Harmonikublaðið - 01.05.2012, Qupperneq 4
Fréttir af Héraði
Starfsemi harmonikufélagsins hefurverið með hefðbundnum
hætti síðastliðið starfsár.
Um verslunarmannahelgina 29.-31. júlí var sumarhátíð HFH í
Brúarásskóla. Dansleikir voru á föstudags- og laugardags-
kvöldið. Skemmtidagskrá frá kl. 14:00 á laugardag,
harmonikuleikur þar sem fram komu Einar Guðmundsson og
Aðalsteinn ísfjörð ásamt fleirum og einnig voru fluttir leik-
þættirafleikurum úr Leikfélagi Fljótsdalshéraðs. Sumarhátíðin
fór vel fram og allir skemmtu sér hið besta.
Að kvöldi laugardagsins 27. ágúst var hinn árlegi harmoniku-
dansleikur haldinn íValaskjálf, en það hefur verið fastur liður
í starfsemi félagsins frá upphafi og lengst af aðalfjáröflunar-
samkoma.
í Dagskránni, auglýsingablaði Austurlands, birtist svohljóðandi
auglýsing: Föstudagskvöldið 7. okt. verður harmonikuæfing
íBókakaffi, Fellabæ. Allirvelkomnirað hlusta ogdansa. Þessar
æfingar voru hálfsmánaðarlega til 2. des. en þá var jólafrf.
Fyrsta æfing eftir áramót var svo 7. janúar og svo áfram á
hálfsmánaðar fresti, síðasta æfing svo 13. apríl á Kaffi
Egilsstöðum. Æfingarnar fóru þannig fram að þrfr til fimm
harmonikuleikarar mættu kl. 20:30 og spiluðu svo einn eða
fleiri saman, gömlu dansana af fingrum fram til kl. 24:00.
Fólkið sem mætti, 25-36 manns, dansaði og skemmti sér hið
besta. Góð æfing bæði fyrir spilara og dansara.
Þann 4. maí verður sameiginleg árshátíð Harmonikufélags
Héraðsbúa og Félags eldri borgara á Fljótsdalshéraði í
Valaskjálf með mat, skemmtiatriðum og dansleik.
Harmonikudaginn 5. maíverða nemendatónleikaríFellaskóla.
Þar spilar harmonikusveit tónlistarskólans undir stjórn Torvald
Gjerde. Einnig koma fram einleikarar.
Harmonikuleikarar fara á sjúkrahúsið og spila fyrir vistmenn.
Einnig er farið íverslanirogspilað tilað vekja athygli á þessu
frábæra hljóðfæri, harmonikunni.
Jón Sigfússon
Sigurdur Eymundsson og Kristmann Jónsson
Sveinn Vilhjálmsson ogjón Sigfússon