Harmoníkan - 01.05.1988, Page 19
Frá Danmörku
Danska harmoníkusambandið
D.H.L. hélt nýlega upp á 10 ára
afmæli sitt þann 19. mars s.l. kl. 16, og
naut hátíðin verndar Henriks prins af
Danmörku. Hátíðin var haldin í Odd-
fellow-höllinni Kaupmannahöfn, en
húsið er í alla staði hið glæsilegasta og
skreytt fögrum tréskurði.
í anddyrinu var ég stöðvaður af TV
3, en það er sjónvarpsstöð fyrir þrjú
norðurlandanna. Ég var spurður m.a.
hversvegna ég væri þarna? Ég svaraði,
m.a til að að taka þátt í þessu stórkost-
lega „programmi“ og eins sem fulltrúi
íslands, fyrir hönd blaðsins. Allt sem
fram fór, var í einu orði sagt, stórkost-
legt og vil ég sérstaklega minnast á
Eric Bouvelle frá Frakklandi, aðeins
16 ára. Annað eins leikið á harmon-
íku, hef ég aldrei heyrt eða séð, og
hefði ég gjarnan farið þessa ferð, til
tækninni, þó að hún hefði gjarnan
mátt vera betri. Ég hafði aldrei hugs-
að mér að ég hlyti fé eða frama af
þessari útgáfu, enda kom hvorugt til
sögunnar. En Svafari er ég þakklátur
fyrir góð og vinsamleg samskipti.
Hann sagði mér að salan hefði gengið
betur en hann hefði þorað að vona.
Platan mæltist vel fyrir af hálfu þeirra
sem ég talaði við, og þeirra, sem á
hana minntust í blöðum.
Einhver taldi dálitið sérstætt fyrir-
bæri að einn og sami maður gæfi út
bæði plötu og bók á sama árinu.
Vera má að ég hafi orðið óþarflega
fjölorður um fornar venjur og önnur
hljóðfæri en harmonikuna, og hafi
ekki veitt henni eins veglegan sess og
hún verðskuldar. Ekki var það ætlun
mín, og persónulega finnst mér að
hlutur hennar í danshljómsveitum sé
nú gerður óverulegri en hún verð-
skuldar og harmonikuleikurinn
kæfður með óhemjulegri blásturstón-
list og trommubarsmíð og stundum
jafnvel hálfgerðu öskurapaspangóli.
Litla tvöfalda harmonikan má nú
heita úr sögunni, en vera má að hún
hafi forðum gengt mikilsverðu hlut-
verki og átt þátt í að koma á fleiri trú-
lofunum og hjónaböndum en nokk-
urt annað hljóðfæri hérlendis.
Og margt aldrað fólk lifnar og
endurvekur lífsgleði liðinna ára ef
hún er handleikin forsvaranlega með
tækni á forna vísu.
þess eingöngu að upplifa það, en með
honum léku mjög góðir franskir tón-
listarmenn, sem komu með honum.
Yngsti harmoníkuleikarinn sem
kom fram á hátíðinni, var aðeins 5
ára, og var hann borinn inn á sviðið í
harmoníkutösku.
Efnisskráin var afar fjölbreytt, allt
frá Mozart til Evert Taube. Lög eftir
Evert Taube, fluttu þau Gia og Filip
Gade, en þau eru barnabörn tón-
skáldsins, Jakobs Gade, en hann
samdi m.a. hinn heimsfræga Tango
Jalousi.
Jeanette Dyremose stofnandi D.H.L.
Lille Palle Andersen kom þarna
einnig fram, en hann hefur verið mik-
ið í sjónvarpinu undanfarið. Mjög há-
tíðlegt var að sjá fleiri hundruð
harmoníkuleikara, klædda mislitum
fatnaði, leika alla saman í lokin, en
tónleikamir fóru hálfa aðra klukku-
stund fram úr áætlun. Um kl. 21, var
gengið inn í annan stóran sal, eftir að
hafa skálað á undan. Það fyrsta sem
blasti við manni þar, var stærðar Effel
turn, sem var komið fyrir upp á sviði
og fallega skreyttur salurinn. í ræðu
minni skilaði ég kveðju frá íslandi, og
bað alla viðstadda að skála fyrir Lille
Palle sem hafði lagt á sig mikla vinnu,
til þess að allt mætti ganga vel.
Lille Palle stóð þá upp, og bað alla
að skála fyrir íslandi, sem var gert, og
hrópað þrefalt húrra.
HermóðurB. A Ifreðsson formaðurþriðja
klubbsins, ásamt einum snjallasta har-
moníkuleikara dana Annette Leffler.
Maturinn var mjög góður, og nóg
af víni var látið fylgja með í mismun-
andi glösum. í lokin fengu allir köku,
sem var útbúin sem lítil harmoníka,
ásamt mokkakaffi.
Á eftir matinn var gengið inn í enn
einn salinn og stiginn dans. Hér léku
mjög góðar hljómsveitir til skiptis, og
að sjálfsögðu, Eric Bouvelle ásamt
félögum, en það var ekki síður stór-
fenglegt en á tónleikunum. Ég fékk
tækifæri til að dansa við Jeanette
Dyramose, en hún átti nýlega 40 ára
afmæli. Hún stjórnar hinni frægu
dönsku kvenna-harmoníkuhljóm-
sveit, og það var einnig hún sem vann
að stofnun D.H.L. — Danska harm-
oníku landssambandsins, Danske
Harmonikaspilleres Landsforbund.
Auðvitað dansaði ég líka við vin-
konu mína Annette Löffler, en hún er
heimsþekktur einleikari á harmoníku.
Hér er mikið að gerast í harmon-
íkumálum, og vil ég aftur minna á
stærsta mótið hér í sumar sem verður
í 30. viku, eða 29. 30. og 31. júli, en
það er haldið skammt frá mér.
Reiknað er með að um 700
harmoníkuleikarar komi þar fram, og
í sumar er búist við þátttöku frá Fær-
eyjum í fyrsta sinn.
Ég verð i fríi þessa daga, og ef ein-
hverjir frá Islandi hafa áhuga á að fá
nánari upplýsingar og koma á mótið,
þá mun ég veita alla þá aðstoð sem ég
get.
Harmoníkukveðjur
Hermóður B. Alfreðsson
Skibsbyvej 82 9800
Hjörring
Danmörku.
15