Fréttir - Eyjafréttir - 21.08.2003, Page 13
Fréttir / Fimmtudagur 21. ágúst 2003
13
Góður árangur
Gísla í kvartmflu
Eyjapeyinn Gísli Sveinsson hefur
staðið sig frábærlega í sumar í
íslandsmótinu í kvartmílu.
Hann sigraði á fyrsta móti sum-
arsins í flokki mikið breyttra götubíla
og varð svo annar í því næsta aðeins
0,13 sekúndum frá fyrsta sætinu.
Gísli sigraði svo í þriðja mótinu um
síðustu helgi og er nú efstur í
stigamótinu og á góðan möguleika á
Islandsmeistaratitli þegar aðeins tvær
keppnir em eftir.
Markmið Gísla í upphafi sumars
var að fara kvartmílubrautina á innan
við ellel'u sekúndum og hefur það
heldur betur tekist hjá honum en í
síðasta móti fór hann langt undir, eða
á 10,76 sekúndum.
Óskar Pétur Friðriksson skrifar lesendabréf - Þriðji hluti:
Uppgræðsla og hófleg nýting
I síðustu grein skrifaði ég m.a. um
uppgræðslu Heimakletts, Miðkletts og
Ystakletts eftir gos og hvemig þeir
vom að fara í órækt vegna þess að þar
var engin beit til að byrja með. Eg
skrifaði einnig um uppgræðslu á
Haugum og spmngusvæðinu suður af
Eldfelli og lýsti í orði og myndum
hvemig það var fyrir fólk að búa t.d. á
Smáragötu fyrst eftir gos. Verst þótti
mér þó að ekki var birt mynd sem
tekin var af Miðkletti hvítum af
hvönn, þar sem ekki var leyft að hafa
kindur þar.
I mínum huga er það best að nýta
hóflega það land sem við höfum, sum
gróðursvæði er ekki æskilegt að nýta
yfir sumartíman en gott væri að
raðbeita það t.d. á haustin þegar
gróður er hættur að vaxa, t.d. hluta
Hauganna fyrir hesta, þá þarf
eigandinn að sjá um áburðargjöf og
færa hestana á milli staða og slóða-
draga svæðið þá sér regnið um að
koma skítnum auðveldar niður í
jarðveginn. Þar yrðu hestamir innan
hreyfanlegrar girðingar.
Eg sé fyrir mér að á haustin gætu
rollubændur sett rollur sínar í hlíðar
Helgafells og Eldfells. Því til stuðn-
ings eru hlíðar Helgafells byijaðar að
gróa upp þar sem ekki hefur verið
gróður áður, þar sem bændur hafa
látið kindur sínar fara út á morgnanna
á haustin og þær kroppað í grasið sem
er hætt að vaxa og skilja eftir sig áburð
sem er um eitt kg. á dag af hverri kind,
síðan fara þær inn aftur á kvöldin, ég
álít þetta mjög skynsama nýtingu.
Sumarbeit teldi ég æskilega í
Herjólfsdal og í Klifinu til að koma í
veg fyrir að hvönn og njóli nái að
dreifa sér og mynda flag yfir vetrar-
mánuðina, mér sýnist að með sama
áframhaldi sé hvönnin að verða
vandamál. Það væri líka gott að
hleypa skepnunum á þær spildur sem
em milli girðinga og vega til þess að
slíta upp njóla og mosa sem þar er.
Skýrasta dæmið um hvar bændur
græða upp land er efst við Helgafells-
braut, þegar keyrt er til suðurs eftir
Helgafellsbraut ofan við efstu hús, er á
vinstri hönd tún sem bændur bera
áburð á og slá túnið. þar er spretta góð
og gott gras, en aftur á móti hinum
megin við götuna er tún sem er í
umsjá garðyrkjudeildar. Túnið er
litlaust, snöggt og líflaust, ég skora á
bæjarbúa að keyra þama um og skoða
þessi tún og meta hvort lítur betur út.
Er það svona sem við viljum hafa
uppgræðslu hér í Eyjum?
Ég svara því neitandi, ég vil ekki
hafa gróðurlendin eins og þau em hjá
garðyrkjudeild. Það er ótrúlegt, að á
sl. ftmm ámm hefur garðyrkjudeild
fengið um 30,000,000 kr. á ári, eða
alls um 150,000,000 kr., já þetta er
stór tala, þetta er sú upphæð sem ég
hef heyrt um, og árangur enginn. Það
hefur engin getað sýnt mér fram á það,
en mér hefur verið sýnt og séð, fram á
hið gagnstæða, stöðnun og afturför.
Þessu þarf að snúa við með sókn og
uppgræðslu.
