Fréttir - Eyjafréttir - 30.09.2004, Blaðsíða 19
Fréttir / Fimmtudagur 30. september 2004
15
| Handknattleikur kvenna: Grótta/KR 28 - ÍBV 29
íslandsmeistarar í vandræðum
íslandsmeistarar ÍBV lentu heldur
betur í kröppum dansi þegar
stelpumar mættu Gróttu KR í annarri
umferð 1. deildar kvenna. Leikurinn
fór fram á Seltjamamesi og var þetta
fyrsti útileikur ÍBV í deildinni. Eftir
að hafa verið undir allan fyrri hálf-
leikinn, náðu stelpumar að snúa
leiknum sér í hag og tryggja sér
sigurinn á lokakaflanum, 28-29.
Eyjaliðið er um þessar mundir í
stífum æfíngum enda langt tímabil
framundan en þessar æfingar koma
vissulega niður á leik liðsins. Leik-
menn virðast þreyttir og ná í fæstum
tilvikum að sýna sitt rétta andlit.
Frammistaða markvarðarins Flor-
entinu Grecu í fyrsta leik liðsins vakti
mikla athygli, enda varði hún rúmlega
þrjátíu skot en náði ekki að fylgja því
eftir í leiknum gegn Gróttu KR og
varði aðeins rúmlega tíu skot. Hins
vegar náði Zofia Pastor, skyttan
hávaxna frá Ungverjalandi að sýna
betri hliðina, þegar upp var staðið
hafði hún skorað tólf mörk.
Eins og áður sagði vom Eyjastúlkur
í talsverðum vandræðum með fríska
leikmenn Gróttu KR og á tímabili var
munurinn fjögur mörk, 14-10 fyrir
heimastúlkur en staðan í hálfleik var
17-15. Síðari hálfleikur var mun
skárri hjá Eyjaliðinu, stelpumar kom-
ust marki yfir en eftir það skiptust
Magnús
farinn til KR
-Tíu leikmenn með lausa
samninga
Magnús Gylfason, þjálfari ÍBV
síðustu tvö ár, hefur ákveðið að
söðla um og hefur hann gert þriggja
ára samning við KR.
Magnús náði frábæmm árangri
með IBV liðið í sumar og því
skiljanlegt að önnur lið líti á hann
sem góðan valkost. Knattspymu-
deild IBV sendi frá sér frétta-
tilkynningu í kjölfarið.
„Nú liggur það ljóst fyrir að
Magnús Gylfason, sem þjálfað
hefur meistaraflokk karla ÍBV
síðastliðin tvö ár, ljáir ekki máls á
því að gera nýjan samning við
félagið.
Félagið þakkar Magnúsi fyrir
gott samstarf þann tíma sem hann
starfaði fyrir félagið og óskar
honum góðs gengis á nýjum
starfsvettvangi."
Þeir leikmenn sem ekki em með
áframhaldandi samning við IBV
em þeir Birkir Kristinsson. Bjam-
ólfur Lámsson, Einar Hlöðver
Sigurðsson, Tryggvi Bjamason,
Mark Schulte, Einar Þór
Daníelsson, Pétur Runólfsson,
Bjami Geir Viðarsson, Páll Hjarðar
og Magnús Már Lúðvíksson.
Körfuboltinn
af stað
Körfuboltavertíðin hefst hjá
Eyjamönnum um helgina en IV
mun tefla fram tveimur liðum í 2.
deild í vetur. Það vill svo
skemmtilega til að liðin leika í
sama riðli og byija á innbyrðis
viðureignum um helgina og fara
leikimir að sjálfsögðu fram í
íþróttamiðstöðinni í Eyjum. Auk
liðanna tveggja em Laugdælir,
Dímon og UMFH í sama riðli.
FAGNAÐ í leikslok.
Mynd Páll Marvin.
liðin á að skora. Það var svo ekki fyrr
en undir lokin að ÍBV náði þriggja
marka forystu, 26-29 en síðustu tvö
mörk leiksins skomðu heimastúlkur
og lokatplur því 28-29.
Mörk ÍBV: Zofia Pastor 12, Alla
Gokorian 7, Guðbjörg Guðmanns-
dóttir 6, Eva Björk Hlöðversdóttir 2,
Darinka Stefanovich 1, Anastasia
Patsion 1.
Varin skot: Florentina Grecu 13/1.
| Handbolti karla: IBV 30 Stjarnan 18
Roland Eradze átti stórleik
Eyjamenn léku á föstudag sinn þriðja
leik í suðurriðli Islandsmótsins þegar
þeir tóku á móti mikið breyttu liði
Stjömunnar. Gengi Garðbæinga var
ekki gott á síðasta tímabili og hefur
liðið eitthvað veikst síðan þá, þannig
að flestir áttu von á auðveldum sigri
ÍBV. Gekk það eftir og ÍBV sigraði
með tólf mörkum, 30-18 en sigurinn
var ekki án fyrirhafnar.
Gestimir komu vemlega á óvart
fyrsta stundarfjórðunginn með því að
halda aftur af liði IBV og vom á
tímabili marki yfir, 4-5. Enþaðvirðist
í flestum tilvikum vera þannig í
handbolta, þegar missterk lið mætast
að fyrstu tíu mínútumarerjafnræði en
svo skilja leiðir. Þannig var það í
þessum leik og í hálfleik var staðan
15-10íyrirÍBV.
Eyjamenn byrjuðu svo af krafti í
síðari hálfleik, skomðu fyrstu fjögur
mörkin og gerðu strax út um leikinn.
