Harmoníkan - 01.05.1988, Qupperneq 27

Harmoníkan - 01.05.1988, Qupperneq 27
NÝ HARMONÍKUPLATA LEIKIÐ TVEIM SKJÖLDUM 12 harmoníkulög þar af 6 íslensk leikin af Reyni Jónassyni SENDI í PÓSTKRÖFU Útgefandi Reynir Jónasson — Sími 91-25891 Grænland Næsti nágranni okkar landfræði- lega séð er Grænland, þangað má jafnvel sjá í góðu skyggni af hæstu fjöllum á vestfjörðum. það er kannski algengara að landið sjáist í hyllingum, að sögn manna en að hitta að máli sjálfa íbúa landsins er hreint ekki dag- legt brauð. Hvað skyldi vera að gerast þar á tónlistasviðinu, t.d. harmoníku- leik, eru þar margir harmoníkuunn- endur? Undanfarið höfum við reynt að ná sambandi við einhvern slíkan þar, en án árangurs. Danska sendiráð- ið gaf upp einn möguleika sem reynd- ist haldlaus, þeir vissu einfaldlega ekkert. Þó nokkuð samband og sam- vinna er á milli íslands og Grænlands, m.a. fastar flugferðir. Sinfoníuhljóm- sveit íslands fór í tónleikaferð til Grænlands 1987, og tókst hún að sögn afbragðsvel. Ég hitti Árna Elfar píanóleikara og listamann með meiru, hann er í sinfóníunni og var með í grænlandsferðinni. Hann sagði mjög áhugavert að koma þarna og óvenju- legt. Á tískusýningu sem grænlend- ingar stóðu að, komu fram gitar og harmonikuleikari, innfæddir sem voru undirleikarar sýningarinnar, lið- tækir menn. Árni tók upp teiknibók- ina og festi þá félaga á blað, eins og þið getið virt fyrir ykkur hér. Vonandi getum við síðar náð víðfeðmari heim- ildum um hvað grænlendingar eru að gera í þessum efnum. Bestu þakkir til Árna Elfar fyrir að kveikja fyrsta neistann til blaðsins „Harmoníkan“ frá Grænlandi.

x

Harmoníkan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Harmoníkan
https://timarit.is/publication/1087

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.