Harmoníkan - 01.05.1988, Síða 23

Harmoníkan - 01.05.1988, Síða 23
Um mánaðarmót apríl-maí síð- astliðinn var þýsk þjóðlaga- hljómsveit stödd hér, á Hótel Borg. Við brugðum okkur á tónleika, í hlé- inu fengum við leyfi til að tala við hljómsveitarstjórann og harmoníku- leikara hljómsveitarinnar. Við spurð- um þá um hljómsveitina og harmon- íkuáhuga í Þýskalandi. Hljómsveitin sem heitir „Original Tangwitztaler“ kemur frá Svartaskógi í Bæjaralandi var stofnuð 1980, í henni eru átta manns og sjö af þeim hafa verið með frá upphafi. Hljómsveitarstjórinn heitir Giinter Bauer og segir hann þá vera hér á vegum þýsk íslenska félags- ins, en boð frá félaginu kemur einu- sinni á ári. Þeir leika aðallega þjóð- lagatónlist, hún er vinsæl í Þýska- landi, Austurríki og allt til Júgósla- víu. Baum A nton harmoníkuleikari Original Tangwitztaler og nokkrir ur hljómsveitinni d Hótel Borg. Baum Anton heitir harmoníkuleik- arinn, hann telur harmoníkuáhuga vera mikið á uppleið i Þýskalandi, mest er hljóðfærið notað inn á heimil- unum og eru börn og unglingar með í síauknum mæli. Ennfremur sagði hann að i sambandsríkinu Baden Wúrttenberg fái harmoníkuhljóm- sveitir styrk, (fjárveitingu) það er að segja ef eingöngu eru harmoníkur í þeim, og skipaðar frá 20—60 manns. Árleg harmoníkumót eru í Stutt- gart, þau eru að hluta til keppni, og svo auðvitað skemmtun. Klingenthal er lítill bær í suður-Þýskalandi, þekktur fyrir tónlistarlíf, þá helst jóðl og Bæjaratónlist. Menn úr hljóm- sveitinni hafa leikið þarna. Þar má heyra þessa sérstöku músík hljóma um allt, langt fram á kvöld, úti sem inni. Baum Anton finnst þeim hafa verið vel tekið á íslandi, fólk láti óspart í ljósi að því líkar þessi gerð tónlistar. Hann hefur engan har- moníkuleikara hitt hérlendan, né heldur veit nokkuð um slík mál hér að öðru leiti (úr þessari fáfræði var bætt snarlega). Litið nokkuð á landið? Jú, komið að Gullfossi, Geysi og að Bláa lóninu. Við kvöddum þessa heiðurs- menn sem gjarnan hefðu viljað ræða Leikið tveim skjöldum Reynir Jónasson sendi nýlega frá sér harmoníkuplötu. Á hlið A eru ein- göngu íslensk lög, í útsetningu Rík- harðs Arnar Pálssonar, en hann er jafnframt höfundur eins lagsins. Það hefur verið vandað til útsetninga, sér- staklega á íslensku lögunum, og má þar heyra ýmiss ásláttarhljóðfæri og strengi, auk þeirra Friðriks Karlsson- málin mun Iengur, hléið var búið og fjöldi gesta beið í eftirvæntingu. H.H. ar á gítar og Þórðar Högnasonar á bassa, en þeir spila með Reyni á báð- um hliðum. Viljum við hvetja alla þá harm- onikuunnendur, sem eiga eftir að kaupa plötuna, að hafa samband við Reyni, símleiðis eða með bréfi og kaupa hana milliliðalaust, þvi platan er vel þess virði. 19

x

Harmoníkan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Harmoníkan
https://timarit.is/publication/1087

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.