Harmonikublaðið - 01.05.2009, Page 5
Harmonikudagurinn 2009
LTjO' y
sHiii ;■
Ofj;
Ágæti harmonikuunnandi.
Samband fslenskra harmonikuunnenda er
samnefnari fyrir öll harmonikufélögin í land-
inu, sem eru 16 talsins.
Sambandið hefur undanfarin ár staðið að
degi harmonikunnar þar sem töfrar hljóð-
færisins eru kynntir.
Félögin víðsvegar um landið sjá um þessa
kynningu, hvert í sinni heimabyggð og
leggja þau metnað sinn í að dagurinn verði
sem eftirminnilegastur.
Fyrsta harmonikan sem vitað er um kom til
landsins árið 1845, en hljóðfærið verður
fyrst vinsælt hér á landi upp úr aldamót-
unum 1900. Það má segja að það hafi verið
norskir sjómenn sem fyrstir kynntu harm-
onikuna landsmönnum, það voru hnappa-
harmonikur sem þeir voru með og varð
hljóðfærið strax vinsælt hér á landi. Um
1920 kemur píanóharmonikan til sögunnar
og voru landsmenn fljótir að tileinka sér
það hljóðfæri og brátt varð harmonikan eitt
vinsælasta hljóðfærið hérá landi. Hvarsem
dansleikirvoru haldnir var harmonikan alls-
ráðandi og margir muna enn eftir harm-
onikuleikaranum sem sat uppi á sviði í
samkomuhúsinu og hélt uppi fjörinu fram
á morgun. Blómaskeið harmonikunnar má
segja að sé frá 1920 - 1960 en þá verða
straumhvörf í danstónlist og harmonikan
verðurekkieinsvinsæloghún hafði verið.
Ýmis rafmagnshljóðfæri ryðja sértil rúms
hér á landi, sem verður til þess að harm-
onikan nánast hverfur úr danshljómsveitum
um tveggja áratuga skeið.
Fyrsta harmonikufétagið er stofnað 1977 og
íframhaldi af þvífjölgaði félögunum örtum
allt land. Tilgangur þessara félaga er að efla
kynni fólks á þessu fjötbreytilega hljóðfæri
ogað koma hljóðfærinu inn ítónlistarskóla
landsins. Má segja að vel hafi tekist til, þó
svo að enn sé hægt að gera betur.
í dag eru um 350 ungmenni í harmoniku-
námi í tónlistarskólum og hjá einkakenn-
urum víðsvegar um landið og má segja að
það hafi orðið algjör hugarfarsbreyting
meðal ungs fólks, fullorðinna og eldra fólks
varðandi þetta frábæra hljóðfæri, sem bæði
er notað í danstónlist sem og klassískri
tónlist. Margir láta gamlan draum rætast
og hefja nám í harmonikuleik eða þá taka
upp þráðinn að nýju og dusta rykið af
gömlu harmonikunni eða kaupa sér nýja
harmoniku og hefja að spila á þetta frábæra
hljóðfæri.
Það er von Sambands íslenskra harmoniku-
unnenda að sem flestir njóti harmoniku-
dagsins.
Harmonikudagurinn á Akranesi ^
Harmonikuunnendur Vesturlands
7-*>ríri973.
Á Akranesi var harmonikudagurinn haldinn
hátfðlegur að vanda. Hátíðin hófst ld.i4:oo
íTónbergi, sal tónlistarskólans. Það voru
mættir um 80 manns. Hátfðin var haldin f
samstarfi við Tónlistarskólann á Akranesi.
Fram komu Harmonikuunnendur Vest-
urlands, nemendur úr tónlistarskólanum
og svo komu gestaspilarar sem voru félagar
f Harmonikufélagi Selfoss.
Það má segja að vel hafi til tekist, því gestir
hátíðarinnar voru mjög ánægðir í lokin.
Boðið var upp á kaffi og með því. Svo má
geta þess að Pétur Guðjónsson í Harm-
onikufélagi Akraness mætti á svæðið og
hélt sýningu á nokkrum harmonikum sem
hann hefur eignast í gegnum tíðina.
Gleðilegt sumar og ég hlakka til að sjá
ykkur á útihátíðunum í sumar.
Kveðja, G.Helgi Jenssson
Harmonikusafn Péturs Gudjónssonar
5