Harmonikublaðið - 01.05.2009, Blaðsíða 17

Harmonikublaðið - 01.05.2009, Blaðsíða 17
Bréf til Harmonikubladsins Ágætu harmonikuunnendur, komið þið öll blessuð og sæl oggleðilegt sumar. Nú hillir undir að okkar ágæta harmonikublað komi út með öllum upplýsingum um sumarstarfið ogýmislegt fleira. Því það styttist í að stór- fjölskyldan hittist, vertíðin fer að hefjast. Það var haft samband við mig og ég beðinn að setja eitthvað saman fyrir blaðið, sem stendur nú á tímamótum þar sem ekki hefur tekist að fá arftaka Hreins Halldórssonar sem sinnt hefur blaðinu með ágætum, en er nú hættur. Égvil nota tækifærið og þakka honum hans ágæta framlag til blaðsins und- anfarin ár. Ef ég stíg nú skref afturábak til haustfund- arins sem haldinn var að Núpi í Dýrafirði sl. haust, en þar mætti ég sem fulltrúi harm- onikuunnenda Vesturlands. Þar talaði jónas Þór Jóhannsson formaður S.Í.H.U. um að það væruð þið einsoghann orðaði það, sem ákvæðuð hvað S.Í.H.U. þyrfti að gera, eða íþeim dúr ef ég man þetta rétt. Sem er bara gott mál. Þá dettur méríhug hvortS.Í.H.U. gæti ekki beitt sér fyrir betra aðgengi að nótum af lögum til að spila. Ég var í tónlistarskóla eins og svo margir aðrir og lærði nótur og spila eftir þeim. Ég veit að það eru margir á sama báti og ég. Það er mjög erfitt og jafnvel ómögulegt með örfáum undantekn- ingum að fá nóturaft.d. dægurlögum sem passa harmonikunni. Lög með hljóm- sveitum eins og hljómsveit Ingimars Eydal, Ragga Bjarna, Hauki Morthens, Óla Gauk, Svavari Gests ogfleirum íþeim dúr, þessari flottu sveiflutónlist sem var sem vinsælust á árunum fyrir 1970. Nú ertæknin orðin það mikil að það er hægt að spila af hljómborði beint inn í tölvu sem les hljóðið og breytir þvíyfirínótur. Það þarfekki nemaeinfalda laglínu með hljómum fyrir ofan til að það gagnist mörgum. Ég tek ofan fyrir þeim heiðursmönnum eins og Braga Hlíðberg, Aðalsteini ísfjörð, Guttormi Sigfússyni og fleirum sem hafa látið nótusetja lögin sín oggefið fólki kostá að kaupa heftin sín. Ef menn spila á gítar þá er hægt að fá nánast hvaða lag sem er textað og hljómasett á netinu, en ef maður er svo óheppinn að spila á píanóhljóðfæri er allt annað í gangi. Það er að vísu gaman að spila valsa, polka, ræla og vínarkrusa, en það er líka gaman að breyta til og spila falleg dægurlög, en þau eru bara Iftt fáanleg á nótum. Efég get orðið að liði við slíkt er ég til, ég skal t.d. taka að mér að gorma öll þau hefti sem gefin verða út, ef af verður. Lfka ef menn eru með handskrifaðar nótur, skal ég ef menn vilja skrifa þær upp ítölvunni þannig að þær verði læsilegri. Svo vil ég sjá að félögin um landið bjóði nemendum tónlistarskólanna upp á að æfa saman með öllum hljóðfærum danslög, halda svo ball með þeim á eftir þar sem þeir geta spilað saman eða skipta hópnum niður, þannig að nemendur fái tilfinningu fyrir dansmúsík og þeir sjái árangurinn á dansgólfinu. Því það er unun á þá að hlusta þegar þeir eru að spila á sviði, hvað sumir eru orðnir frambærilegir og komnir langt í spilaleikni, en mér finnst vanta danspró- grammið með f þeirra spilamennsku. Vil ég svo Ijúka þessu með því að óska öllum harmonikuunnendum bjartrarframtíðar og velgengni um ókomin ár. Bestu kveðjur til ykkar allra, G.Helgi Jensson, félagi í Harmonikuunn- endum Vesturlands. Sími: 894-1645 Hagyrdingakvöld í Húnavatnssýslum Hið árlega hagyrðingakvöld harmoniku- félaga í Húnavatnssýslum, var haldið að venju síðasta vetrardag þann 22.apríl. Er þetta í þriðja sinn sem það er haldið f húsnæði félagsins f Ósbæ. Hér áður fyrr var það haldið í félagsheimili Blönduóss. Aðsóknin var mjög góð að þessu sinni, því húsfyllir var. Hagyrðingar voru fimm, þeir heimamenn Jóhann Guðmundsson og Einar Kolbeins- son, Jón Gissurarson úr Skagafirði og svo Þórdís Sigurbjörnsdóttir og Dagbjartur Dag- bjartsson bæði úr Borgarfirði. Þeir létu gamminn geysa um menn og mál- efni líðandi stundar, undir styrkri stjórn Jóhanns Viðars, stemmingin var góð og mikið hlegið. Að lokum varsvo dansinn stiginn fram eftir nóttu. Þar sem Elín og Hermann úr Skaga- firði þöndu dragspilin ásamt liðsauka heimamanna. Hagyrdingará mótinu. Þakka góða skemmtun Húnvetningar. Björg Hans. Elín og Hermann. 17

x

Harmonikublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Harmonikublaðið
https://timarit.is/publication/1088

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.