Harmoníkan - 01.05.1988, Page 8

Harmoníkan - 01.05.1988, Page 8
Reynir Jónasson og Sigurður Hallmars- son Guttormur Sigfússon og Jóhann Sig- urðsson formaður F.H.V.E. Á laugardagskvöldið var svo hátíð- in sett af Aðalsteini ísfjörð, kynnir og veislustjóri var Sigurður Friðriksson Heimamenn, formenn landsfe'laga, heiðursgestur og eiginkonur á heimili Aðalsteins ísfjörð kvöldið fyrir 10 ára afmæli H.F.Þ. Harmoníkufélag Þingeyinga 10 ára Harmoníkufélag Þingeyinga varð 10 ára 4. maí 1988, en hátíða- höld til að minnast timamótanna fóru fram í Félagsheimili Húsavíkur 16. apríl síðastliðinn. Stjórn félagsins bauð öllum formönnum harmoníku- félaganna í landinu til samkomunnar, en eins og gengur gátu ekki allir kom- ið. Svo óheppilega vildi til að hið versta vetrarveður skall á nokkrum dögum áður og gerði kolófært víða um land. Að sögn Aðalsteins Isfjörð formanns H.F.Þ., munaði minnstu að hátíðinni yrði aflýst. Sem betur fór tóku Þingeyingar rétta ákvörðun um að láta verða af þessu, úr veðrinu rættist á síðustu stundu. Einu sinni var fluginu aflýst frá Reykjavík, og áhyggjur skutu upp kollinum um stund. Svo kom kallið, gjörið svo vel að ganga um borð í flugvélina Nátt- fara til Húsavíkur. Um leið flugu áhyggjur brott og tilhlökkunin tók völdin. Á Reykjavíkurflugvelli komu í vélina formaður H.R. Karl Jónatans- son, fulltrúi F.H.U.R. Hilmar Hjart- arson, formaður Ingimar Einarsson H.U.V. (á allra síðustu stundu sjá ann- arsstaðar í blaðinu) og heiðursgestur- inn Gunnar K. Guðmundsson. Á Húsavíkurflugvelli tóku félagar úr H.F.Þ. á móti okkur með Aðalstein ís- fjörð i fararbroddi. Um kvöldið bauð Aðalsteinn og kona hans Unnur full- trúum, formönnum og mökum ásamt stjórn félags H.F.Þ., til kvöldverðar á heimili sínu. Þetta var vel til fundið, því mikið var skrafað og skeggrætt, ekki síst stuðlaði boðið að auknum kynnum milli heimamanna og gesta. Þarna voru komnir formaður H.F.H. formaður S.Í.H.U. Sigurður Hall- marsson fór yfir sögu félagsins frá upphafi til þessa dags, af pappírsrenn- ing einum löngum mjög. Á tónlistar- sviðinu komu fram Jón Aðalsteinsson og Reynir Jónasson sem léku fyrir matargesti, 16 manna harmoníku- hljómsveit H.F.Þ., ásamt gítarleikara lék undir stjórn Jóns Aðalsteinssonar. Hans kynning var létt og upplífgandi, lagið „Serenade“ sem stjórnandi kynnti sem vinsælt lag að syngja und- ir glugga unnustunnar í Miðjarðar- hafslöndum, skóp heilnæmt and- rúmsloft. Sigurður Hallmarsson og Jón Aðal- steinsson léku saman nokkur lög, og síðast en ekki síst var heiðursgestur- inn Gunnar K. Guðmundsson kynnt- ur, hann lék fjölda laga og var ákaft fagnað. Það vekur alltaf athygli að sjá Gunnar snúa hljóðfærinu við og leika með vinstri hendi á hljómborðið, eitt er víst að engan hefur maður séð leika slíkt eftir, Reynir Jónasson lék undir með Gunnari á bassana. Sér tími var tekinn frá fyrir for- menn og fulltrúa annarra félaga. Menn komu fram hver af öðrum og létu orð falla til afmælisbarnsins, færðu því gjafir og blóm. Allt var vel skipulagt og gekk snurðulaust fyrir sig, á allan hátt til sóma fyrir H.F.Þ. f lokin var stigin dans fram eftir nóttu með undirleik heimamanna og hljóm- sveitar frá Akureyri. Ég vil fyrir hönd okkar hjóna senda kveðjur til Þingeyinga með þakklæti fyrir höfðinglegar móttökur. H.H. Guttormur Sigfússon formaður H.F.H., fimmtugur. Á 10 ára afmælis og árshátíð H.F.Þ. erl7. apríl vargenginn ígarð var veislugestum tilkynnt aðstórafmæli værigengið ígarð Hérsést Jóhann Sigurðsson form. F.H.U.E., mæla tilafmœlisbarnsins og afhenda gjafir honum til handa. Sigurður Friðriksson til hægrL 8

x

Harmoníkan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Harmoníkan
https://timarit.is/publication/1087

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.