Harmoníkan - 01.05.1988, Síða 12

Harmoníkan - 01.05.1988, Síða 12
Hörður Hákonarson Hörður Hákonarson er höfundur lagsins Sjómannapolka sem hlaut þriðju verðlaun i gömludansa- keppni Hótels Borgar, sem haldin var á nýliðnum vetri. Til þess að vita eitt- hvað nánar um Hörð, þá skulum við láta hann sjálfan segja frá. Ég er fæddur í Reykjavík. Foreldrar mínir voru Hákon Jónsson, ættaður úr Reykhólasveitinni og Sigurborg Karlsdóttir ættuð úr Strandasýslu. Ég er ljósmyndari að atvinnu. Konan mín er Þórdís Sveinsdóttir, ættuð úr Skaftafellssýslu, og eigum við tvo syni. Þegar ég var 15 ára, vildi ég ólmur fá mér mótorhjól, en það var ekki við það komandi, ég gæti drepið mig á því. Þetta var á þeim tíma, þegar fyrstu skellinöðrurnar voru að koma til landsins. Jæja, fyrst ég mátti ekki kaupa mótorhjól, vildi ég fá mér harmoníku. Jú, jú það var allt í lagi, ég gæti varla drepið mig á henni. Ég hringdi þvi í Karl Jónatansson, keypti af honum harmoníku og byrjaði i tíma þá nýorðinn 16 ára. Ég hafði aldrei átt hljóðfæri áður, en pabbi átti munn- hörpu eða réttara sagt munnhörpur af ýmsum gerðum, því hann var þó nokkuð góður munnhörpuleikari. Við erum 9 systkinin og alltaf á jól- unum var gengið í kringum jólatréð og pabbi spilaði á munnhörpuna. Móðir mín lærði á orgel úti í Flatey á Breiðafirði, hjá ömmu Atla Heimis, en orgelið hennar sá ég aldrei, því að hún varð að selja það, þegar þau hófu húsbyggingu. Ég fékk strax mikinn áhuga á har- moníkunni, þegar ég var byrjaður í tíma hjá Karli. Mig minnir, að ég hafi verið tvo vetur hjá honum. Á þessum tíma fékk Karl til sín þýskan kennara, Georg Kulp, sem var fagottleikari hjá sinfóníunni. Ég man vel eftir fyrsta tímanum hjá honum. Ég var þá að æfa marsúrka, Gleðihopp. Hann spyr mig, hvað ég hafi verið að æfa. Ég sýni honum það og hann setur á sig har- moníkuna og spilar lagið yfir eins og að drekka vatn, en hafði aldrei séð það áður. Það var alveg sama, hvað var sett fyrir hann, hann las allt beint af blaði í fyrsta sinn, enda líka sin- fóníumaður. Með okkur tókst góður kunningsskapur og var hann meira og minna heimagangur á heimili mínu, meðan hann dvaldist hér á landi. Emil Adolfsson var einnig nemandi hans, og bauð Georg okkur með sér til Þýskalands eitt sumarið og var það virkilega gaman. Árið 1962, eða eitthvað í kringum það, var haldið námskeið í tónfræði á vegum Félags íslenskra dægurlaga- höfunda í Breiðfirðingabúð. Var dr. Hallgrímur Helgason fenginn til að kenna, en eitthvað var þetta stuttur timi, að mig minnir. Við Ásbjörn Ó. Jónsson heitinn, tókum okkur þá til og fórum í einkatíma til dr. Hallgríms, en hann bjó þá í Garðastrætinu. Við vorum alltaf samferða í tíma og ein- hverju sinni er við vorum að koma í tíma, hafði stigagangurinn verið bón- aður, svona heldur í meira lagi. Það var motta fyrir framan dyrnar hjá Hallgrími. Ásbjörn hringir dyrabjöll- unni, stígur um leið á mottuna og skellur kylliflatur, en í því opnar Hall- grímur og bregður nú heldur en ekki í brún. Ásbjörn var nú fljótur á fætur, enda kattliðugur, en Hallgrímur kall- aði í Valgerði konu sína og bað hana að henda fjandans mottunni hið snar- asta út í öskutunnu. Tímarnir hjá Hallgrími voru mjög ánægjulegir, enda maðurinn sérlega skemmtilegur og mikill húmoristi. Því miður vorum við bara þennan eina vetur hjá honum, svo að kunnáttan er ekki upp á marga fiska. Ég snerti varla harmoníku í mörg ár, því að nikkan sem ég átti, var frekar léleg og áhug- inn því lítill. Fyrir u.þ.b. fjórum árum keypti ég mér aðra, reyndar notaða, en mjög góða harmoníku, og fór þá áhuginn að glæðast á ný. Hvað lagasmíði varðar, þá hef ég svo sem ekki samið mörg lög, aðeins gert þetta að gamni mínu, þegar efnt hefur verið til danslagakeppni. Mér finnst lofsvert framtak hjá Hótel Borg að halda þessa keppni. Ég hef áður tekið þátt í danslagakeppni hjá S.K.T. og Félagi ísl dægurlagahöfunda, man ekki hvaða ár. Fékk þá þriðju verð- laun fyrir Gunnuræl og önnur verð- laun fyrir Dansgleði, við texta Núma Þorbergs, en það er polki. Eins og ég sagði áðan, hef ég sett saman nokkur lög að gamni mínu, þegar eitthvað hefur staðið til. Annars lít ég ekki á mig sem lagasmið og hef engan áhuga á að semja fyrir skúff- una. Ég undirrit/aður/uð óska eftir að gerast áskrifandi af tímaritinu HARMONÍKAN. Vinsamlegast sendið mér blaðiö frá upphafi ( ) eftirtalin tölublöð____________________________ frá og meö næsta blaði Nafn............................................................... Heimili............................................................ Póstnúmer.......................................................... Póstdreifingarstöð................................................. 12

x

Harmoníkan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Harmoníkan
https://timarit.is/publication/1087

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.