á eignaskiptingunni, sérstaklega vegna sameiningar sveitarfélaga. Nú á Reykjanesbær rúmlega fjömtíu pró- sent hlut og er langstærsti hluthafinn. Hlutur Ríkissjóðs er kominn niður í rúm fimmtán prósent sem er það sama og Hafnarfjarðabær á. Grindavíkurbær á tæplega níu prósent hlut og næst er það Vestmannaeyjabær sem eignaðist sjö prósent hlut þegar Hitaveita Suður- nesja og Bæjarveitur Vestmannaeyja sameinuðust. Aðrir hluthafar eru Sandgerðisbær með rúmiega fimm prósent hlut, Gerðahreppur með 4,7 prósent hlut og loks Vatnsleysustrandarhreppur með tæplega þrjú prósent. Fyrirtækið var stofnað í upphaft sem senr hitaveita í þrengsta skilningi þess orðs en í áranna rás hafa verkefnin orðið lleiri og nú er svo komið að auk þess að reka hitaveitu og rafveitu á Suður- nesjum, í Hafnafirði og Vest- mannaeyjum á fyrirtækið eignarhlut í fjölmörgum öðmm fyrirtækjum. Eitt af þremur stærstu Júlíus Jónsson hefur verið forstjóri fyrirtækisins síðan 1. júlí 1992 en starfaði þó tíu ár þar á undan sem skrifstofu- og fjármálastjóri hjá fyrirtækinu sem oftast er nefnt sem eitt af þremur stærstu orkufyrirtækjum landsins og hefur stækkað mikið undanfarin ár með sameiningum, fyrst við Rafveitu Hafnarfjarðar _og svo Bæjarveitur Vestmannaeyja. I síðustu ársskýrslu fyrirtækisins er verðmæti þess 6,3 milljarðar króna og sjö prósent hlutur Vestmannaeyjabæjar því rúmar 511 milljónir. Um 120 manns starfa hjá fyrirtækinu, ílestir í höfuðstöðvunum í Reykjanesbæ, 55 manns. 23 eru starfandi í raforku- stöðinni við Svartsengi, 24 eru í Hafnarfirði og 18 starfsmenn í Vest- mannaeyjum. Hagkvæmni kallar á SAMEININGU Þegar hugmyndin um sameiningu við Hitaveitu Suðurnesja kom fyrst upp hjá Bæjarveitum Vestmannaeyja var um að ræða þríhliða viðræður milii Vestmannaeyja, Arborgar og Hita- veitu Suðurnesja. „Arborgarmenn gengu úr skaftinu á sínum tíma en viðræður hófust aftur sl. vetur. Við vorum komnir á það stig að skrifa aftur undir viljayfirlýsingu. Þá ákváðu Árborgarmenn að gera ekki það sama og síðast, að skrifa undir viljayfir- lýsingu án þess að vita hvað þeir vildu. Þeir ákváðu að ráða sinn viðskipta- banka til þess að gera úttekt á sínum möguleikum, fengu skýrslu í byrjun júní. Hún var kynnt veitustjórn og bæjarstjórn og var ákveðið að taka ntálið upp aftur síðar í ágúst," sagði Júlíus sem vill meina að allt of margar rafveitur hafi verið starfandi á Islandi síðustu ár. Hagkvæmari einingar „Þetta er allt að þjappast saman og nú eru komnar stærri einingar og hag- kvæmari." Júlíus hafði trú á því að eðlilegt væri að fjögur til fimm orkufyrirtæki þjónustuðu Island. „Við vorum með tólf rafveitur fyrir nokkrum árum sem er sami fjöldi og var í Bretlandi þar til þeir breyttu skipan raforkumála hjá sér. I upphafi snerist þetta um að koma rafmagni nokkuð örugglega til fólks en í seinni tíð snýst reksturinn meira um hagkvæmni. Það er í gangi núna og þá sjá menn að þessar minni rafveitur eiga erfiðara uppdráttar." Júlíus bætti því við að sífellt meiri kröfur séu gerðar til rafveitna og nefndi sem dæmi ný raforkulög. tölvu- kerfi og alls kyns mælingar franr og til baka sem kallar á meiri kostnað og að minni veitur hafi hreinlega ekki bolmagn til að standa undir slíkurn kostnaði. Júlíus sagði alla hafa verið sammála um að fara í viðræður við Árborg og Vestmanneyjar. „Af landfræðilegum ástæðum sáu menn meiri sam- legðaráhrif við Árborg en þegar þeir ákváðu að hætta var meirihluti fyrir því að halda viðræðum áfram við Vestmannaeyjar." Deilt um verðmæti Hann sagði að misjafnar skoðanir hafi verið í stjóm Hitaveitu Suðumesja. „Menn deildu urn verðmæti og fleira og það er ekkert óeðlilegt. Þegar áætlanir eru gerðar um framtíðina þá get ég haft eina skoðun og þú aðra. Það getur enginn sagt að ég hafi rétt fyrir mér og þú rangt. Það vom miklu meiri átök í fyrra skiptið, þegar sam- einingin við Hafnarfjörð gekk í gegn. Þá var þetta sameignarfélag þar sem allir þurftu að samþykkja samein- inguna, allir höfðu neitunarvald og Vatnsleysustrandarhreppur, minnsti eignaraðilinn, vildi ekki samþykkja en þegar þetta var orðið að hlutafélagi þá þurfti tvo þriðju hluthafa til þess að samþykkja þetta." Engar breytingar FYRIRHUGAÐAR Talsverð umræða var um sameiningu fyrirtækjanna í Vestmannaeyjum á

x

Fréttir - Eyjafréttir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.