Harmonikublaðið - 01.05.2009, Page 7
Fréttir af Harmonikudeginum
Glattá hjalla í kajfisölunni
Harmonikutertan
Harmonikufélagið Nikkólína hélt upp á
Harmonikudaginn með aðstoð nemenda í
Tónlistarskóla Dalasýslu, í Leifsbúð í Búð-
ardal.
Haldnir voru tónleikar þar sem fram komu
nemendur í harmonikuleik undir stjórn
kennara síns Halldórs Þ. Þórðarsonar. Fyrst
spilaði hópurinn sem fórá unglingalands-
mótið á Reykjum sl. haust og síðan komu
fram nokkrir einleikarar, mjög efnilegir
krakkar. Eftir það spilaði harmonikuhljóm-
sveit Nikkólfnu með 3 stúlkum sem kalla
sig „Nikkurnar þrjár“ og hafa verið að æfa
sig með Nikkólínu í vetur.
Eftir tónleikana var kaffisala til ágóða fyrir
Nikkólínu og boðið upp á bakkelsi sem
félagar komu með, var það hvað öðru betra
ogglæsilegra. Þarvakti mesta athygli terta
sem var íformi harmoniku, en það varÁrný
Björk Brynjólfsdóttir sem kom með hana
en hún lét þess getið að „mamma hefði
gert hana“. Þess má geta að Mjólkursam-
lagið í Búðardal styrkti félagið myndarlega
og gaf ostakökur, kókómjólk og osta.
Dagur harmonikunnar var mjög ánægju-
legur, tónleikarnir tókust afar vel og gestir
fóru heim saddir og sælir eftir skemmtilega
samverustund. mb
Samspil nemenda ÍTónlistarskóla Dalasýslu
(je*
v
Föstudagur 19 Júní :
Svæðið opnar síðdegis ...
Dansað í félagsheimilinu frá kl. 22:00
Jónsmessuhelgina 19 - 21 Júm
Aðgangseyrir yfir helgina 4000 kr. Frítt fyrir 12 ára og yngri.
Á dansleik fyrir aðra gesti 2000 kr, og á tónleika og glens 1000 kr
tökum vel á móti harmonikuunnendum
Upplýsingar í sima 8958152.
Laugardagur 20 Júní :
Fjölbreytt dagskrá frá kl. 14:00
Tónleikar, söngur, glens og gaman.
Kaffisala.
Harmonikusýning- E.G. tónar á Akureyri.
Sameiginleg grillveisla um klukkan 18.
Félögin leggja til grill, koí og olíu.
Dansleikur frá 22.
Ferðaþjónusta bænda Stóra-Vatnsskarði
Næg tjaldstæði. gisting á sér hæð, lOkm. norðan húnavers