Harmonikublaðið - 01.05.2009, Qupperneq 16

Harmonikublaðið - 01.05.2009, Qupperneq 16
Starfsemi Harmonikufélags Héraðsbúa 2008 - 2009 Anna Hjaltadóttir ad spila á hljómleikum. Ungur og efnilegur harmonikuleikari aðeins 6 ára gamall. Vernharður Snæþórsson. Guttormur Sigfússon að spila í KHB á harmonikudaginn. Ungurog efnilegur nemandi í harmonikuleik, Signý Ingólfsdóttir Starfsemi HFH árið 2008-2009 var med hefðbundnu sniði. Sumarhátíð f Brúarási um verslunarmannahelgi. Þar voru dans- leikir á föstudags- og laugardagskvöld. Á laugardag voru tónleikar þar sem fram komu tvíburabræðurnir Andri Snær og Bragi FannarÞorsteinssynir. Einnig spiluðu Einar Guðmundsson, Aðalsteinn ísfjörð og Gutt- ormur Sigfússon. Eins var Jóhannes Krist- jánsson með skemmtidagskrá. Hefðbundinn harmonikudansleikur var haldinn í Valaskjálf síðasta laugardags- kvöld f ágúst, var hann bæði fjölmennur og fjörugur. HFH var með Golfskálann á Ekkju- felli á leigu íveturogþarvoru haldnirdans- leikir annað hvert föstudagskvöld frá 20:30 til 24:00 þar sem félagar spiluðu fyrir dansi. Einnig var spilað ÍHIymsdölum, nýrri félags- aðstöðu eldri borgara á Héraði á miðviku- dagskvöldum frá 20:00 til 22:00. HFH félagar héldu tónleika á Harmonikudaginn ásamt Tónlistarskóla Fellabæjar en þar komu fram ungir nemendur og eldri harm- onikuleikarar undir stjórn Torvald Gjerde. Einnigfóru félagar HFH íhin ýmsufyrirtæki á Héraði ogspiluðu fyrirviðskiptavini þeirra og var gerður góður rómur að leik þeirra. í sumar verður félagið með sumarhátíð f Brúarási eins og venjulega en tjaldstæði, mat og gistingu verður hægt að kaupa í Svartaskógi eins og áður hefur verið. Þar verða dansleikir á föstudagskvöld og laug- ardagskvöld og skemmtidagskrá á laug- ardeginum en þetta verður auglýst í blaðinu nánar síðar. Hinn árlegi ágústdansleikur verðurá sfnum stað íValaskjálf og sömu- leiðis verður hann auglýstur þegar nær dregur. 16

x

Harmonikublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Harmonikublaðið
https://timarit.is/publication/1088

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.