Harmoníkan - 01.05.1988, Blaðsíða 6
Unga fólkið
og harmoníkan
Mörgum þykir harmoníkuleik-
arar hafa háan meðalaldur
víðast hvar á landinu, en er það eitt-
hvað að breytast?
Skiljanlega er meðalaldur hár, har-
monikufélögin á landinu eru stofnuð
að stórum hluta af mönnum sem léku
á harmoniku áður en stóra lægðin
reið yfír landið og feykti bókstaflega
að mestu harmoníkunni burt sem
dansleikjahljóðfæri, inn á heimilin
þar sem hún var geymd og oft við mis-
jöfn skilyrði. í öllu falli var hljóð-
færið ekki hátt skrifað hjá almenningi
fyrir um og yfir 10 árum. Nokkrir hér-
lendir snillingar gáfu þó almenningi
af og til kost á að heyra opinberlega í
nikkunni, á þessu tímabili.
Heimir Harðarson
Síðastliðin tíu ár hafa landsfélögin
unnið markvisst að því að auka álit
fólks á harmonikunni, og breyta áliti
hennar til hins betra. Þetta hefur bor-
ið þann árangur að unga fólkið er æ
meir að koma með í spilið, og er það
trú mín ef svo heldur sem horfir að
kaflaskifti verði í meðalaldursmálum
á næstkomandi 10 árum.
Ég náði tali af nokkrum ungmenn-
um sem öll voru á einu máli um ágæti
harmoníkunnar, og höfðu mikinn
áhuga á að halda áfram námi. Einnig
hef ég haft spurnir af mun fleira ungu
fólki sem er við harmoníkunám. Best
er að byrja ungur, það er enginn vafi,
þá næst mestur árangur. Lengi býr að
fyrstu gerð segir máltækið.
Við skulum rabba nokkur orð við
unga fólkið.
Heimir Harðarson
Heimir leikur með hljómsveit Har-
monikufélags þingeyinga og er 13 ára.
Hann byrjaði sjö ára að læra heima í
Mývatnssveit hjá móður sinni sem er
Sigríður Einarsdóttir tónlistarkenn-
ari, faðir hans er Hörður Sigurbjarn-
arson, þau eiga heimili í Reykjahlíð.
Heimir fékk áhugann af afa sínum,
einnig föðurbróður, sem er Árni
Sigurbjarnarson skólastjóri tónlistar-
skólans á Húsavík. Hann hefur áhuga
á að halda áfram með harmoníkuna.
Arni Gunnarsson
Árni Guðmundsson er 13 ára og er
í hljómsveit Harmonikufélags þing-
Árni Guðmundsson
eyinga. Byrjaði að leika á harmoniku
sjö ára, og verið 5 vetur í námi Tón-
listarskóla Húsavíkur. Áhugann fékk
Árni af pabba sínum, auk þess leika
allir í föðurættinni á harmoníku. Svo
skýtur hann inní til að leggja áherslu
á orð sín að Ingvar Hólmgeirsson
fyrrverandi formaður S.Í.H.U., sé föð-
urbróðir sinn, einnig sé bæði spilað
og sungið í báðum sínum ættum.
Hann á heima á Húsavík, foreldrar
eru Helga Jónína Stefánsdóttir og
Guðmundur Hólmgeirsson.
Heimir Tyr Svavarsson
Heimir Týr Svavarsson
Heimir er í Harmoníkufélagi þing-
eyinga og er 15 ára, í hljómsveit fé-
lagsins og hefur verið í harmoníku-
námi Tónlistarskóla Húsavíkur í fjóra
og hálfan vetur. Heimir segist fyrst
hafa byrjað á blokkflautu en harmon-
íkan kom þegar hann var sjö ára.
Áhuginn hefur að vísu gengið í bylgj-
um en ég vona samt hann aukist síðar
meir segir hann. Verið búsettur á
Húsavík frá þriggja ára aldri, for-
eldrar eru Svavar Jónsson og Inga G.
Sumarliðadóttir.
Drífa Þórarinsdóttir
Þegar ég einn daginn frétti af ungri
stúlku sem er að læra á harmoníku
suður í líafnarfirði beið ég ekki boð-
anna. Innan fárra daga tók ég upp
símtólið og bað um viðtal. Það var
auðsótt og eitt kvöldið dreif ég mig
suður í fjörð brynjaður myndavél og
skriftólum, ekki vegna þess ég héldi
að um stórsnilling væri að ræða, held-
6