Leikur IBV var hins vegar ekki nógu
góður og þá sérstaklega sóknar-
leikurinn.
Það að skora þrjátíu mörk gegn
Stjömunni er ekkert afrek en eins og
hjá kvennaliðinu, þá em Eyjamenn
enn á undirbúningstímabilinu og eiga
því enn talsvert inni. Eyjamenn upp-
skáru tvö rauð spjöld í leiknum,
línumennimir Kári Kristjánsson og
Svavar Vignisson fengu báðir að líta
rauða spjaldið.
Lokatölur urðu 30-18, sannfærandi
sigur á einu af slöku liðum Islands-
mótsins í ár.
Mörk ÍBV: Zoltán Belanyi 10/6,
Robert Bognar 6, Sigurður Ari
Stefánsson 3, Samúel ívar Amason 3,
Miljan Stanic 3, Andrija Adzic 2,
Grétar Eyþórsson 1.
Varin skot: Roland Eradze 26/4.
| Golf: Velheppnuð Bændaglíman
Þor sem Danir unnu Færeyingo
Bændaglíman fór fram á
laugardaginn en mótið markar
yfirleitt endalok tímabilsins í golfi.
Alls tóku tæplega fjörtíu kylfingar
þátt í mótinu að þessu sinni en
bændurnir voru þeir Kristleifur
Magnússon og Emil Marteinn
Andersen, sem báðir koma úr
hinum víðfræga árgangi 76. Þeir
félagar mættu í dönskum og
færeyskum búningum en veðrið
var ágætt á meðan mótið stóð og
ekki að sjá annað en að menn hafi
skemmt sér vel.
Bændaglíman fer þannig fram
að kylfingar mæta á svæðið og er í
kjölfarið skipt í tvo hópa, sem
síðan leika gegn hver öðrum undir
forystu bændanna tveggja. Það Iið
sem tapar, þjónar sigurliðinu svo
til borðs í kvöldmáltíð sem haldin
er eftir þetta. Færeyingar hafa
lengi verið kúgaðir af dönsku
krúnunni og það breyttist ekkert á
golfvellinum í Eyjum, Danski
hópurinn sigraði sannfærandi.
FÆREYINGURINN og Dandinn, Magnús og Emil Marteinn sem fór fyrir
sigurliðinu.
Tveir leikir á
tveimur dögum
Það verður í nógu að snúast hjá
karlaliði ÍBV um helgina. Á
morgun, föstudag leikur liðið gegn
Víkingum á útivelli en Vikingar em
með jafnmörg stig og ÍBV eða
fjögur. Daginn eftir leikur liðið svo
í 32ja liða úrslitum SS-bikar-
keppninnar þegar þeir leika gegn
B-liði HK og fer leikurinn fram í
Kópavogi. Aðeins munu líða um
átján klukkustundir á milli leikja en
Eyjamenn ákváðu að gera þetta
svona í spamaðarskyni.
Þess má svo geta að B-lið IBV
leikur einnig í 32ja liða úrslitum um
helgina en á sunnudag leikur liðið
gegn Þrótti Vogum og fer leikurinn
fram á heimavelli Þróttara.
Sprettsundmót
Um helgina verður Sprettsundmót
ÍBV haldið í Sundhöllinni. Þegar
hafa um 250 keppendur skráð sig til
leiks og má búast við spennandi
keppni alla helgina. Keppt verður í
2 aldurshópum 12 ára og yngri og
13 ára og eldri. Keppt verður frá
8.15 á laugardaginn til 18 um
kvöldið.
Keppni hefst svo á sunnudaginn
kl. 8.30 og mun standa til 14.00.
Bæjarbúar eru hvattir til að kíkja
við í Sundhöllinni og hvetja okkar
sundmenn sem að þessu sinni em
24 og líta einnig augurn framtíðar-
sundmenn okkar Islendinga.
ÍUSA
fslenska kvennalandsliðið í knatt-
spyrnu hefur verið síðustu daga í
keppnisferð til Bandaríkjanna þar
sem liðið hefur leikið tvo leiki gegn
Ólympíumeistumm Bandaríkjanna.
Fyrri leikurinn fór frarn á laugardag
og sigmðu þær bandarísku 4-3
með ntarki í uppbótartíma en þær
Margrét Lára Viðarsdóttir og Olga
Færseth voru báðar í byrjunar-
liðinu. Síðari leikurinn fór fram í
gær, miðvikudag en úrslit leiksins
vom ekki kunn þegar blaðið fór í
prentun.
Atli bestur
Á heimasíðu knattspyrnudeildar
karla var greint frá því í síðustu
viku að samkvæmt vali lesenda
síðunnar þá sé Atli Jóhannsson
besti leikmaður ÍBV árið 2004.
Hægt var að greiða atkvæði með
því að senda inn tölvuskeyti á
umsjónarmenn síðunnar og vom
atkvæði svo talin. Tryggvi
Bjamason var um leið kosinn
efnilegastur en Tryggvi er nú með
lausan samning.
Framundan
Föstudagur 1. október
Kl. 19.15 Víkingur-ÍBV Suðurriðill.
Laugardagur 2. október
Kl. 14.00 ÍBV-Víkingur 1. deild
kvenna.
Kl. 16.00 HK2-ÍBV SS-Bikar kaila.
Kl. 16.30 ÍV-ÍV B Körfubolti.
Sunnudagur 3. október
Kl. 13.00 Þróttur-ÍBV2 SS-Bikar
karla.
Kl. 13.00 ÍVB-ÍV Körfubolti
Um hclgina:
Fjölliðamót, 4. fl. karla í
Framhúsinu.