Harmoníkan - 01.05.1988, Síða 5
Merkileg
harmoníka
Hér kemur harmoníka sem teljast
verður athygliverð.
Um aldur hennar er ekki nákvæm-
lega vitað, en Saxe Gárd nokkur frá
Fredrikstad í Noregi eignast hana
1928 og á hana alla sína lífstíð. Næsti
eigandi er bróðir hans Hákon Saxe-
gárd, eða þar til í fyrra að hún kemur
hingað til lands. Það er vitað að hljóð-
færið er afar lítið notað, en geymslu-
staður í það minnsta síðastliðin 20 ár
getur ekki hafa talist sá besti fyrir har-
moníku, uppi á háalofti þar sem hita-
stig og raki breyttist jafnt og úti.
Hún þarfnast að sjálfsögðu við-
gerðar, en hve mikið liggur ekki ljóst
fyrir. Er ítölsk af tegundinni H.B. 120
bassa.
Rúmlega fjórar og hálf áttund, og
hefur 2 skiptingar í hljómborði, þeim
er komið fyrir þar, rétt innan við
innstu hnapparöðina, skipting fyrir
bassa er einskonar sleði, sem dreginn
er til og frá.
Hæð hljóðfærisins er óvenju mikil,
alls 53 cm. Litur hvítur, og lögð skel-
plötum, mikið og fagurlega skreytt.
Hlíf og nótnaborð er krómað. Eig-
andi — Bragi Hlíðberg, frá 1987.
Hittumst í sumar 1. 2. og 3. júM
Undanfarin sumur hafa nokkrir
félagar úr FHUR, hópað sig saman og
farið helgarferð með tjald, svenpoka
og harmoníku.
Þetta hefur orðið án þess að um
skipulagða ferð væri að ræða, og án
þess að nokkur sérstakur ákvæði stað
og stund. Fólk einfaldlega hringdi sig
saman til að láta hvert annað vita, síð-
an var lagt af stað, hver á sínum bíl.
Eins og gengur, þá hefur veðrið verið
misjafnt, en ferðirnar alltaf ánægju-
legar. Þegar fólk hefur svo rætt um
þær, sín á milli á eftir, hefur það kom-
ið í ljós, að margir hefðu viljað vera
með, sem ekki voru látnir vita.
Nú er ætlunin að koma saman í
Galtalækjarskógi, helgina 1. 2. og 3.
júlí, og eiga saman góðar stundir. All-
ir harmoníkuunnendur eru velkomnir
í hópinn, hvort sem þeir eru í ein-
hverju félagi eða ekki. Engin skipu-
lögð dagskrá verður, aðeins komið
saman og notið samverunnar, en um-
fram allt, að taka með sér góða skap-
ið.
Við skulum safnast saman föstu-
dagskvöldið 1. júli og hafa samband
við landvörð, en hann á von á okkur
og mun visa okkur á ákveðinn stað
sem okkur hefur verið úthlutað.
Umfram allt, sýnum góða um-
gengni og prúðmannlega framkomu.
5