Harmoníkan - 01.05.1988, Blaðsíða 22
HARMÖNIKUUNNENSUM
Á ferð með
harmoníkuunnendum
Félag Harmoníkuunnenda sendir
hér frá sér sína þriðju hljómplötu
en það þótti við hæfi að minnast 10
ára afmælisins sem var 8. september
síðastliðinn, meðal annars með út-
gáfu þessarar plötu.
Fyrri plöturnar Líf og fjör með
harmoníkuunnendum og Meira fjör
með harmoníkuunnendum hafa ein-
kennst af einleik og dúettum en stærri
hópar eða hljómsveitir verið í minni-
hluta og efni þeirra aðallega danslög.
Á þeim leika einnig nokkrir utan-
félagsmenn sem gestir en á þessari
plötu er þessu snúið við og mikill
meirihluti laganna leikinn af hljóm-
sveitum félagsins og allir sem nikkuna
handleika félagar í F.H.U. Reykjavík
og danslög i minnihluta.
Nafn þessarar plötu „Á ferð með
harmoníkuunnendum“ er ef til vill
dæmigert fyrir starfsemi félagsins.
Alla tíð hafa ferðalög hér innanlands
verið snar þáttur í henni og einnig
hafa hópar farið til útlanda, nú síðast
í október til Noregs til þátttöku í
harmoníkuhátíð í Grieghöllinni í
Bergen og lék þar lögin sem eru á A
hlið þessarar plötu. Stjórnandi þessa
hóps er Þorvaldur Björnsson. Sú
hljóðritun var gerð skömmu fyrir þá
ferð. Síðasta lagið á A hlið leikur hinn
16 ára efnilegi harmoníkuleikari
Jakob Yngvason, hann spilar einnig
eitt lag á B hlið og eru þetta fyrstu lög-
in sem hljóðrituð eru með honum sem
einleikara en hann hefur árum saman
leikið í hljómsveitum félagsins og ger-
ir enn. Á B hlið er hinsvegar á ferð 20
manna sveit sem jafnan kemur fram
fyrir félagið þar sem því verður við
komið, svo sem ef tekið er þátt í úti-
skemmtunum á landsmótum
harmonikuunnenda, í útvarpi og
sjónvarpi, einnig á skemmtunum
félagsins, en hún er plássfrek og því er
það sjaldnar en skildi. 20 manna
hljómsveitinni stjórnaði Reynir Jón-
asson þegar þetta var hljóðritað í maí
1985, en nú hefur Þorvaldur Björns-
son tekið við stjórn hennar. Enda-
hnútinn á B hlið hnýtir svo einn af
okkar þekktari nikkurum Jóhannes
Pétursson, sem áratugum saman hef-
ur leikið á dansleikjum og skemmtun-
um ýmis konar um landið þvert og
endilangt. Lagið Toska mun þó að
hans eigin sögn, vera fyrsta hljóðrit-
unin sem gerð er með honum sem
„sólista" og var þar tími til kominn.
Stjórn félagsins færir öllum sem
koma við sögu við gerð þessarar plötu
bestu þakkir.
Jón Ingi Júlíusson.
Grettir
í Svíþjóð
Harmoníkuleikarinn Grettir
Björnsson fór til Svíþjóðar á síðasta
ári, til að spila á tónleikum. Tónleik-
arnir eru nefndir Frosini-kvöld, og er
það Frosinisállskapet í Svíþjóð sem
stendur fyrir þeim. Það eru margir
snjallir harmoníkuleikarar sem koma
fram á þessum tónleikum, og auk
Grettis, léku þarna Olle Johnny, Nils
Flácke, Erik Frank, Sixten Wallin og
fleiri góðir nikkarar.
Grettir er fyrsti íslendingurinn til að
spila á þessum tónleikum, en sú hug-
mynd hefur skotið upp kollinum, að
fá ungt fólk frá öllum norðurlöndun-
um, til að koma fram á tónleikunum
næsta haust.
18
Frá vinstru BengtSjöberg, GrettirBjörns-
son, Lars Ek og Karl Erik Holmgren.