Harmonikublaðið - 01.05.2009, Page 10
Kveðja úr Skagafirði
Félag harmonikuunnenda í Skagafirði hélt
þrenna tónleika í vetur er báru nafnið
„Tekið í belg“. Voru þeir haldnir í Skaga-
firði, nánar tiltekið í félagsheimilinu Ljós-
heimum, á Löngumýri og í félagsheimilinu
Höfðaborg Hofsósi. Þar voru á ferðinni fimm
harmonikuleikarar, bræðurnirjón ogStefán
R. Gíslasynir, Aðalsteinn ísfjörð, Jón Þor-
steinn Reynisson og Tanja Wljöll Magn-
úsdóttir, ásamt slagverksleikaranum Kristj-
áni Þór Hansen. Kynnir á öllum tónleikunum
var Gunnar Rögnvaldsson.
Sæluvika Skagfirðinga 2009 stóð yfir frá
26. apríl til 3. maí. Félagið lagði til dag-
skrárliði íþá menningarviku. Fimmtudags-
kvöldið 30. apríl var söng- og skemmtidag-
skrá í félagsheimilinu Ljósheimum með
hinum landsþekkta stórsöngvara Ragnari
Bjarnasyni. Ragnar á margar gamansögur
sem hann deildi með áhorfendum á milli
þess sem hann söng fullum hálsi og sló
hvergi af. Gestir voru um 80 og fóru glaðir
heim. Það voru hljóðfæraleikarar úr
félaginu sem léku undir hjá Ragnari. Þeir
voru: Jón Gíslason á harmoniku, Kristján
Þór Hansen á trommur, Guðmundur Ragn-
arsson á bassa, Aðalsteinn ísfjörð lék á
harmoniku, hljómborð og saxófón og Rögn-
valdur Valbergsson á gítar og hljómborð.
Hljómsveitir félagsins léku svo fyrir dansi
fram eftir nóttu og bættust þau Hermann
Jónsson og Elin Jóhannesdóttir þá íhópinn.
Tekið í belg og dagskráin með Ragnari
Bjarnasyni eru verkefni sem styrkt voru af
Menningarráði S.S.N.V.
Félag harmonikuunnenda í Skagafirði hefur
alltaf tekið þátt f harmonikudeginum með
dagskrá. í ár bar daginn upp á 2. maí sem
var laugardagur í Sæluviku Skagfirðinga og
af þvf tilefni var opið hús í félagsheimilinu
Ljósheimum frá kl. 14:00 og var boðið upp
á fjölbreytta harmonikutónlist. Fram komu
þar m.a. Landsmótssveitin 2008 sem lék
nokkur lög af sinni dagskrá. Tanja Mjöll
Magnúsdóttir, 14 ára stúlka og afi hennar
Aðalsteinn ísfjörð léku saman tvö lög á
harmonikur og síðan kom Unnur Rún Sig-
urpálsdóttir 9 ára gömul, sem einnig er
barnabarn Aðalsteins ísfjörð og lék með
þeim eitt lag á hljómborð. Aðalsteinn
ísfjörð er landskunnur lagahöfundur og lék
hann fjögur lög af sínum langa lagalista.
Linda Björk Valbjörnsdóttir 17 ára lék þrjú
lög með kennara sínum Stefáni R. Gíslasyni.
Síðan var samleikur þeirra Jóns Gíslasonar
og Aðalsteins ísfjörð og svo þeirra bræðra
Jóns og Stefáns R. Gíslasonar og notuðu þá
gestirtækifærið ogstigu nokkurdansspor.
Fjöldi gesta á harmonikudeginum var um
70 manns. Harmonikudagurinn varstyrktur
af Sparisjóði Skagafjarðar. Aðgangur var
ókeypis en boðið upp á veitingar gegn vægu
verði og voru allir boðnir hjartanlega vel-
komnir að venju.
Sauðárkróki 6. maí 2009
Gunnar R. Ágústsson
10