Harmonikublaðið - 01.05.2009, Blaðsíða 13
Jón Þorsteinn Reynisson
Lék með Sinfóníuhljómsveit íslands átta ára gamall
Jón Þorsteinn er fæddur árið 1988 og ólst
upp í Mýrarkoti í Skagafirði á mjög músik-
ríku sveitaheimili. Stórfjölskyldan er mikið
tónlistarfólk og má nefna að móðir Jóns er
organisti í kirkjusóknum „út að austan"
eins og sagt er í Skagafirði auk þess að
vera tónlistarkennari við Tónlistarskóla
Skagafjarðar, systir hans og faðir syngja
í kirkjukórnum eins og hann sjálfur og
bróðir hans syngur í kórum á höfuðborg-
arsvæðinu auk þess að spila í hljómsveit-
inni Múgsefjun.
Jón hóf að læra á píanó og blokkflautu
aðeins fimm ára gamall og sóttist námið
vel. Samhliða því námi ákvað Jón, þá átta
ára, að læra á harmoniku. Það sama ár
lék hann einleik með Sinfoníuhljómsveit
íslands á tónleikum hennar á Hofsósi. 10
ára tókjón Þorsteinn þáttf hæfileikakeppni
á vegum FHUR í Reykjavík og sigraði í
sínum aldursflokki og 13 ára sigraði hann
einleikarakeppni MENOR sem haldin var
á Akureyri. Hann hefur auk þess spilað á
harmonikumótum og ýmsum öðrum sam-
komum ogtónleikum víða um land.
- Ég spilaði eingöngu á pfanóharmoniku
fyrstu árin en skipti yfir á hnappaharmo-
niku árið 2006. í rauninni er hnappa-
harmonika allt annað hljóðfæri, flóknari
og skemmtilegri. Ég þurfti að byrja að læra
alveg upp á nýtt, segir Jón og leggur áherslu
á hversu mikill munurer á þessum tveimur
harmonikum. - Ég og kennarinn minn Stefán
Gíslason vorum eiginlega eins og blindir
kettlingar þegar við vorum að byrja á þessu.
Vorum hvorugur klárir á þessu. En til þess
að geta tekið lokaprófið þurfti ég að spila
á hnappaharmonikuna ogskipti þessvegna
yfir. Égþurfti að leggjastyfir þetta aföltum
þunga og þetta var mikið bras. í dag spila
ég ekkert á hina harmonikuna, segir Jón
og greinilegt að hann sér ekki eftir þeirri
vinnu sem fór ískiptin. Það varvorið 2008
sem Jón lauk framhaldsprófi íharmoniku-
leik auk tónfræðigreina frá Tónlistarskóla
Skagafjarðar.
Hugurinn stendur greinilega til frekara
náms í hljóðfæraleik en stefnir Jón á tón-
listarkennaranám?
- Nei. Ég hef ekki áhuga á að kenna, en það
getur vel verið að ég nái mér í gráðu. Það
getur vel verið að það borgi sig. Nú stefni ég
á að læra hjá Vadim Fjodorov hinum þekkta
harmonikuieikara sem kom hingað til lands
ásamt bróður sínum frá Rússlandi og er
að kenna í listaháskólanum. Ég ætla að
En hvaða lög ætli séu í mestu
uppáhaldi hjá Jóni?
- Skemmtilegast finnst mér að
spila klassík eða barokktónlist.
Hún er í mestu uppáhaldi hjá mér.
Annars hef ég gaman af að spila
allt mögulegt. Ég hef mikið verið
að spila í veislum og við skírnir og
þessháttar. Þá eru allskonar lög á
dagskránni. Sfðasta sumar hélt ég
tónleikaröð víðsvegar um landið,
sem var styrkt af Menningarráði
Norðurlands vestra. Sfðastliðið ár hef
ég Ifka oft verið beðinn að spila á hinum
ýmsu menningarviðburðum og hefur verið
töluvertað gera hvað það varðar ogyfirleitt
alltaf eitthvað framundan.
Eitthvað ætlar Jón að spila opinberlega í
sumar en ekkert er ákveðið eins og er.
- Það kemur allt í Ijós, segir þessi spilandi
káti harmonikuleikari.
Páll Friðriksson
reyna að fara til hans eina helgi í
mánuði. Næsta stig er háskólanám
og ég stefni þangað en ég er ekki
búinn að ákveða enn hvert ég fer
eða hvað ég læri nákvæmlega. Það
eru margar leiðir færar f þessu.
Góðir harmonikuleikarar hafa
löngum verið vinsælir á gömlu-
dansaböllum en Jón hefur lítið
verið f þeim skemmtanabransa. Þó
grípur hann í nikkuna á jólaböllum.
- Ég spilaði á balli þegar ég var tíu
ára í Hlíðarhúsinu með bróður
mínum, annars hef ég látið þetta
alveg vera fyrir utan jólaböllin.
Verkstæði til alhliða viðgerða
Harmonikuþj ónusta á harmonikum að Sóleyjarima 15, Reykjavík.
Guðna Hafið samband við Guðna
í síma 567 0046.
13