Harmonikublaðið - 01.05.2009, Blaðsíða 8
Harmonikudagurinn
á Norðfirdi
Heilirog sælirfélagar.
Við hjá Félagi harmonikuunnenda Norðfirði
vorum með skemmtifund 2. maí sl. í Nes-
skóla. Fengum við marga góða gesti á aldr-
inum 3-93 ára. Ragnar Ingi Axelsson 12 ára
spilaði og svo 2 gestir, Karl Kjelm og Bjarki
Friðgeirsson.
Við vorum með margar
harmonikurtilsýnis, bæði
félagsmanna og einnig
sem við fengum lánaðar
hjá bæjarbúum, einnig
settum við upp smá
myndasýningu af starfsemi félagsins,
ferðalögum og gömlum spilurum, notuðum
allar myndir sem við náðum í.
Boðið var upp á kaffi, konfekt og kleinur.
Það voru allir ánægðir með kvöldið bæði
gestirogfélagar.
Góðar kveðjur frá FHUN
Elín Ólafsdóttir
Harmonikulandsmót 2008
Helgina 17. -19. nóvember var Harmoniku-
landsmót að Reykjum í Hrútafirði. Við sem
tókum þátt í þessu komum að Reykjum kl.
17:30 á föstudeginum, við byrjuðum á því
að fá herbergið okkar, svo fórum við að
flytja farangurinn upp í herbergi og gerðum
það tilbúið fyrir nóttina, svo fengum við að
borða (nammi, namm). Eftir mat fórum við
að æfa uppi í herberginu hans Halldórs
tónlistarkennara og Einars Hólm. Næst
fórum við á æfingu í íþróttahúsinu og það
gekk vel, svo fórum við út að leika okkur.
Upp úr kl. 23:00 fórum við upp í herbergi
að lesa og sofa. Morguninn eftir fengum
við morgunmat, svo var æfing í íþróttahús-
inu og þá var Lydía Nína komin. Svo fórum
við í leikjasalinn í næsta húsi við skólann
og það varfjör en svo þegarvið vorum búin
að vera svolítið lengi þá þurftum við að
borða hádegismat kl. 12:00. Eftir hádegi
var aðal samspilið, þá spiluðu sumir einir
en aðrir íhópum, Steinþór Logi spilað einn
og gekk það vel hjá honum, svo fórum við
íkaffi. Þegar viðvorum búin íkaffi þáfórum
við aftur í leikjasalinn og sund, við fórum í
“Grísinn í miðjunni”. Svo fengum við kvöld-
matinn og svo fórum við að leika okkur
aftur. Elísa Katrín og Steinþór Logi fóru að
lesa en Lydía Nína var að dunda sér eitt-
hvað. Svo komu Árný, Kolbrún og Sóley og
þá fórum við að gá hvar Lydía Nína væri og
þá var hún bara steinsofnuð ZZZZZZZZ. Við
Harmoniku-
dagurinn
í Reykjavík
Félag harmonikuunnenda í Reykjavík lét
sitt ekki eftir liggja á Harmonikudaginn.
Félagar tóku daginn snemma og hófu harm-
onikuleik og kynningu á hljóðfærinu á
nokkrum stöðum íborginni ogmá þarnefna
staði eins og Kringluna, Smáralind, Kola-
portið og Byko. Hljóðfæraleikurunum var
mjögveltekið oger óhættað segja að þeir
sem gáfu sér tíma til að leggja við hlustir
kunnu þessu uppátæki vel og létu óspart í
Ijós ánægju sína með framtakið. Það er
augljóst að Harmonikudagurinn er kominn
til að vera og hreint ótrúlegt hvað margir
áheyrendur sögðust bíða þessa dags með
óþreyju.
Það er von okkar að þessi dagur eigi eftir
að ná enn frekari útbreiðslu meðal lands-
manna og að aðildarfélögin í landinu sýni
metnað sinn f að gera þennan dag sem
ánægjulegastan næstu árin. G. Kvaran
töluðum við stelpurnar nokkuð tengi en svo
fórum við að sofa kl. 24:00. Um morguninn
vöknuðum við snemma til að taka saman
dótið og fórum með það út í bfl. Eftir morg-
unmatinn fórum við út í íþróttasal og við
spiluðum á harmonikurnar, svo fengum við
viðurkenningu og svo fórum við heim.
Harmonikulandsmótið var mjög skemmti-
legt og það var mjög gaman að taka þátt í
því.
Steinþór Logi í 4. bekk
og Elísa Katrín í 6. bekk,
Grunnskólanum Tjarnarlundi,
Dalabyggð.
Kveðja frá Hreini Halldórssyni
Ágætu áskrifendur og lesendur Harmoniku-
blaðsins!
Undanfarin þrjú ár hef ég borið ábyrgð á
Harmonikublaðinu ogreyntað koma þvítil
skila með m.a. f huga að:
• blaðið miðlaði upplýsingum til lesenda
sinna um starf hinna ýmsu félaga innan
S.Í.H.U.
• blaðiðværi vettvangurskoðanaskipta um
málefni tengd harmonikunni.
• blaðið gæti aukið áhuga á harmonikunni
sem hljóðfæri og tónlist tengdri henni
fyrir alla aldurshópa. Þar má t.d. nefna
lagasmíðar ungmenna.
• blaðið væri fræðandi, upplýsandi og ekki
síst skemmtilegt aflestrar.
Nú er það svo að þetta hefur gengið misvel
og kannski ekki mitt að dæma hvernig til
hefur tekist. Ég vil þó beina þvítil allra sem
þetta lesa að vera vakandi fyrir efni sem
hugsanlega væri gaman að sjá í blaðinu.
Það er auðveldara fyrir ritstjóra að skera
niður efni heldur en að að leita að því vítt
og breitt.
Þó Harmonikublaðið sé ekki stórt þá þarf
að leggja all nokkurn tíma í efnisöflun, búa
blaðið til prentunar, pakka og setja í póst
ásamt því að halda utan um áskrifendur og
greiðslur árgjalds sem misvel gengur að
innheimta.
Þrátt fyrir þetta þá hef ég haft allnokkra
ánægju af umsjón blaðsins og vil hér með
þakka öllu því góða fólki sem hefur
aðstoðað mig með einum eða öðrum hætti.
Sérstakar þakkir fær þó Jóhanna, konan
mín, sem hefur að mestu leyti séð um
pökkun blaðsins, sem er þó nokkur handa-
vinna.
Um leið og ég þakka fyrir mig þá óska ég
lesendum öllum gleðilegs sumars og vona
að allir reyni að njóta þess að vera til.
Að lokum þá óska ég Harmonikublaðinu
langra lífdaga og nýjum ábyrgðaraðilum
góðs gengis.
Hreinn Halldórsson
8