Harmoníkan - 01.10.1999, Side 7

Harmoníkan - 01.10.1999, Side 7
Sigurður Indriðason Viðtalið Allir landsmótsgestir (1999) muna eftir kvintettinum frá Akureyri fyrir frábæra spila- mennsku. Frá vinstri: Flosi Sigurðsson, Hörður Kristjánsson, þá viðmœlandi minn Sig- urður Indriðason, Atli Guðlaugsson stjórnandi, Einar Guðmundsson og Guðni Friðriks- son. Margir eru þeir sem ekki telja sig hafa neitt að segja viðvíkjandi viðtal þegar þeir eru spurðir, og er viðmælandi minn nú einmitt einn af þeim. Alltaf er það samt svo þeg- ar málin eru rædd við menn, sem lengi hafa stundað ýmis áhugamál að ýmislegt kemur fram sem betra er að hafa á prenti en ekki. En taka verður tillit til hógværðarinnar. Sigurður Indriðason er ekki aðeins vel þekktur innan raða harmoniku- fólks, heldur einnig sem bifreiða- eftirlitsmaður og prófdómari til fjölda ára norðan heiða. Því má og bæta við að maðurinn er mikill húmoristi, traustur sem íjall og einkar ljúfur í viðmóti. Þegar ég bað Sigurð um smá samtal fyrir blaðið vorum við hjónin gestir hans og nutum þar fyllstu gestrisni og góðsemi eins og best verður á kosið. Við vorum á leið norður til Húsavíkur á 20 ára afmælishátíð H.F.Þ. og spáð var vitlausu veðri. Sigurður vissi af ferðum okkar, hringdi og taldi óráðlegt annað en halda kyrru fyrir á Akureyri þar til morguninn eftir. Þannig kom gist- ingin til og erum við Sigurði mjög þakklát fyrir. Þá skulum við skyggnast nánar inn í fortíð þessa manns og kynnast honum ögn betur. Sigurður Indriða- son er fæddur á Birningsstöðum í Ljósavatnsskarði Hálshreppi 4. des- ember 1930. Foreldrar hans voru Indriði Þorsteinsson bóndi og Stein- unn Sigurðardóttir húsmóðir og auk heldur ljósmóðurmenntuð, ættuð frá Bakka í Öxnadal. Indriði var frá Lundi í Hálshreppi. Þau hjónin fluttu að Skógum í Fnjóskadal þegar Sig- urður var tveggja ára og þar átti hann sín bernskuár. Karl nokkur var á heimilinu sem hét Sigurður Helga- son. Hann lék á orgel og var org- anisti í kirkjum sveitarinnar. Sigurð- ur lýsir nú sjálfur framhaldinu. Ég fékk áhuga á að prófa orgelið og kynna mér það og æfði mig nokk- uð í að spila sálma. Harmoniku kynntist ég fyrst um fermingu hjá mági mínum. Sá átti nýja Hohner- nikku, hið ágætasta hljóðfæri en til að komast í þann grip varð ég að stelast þegar freistingin varð öðru yfirsterkari. Mína eigin harmoniku eignast ég nokkru síðar og náði þokkalegum árangri á hana enda byrjaði ég fljótlega að spila á böll- um. Þá voru nú ekki bílar á hverju strái svo að harmonikuna bar mað- ur á bakinu í poka á böllin. Ekki fór betur en svo einu sinni, að ég datt illilega á svelli og harmonikan sprakk á öllum hornum, en mér tókst að líma hana saman og bjarga henni. Ég þótti enginn sérstakur taktsnillingur, enda kunni ég ekki sjálfur að dansa þá. Sautján ára gam- all fluttist ég til Akureyrar. Þar keypti ég mér gamla nikku til að fikta með, mér til ánægju. Þá var ekkert líf í harmonikuleik hér nema hjá nokkrum körlum, svo að hún var fljótlega seld aftur. Næstu 25 ár duttu alveg út varðandi harmoniku- leik en á 50 ára afmæli mínu var mér gefin harmonika. Á þessum tíma var Karl Jónatansson hér við kennslu á Akureyri og naut ég leiðsagnar hans í tvo vetur og bætti mikið bassa- tækni og fingrasetningu. Félag harm- onikuunnenda við Eyjafjörð var stofnað hér 1980 og átti Karl hlut að máli við að drífa í því. Upp úr stofnun félagsins lifnaði í nikkulífinu en þá voru þegar 10-15 manns í námi hjá Karli. Síðan er oft búið að vera gaman í þessu starfi og lærdómsríkt að byrja harmonikuleik með hinum og þessum ásamt að taka þátt í félagsstarfinu. Síðari ár hef ég mest spilað með Guðmanni Jóhannssyni, en áður með Sigurvin Jónssyni og fleirum. Ég hef spilað í hljómsveit F.H.U.E. frá upphafi, Atli Guðlaugsson hefur stjórnað henni með prýði og á Landsmótinu í Varmalandi um árið var lagður mikili metnaður í æfingar enda skilaði það sér. Óneitanlega hefur orðið mikil framför í harmonikuleik. Það orkar ekki tvímælis. Margt má þó enn bæta. Dansleikir eru hjá okkur að vetrinum og spila þá félagarnir, en nokkrar danshljómsveitir eru í gangi. Þá er kaffisala tvo til þrjá sunnudagseftirmiðdaga á vetri. Þar kemur mikið af eldra fólki og er harmonikuleikur allan tímann. Starf- ið innan félagsins hefur einnig aukið samskipti og ferðalög milli annarra félaga í landinu, og gert marga ágæta hluti öllum til góðs. Ef ég lít til baka, aftur til síldaráranna, var ég eitt 7

x

Harmoníkan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Harmoníkan
https://timarit.is/publication/1087

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.