Harmoníkan - 01.05.1988, Síða 3
HARMONIKAN
GEFIÐ UT AF
TILSTUÐLAN S.Í.H.U.
Útgefendur og áb.menn:
Hilmar Hjartarson Ásbúð 17,
Garðabæ, sími 91-656385
Þorsteinn Þorsteinsson Torfu-
felli 17,111 R.vík.sími 91-71673
Gíróreikn. nr. 61090-9.
Blaðið kemur út þrisvar á ári.
í október, endaðan febrúar og í end-
aðan maí.
Forsíðumynd efri — sjá unga fólkið
og Harmoníkan bls. 6—7.
Forsíðumynd neðri — sjá á
skemmtifundi F.H.U.R. bls. 22.
Auglýsingaverð:
1/1 síða kr. 7200
1/2 síða kr. 4800
1/4 síða kr. 3.000
1/8 siðakr. 1.800
Smáauglýsingar (1,5 dálksenti-
metri) kr. 500 + kr. 100 fyrir hvern
auka dálksentimetra.
PRENTTÆKNI
Lesandi
góður!
Gleðilegt sumar. Nú er vetur
úti, og starfsemi harmoníkufélag-
anna að leggjast í dvala. Mörg
félögin hafa endað starfsemina
með tónleikum og dansi, en lítið
hefur heyrst af öðrum.
Stjórn SÍHU, ákvað fyrir
nokkrum árum, að halda lands-
mót þriðja hvert ár, en sú ákvörð-
un byggðist á því að gefa félögum
tækifæri til að ferðast erlendis,
eða taka á móti erlendum gestum,
án þess að fyrirhugað landsmót
setti strik í reikninginn. Koma
erlendra gesta hefur þó ekki farið
eftir því, hvað okkur hentaði,
enda verður það alltaf að vera
samkomulag, gesta og gestgjafa á
hverjum tíma. Þá hafa ferðir
harmoníkuunnenda til útlanda
verið litlar, ef frá er talinn lítill
hópur úr FHUR, sem fór til
Bergen í Noregi, til að spila þar á
tónleikum. Þeir i FHUR, eru þó
ekki alveg af baki dottnir, því að
nokkrir þeirra eru á förum til
norður Finnlands, í vikuferð upp-
úr miððjum júní. Verða þeir þó
komnir aftur til baka það tíman-
lega, að þeir ættu að geta verið
með í Galtalæk, 1.2. og 3. júlí (sjá
á öðrum stað í blaðinu). Þangað
viljum við hvetja alla harmoníku-
unnendur að koma, og gildir þá
einu, í hvaða félagi þeir eru, eða
hvort þeir eru yfir höfuð, í ein-
hverju harmonikufélagi.
Litlar ábendingar höfum við
fengið frá lesendum, um efni í
blaðinu. Þó var því gaukað að
okkur, að það hefði ekki verið
skrifað neitt um nýjar har-
moníkuplötur. Þar vandast nú
málið.
í mörgum erlendum har-
moníkublöðum er þetta gert. Er
þá ákveðinn aðili, sem tekur þetta
að sér, og flokkar plöturnar eftir
gæðum. Að okkar mati, er það
alltaf álitamál, hvaða plötur eru
góðar, þar sem smekkur fólks er
mismunandi, og ætlum við þvi
ekki að hætta okkur út á þá hálu
braut. Þó munum við, í framtíð-
inni geta þess, ef á markaðinn
kemur ný íslensk harmoniku-
plata.
Ekki höfum við neinar fregnir
af harmoníkunni, sem var á for-
síðu síðasta tölublaðs. Hallast
sumir að því, að „lúðurinn“ hafi
verið smíðaður og settur á hér á
íslandi, en við erum með fyrir-
spurnir erlendis, bæði á norður-
löndunum og í Þýskalandi. Enn-
þá vonum við, að einhver hirðu-
samur hafi forðað henni frá glöt-
un, því þetta hefur verið merkis-
gripur.
Að endingu viljum við biðja
alla velunnara, um að hjálpa okk-
ur að breiða blaðið enn frekar út.
Þeir eru víða harmoníkuunnend-
urnir sem ekki hafa séð blaðið, en
gætu hugsanlega gerst áskrifend-
ur. Fjölgun áskrifenda, og skilvis
greiðsla áskriftargjalds, getur
hjálpað mikið til, að halda niðri
verði blaðsins.
Með Harmoníkukveðjum
Hilmar Hjartarson.
Þorsteinn Þorsteinsson.
3