Ég vil benda á hvað hægt er að
gera, með litlum eða engum kostnaði
fyrir bæinn og okkur hinum til
yndisauka. Gauja og Elli Stebba hafa
á undanfömum ámm grætt upp
landsspildu á nýja hrauninu, reyndar
gerðu þau það í óþökk HUN-
nefndarinnar til að byrja með, í dag
Það er ótrúlegt, að á sl.
fimm árum hefur garð-
yrkjudeild fengið um
30,000,000 kr. á ári,
eða alls um 150,
000,000 kr. já þetta er
stór tala, þetta er sú
upphæð sem ég hef
heyrt um, og árangur
enginn. Það hefur eng-
inn getað sýnt mér fram
á það, en mér hefur
verið sýnt og séð, fram
á hið gagnstæða, stöðn-
un og afturför. Þessu
þarf að snúa við með
sókn og uppgræðslu.
em allir glaðir yftr þessu framtaki
þeirra og margir tugir þúsunda manna
heimsækja Gaujulund á ári hvetju.
Bærinn gæti úthlutað fólki landspild-
um til þess að græða upp hafi það
áhuga á, við höfum fyrirmyndina,
hafið þökk fyrir Gauja og EIli.
Afrek garðyrkjudeildar sl. misseri
eins og það kemur mér fyrir sjónir
Landspildan innst inni í Friðarhöfn,
þar sem minnismerkið um v/s. Þór er,
var mjög fallegt svæði, þar sem unga
fólkið í bænum hittist oft á kvöldin
eða um helgar og spilaði fótbolta og
hafði gaman af auk þess sem það er
holl og góð hreyfing fyrir sál og
líkama. Eitthvað fór það fyrir brjóstið
á yfirmanni garðyrkjudeildar bæjarins,
nú er búið að skera það að stórum
hluta upp og byrjað var á því í fyrra-
sumar og haldið áfram nú í sumar, þar
sem torfíð var tekið í fyrra sumar er
kominn þessi ljómandi arfi, ég sé
framhaldið fyrir mér, alit í arfa og
órækt og ungmennin spila ekki lengur
fótbolta þama.
Ég tel þetta niðurrifsstarfsemi af
verstu gerð og eyðileggingu ú gróðri,
hver er tilgangurinn? Ég vil líka
benda á svæðið norður af flugstöðvar-
byggingunni í Djúpadal, þar sem
Diddi á fluginu var búinn að rækta
upp trjágróður og gera skemmtilegt
svæði, þar er búið að rífa upp torf og
arfmn þrífst þar ágætlega, hver er
tilgangurinn?
Núna í vor réðst hann suður í Sæfell
með tæki og tól og byrjaði að rífa upp
torf, nánast undan hestunum sem
Sveinn Hjörleifsson er með þarna.
Sigurður Georgsson er með þetta land,
hann hefur þinglýstan samning um
það. Þegar yfirmanni garðyrkjudeildar
var sýnt það varð hann að laga svæðið
aftur. Þarna er verið að kasta pening-
um bæjarins í ekki neitt, og það sem
manni sveið mest var að á meðan á
þessu stóð var Sveinn á sjúkrahúsi og
gat ekki varið sig eitt eða neitt. I sumar
mátti lesa í Fréttum og sjá myndir af
því þegar grasadeildin var að vinna
við uppgræðslu á nýja hrauninu, þar
sem notaðir vom íjórhjóladrifnir bflar
við að strika út allt í kringum svæðið
þar sem unnið var, það em aðeins
snillingar sem geta unnið svona.
Ekki má gleyma forsíðufrétt Dag-
blaðsins frá því í sumar er krakkamir í
skólavinnunni voru að vinna úti á
bjargbrún, austur á eyju, þau gerðu
það líka í fyrrasumar og það vom
engar reglur um að ekki mætti fara
nær bjargbrún en fimm metra.
I fyrra sumar gerðist það að einn
drengur klifraði niður allt bergið til
þess að ná í fótbolta sem hafði farið
niður, hann kleif aftur upp með
boltann, þetta veit ég fyrir víst, þar
sem dóttir mín var að vinna þama.
Það er athyglisvert að garðyrkjustjóri
bæjarins hefur ekki mátt nota starfs-
heiti sitt þegar hann hefur skrifað
greinar í blöð bæjarins, hver ætli
ástæðan sé fyrir því?
Hann virðist vera gjörsneyddur því
sem kallað er mannleg samskipti.
Hann fer sínar leiðir og tekur sér lög-
regluvald, er með yfirgang og eyði-
leggingarstarfsemi.
Ef við snúm okkur að upphafinu í
þessari grein um óeirðir þær sem hér
hafa verið af hálfu garðyrkjustjórans,
teldi ég að best væri fyrir aíla aðila að
setjast niður og ræða málin og gera
samning um hvað má og hvað ekki.
Það er ólíðandi að hafa þetta strfðs-
ástand hér í bæ, bæði fyrir bændur og
bæjaryfirvöld, þau hafa eytt dýrmæt-
um tíma í þetta þvarg og mega þau nú
varla við því til viðbótar við allt það
þvarg sem þar er fyrir, sem frægt er
orðið um allt land.
Núna seinni partinn í júlí hittust
bændur hér í bæ, þeir ákváðu að
stofna heildarsamtök bænda í Eyjum,
sem munu fara með málefni þeirra. Ég
vona að þessi samtök og bæjaryfirvöld
nái samkomulagi í þessu máli.
Það er einnig ákvörðun bæjar-
yfirvalda hvort Landgræðslan eigi að
sjá um uppgræðslu hér í Eyjum, ég tel
að Landgræðslan þurfi ekld að vera
hér, ég held að við getum alveg séð
um það sjálf. Með samkomulagi
heimafólks og yfirvalda hér, ætti að
nýta hóflega gróðurlendi í Vest-
mannaeyjum og græða þær vel upp
öllum til yndisauka. Það er og hefur
verið þannig að bændur hér í Eyjum
hafa borið mest af áburði á af öllum
aðilum á gróðurlendi bæði með
áburðargjöf og með skít af dýrum
sínum.
Ég tel að það gæti verið gott fyrir þá
einstaklinga sem stjórna bænum, að
þeir fari um eyjuna okkar og skoði það
sem ég hef verið að skrifa um og
sPyrji sjálfa sig, hvort það sé gott fyrir
grasið að hafa alla þessa hvönn t.d.
inni í Dal og í Klifinu. Þið hafið líka
gott að því að skoða í Helgafellið,
hvort gróður hefði ekki gott af því að
kindur færu þar um á haustin og ætu
grasið þegar það er hætt að spretta og
þær skildu eftir sig áburð, einnig hvort
Haugar hefðu ekki gott af því að
hestar ætu grasið á haustin skipulega
og skildu eftir sig áburð.
Ég fer þess á leit við bæjayfirvöld
að þau upplýsi bæjarbúa hver kostn-
aður er af Garðyrkjudeild Vestmanna-
eyjabæjar, ég fer þess einnig á leit að
bæjaryfirvöld upplýsi hvað Land-
græðsla ríkisins hefur gefið mikinn
áburð hingað til Eyja á undanförnum
árum til uppgræðslu og hvert sá
áburður hefur farið.
Aður en við komum að lokakafla
þessara greinaskrifa minna, vil ég taka
það fram, að ég sendi greinar mínar til
Frétta á netinu og hver grein hét frá
mér Uppgræðsla og fleira (nr. 1,2 og
3).
Niðurlag: Með greinarskrifum þess-
um sem ég hef sent frá mér, er hugsun
mín sú, að reyna að sýna fram á að
það er hægt að gera margt ef áhugi er
fyrir því, kraftaverk hefur verið unnið
héma í Eyjum á sviði uppgræðslu og
við eyjaskeggjar getum þetta sjálfir ef
við viljum. Eg er ekki að segja að við
viljum ekki fá annað fólk til þess að
vinna með okkur, það er aðferðin sem
skiptir máli.
Það er óréttlátt að embættismaður
bæjarins taki sér lögregluvald, slíti upp
girðingar og eyðileggi eigur annarra
manna, það er ekki í starfslýsingu
hans. Ég geri mér grein fyrir því að
menn geta orðið ósáttir og þá er best
að ræða um hvað það er sem menn eru
ekki sáttir um og leysa málið, en ekki
með þeim aðferðum sem viðgengist
hafa á undanfömum ámm.
Hluti af því fólki sem stjómar
bænum var aðeins böm þegar gosið
var eða jafnvel ófætt, það man ekki
(eða óljóst) hvemig þetta var hér í
Eyjum fyrst eftir gos. Landgræðslan
gafst upp á að græða upp þar sem
þörfin var mest, hún hafði ekki yfir
þekkingarfræðilegu vopni að ráða sem
dugði til þess að ná árangri, það var
heimafólk sem hafði það.
Lifi grœnar Eyjar, og hafið þökk
fyrir.
Oskar P. Friðriksson.
Spurt er:
Er líf í
Eyjum eftir
þjóðhátíð?
Guðjón Gunnsteinsson
„Ekki í ágúst, nema kannski á
golfvellinum. Bærinn ereinfald-
lega steindauður í ágúst.
Halldór Jón Sævarsson
„Það er mjög takmarkað líf í
bænum núna. Fólk fereðlilega i
frí í ágúst þar sem bátum er lagt
og stöðvarnar loka.
Magnús Arngrímsson
„Það er líf hérna á golfvellinum
en mjög rólegt í bænum um
þessar mundir. Það fer að lifna
yfir þessu iljótlega aftur."
Óskar Haraldsson
„Það er lítið líf í bænum framan
af ágústmánuði en það færist líf í
þetta undir lok mánaðarins."