Harmonikublaðið - 01.05.2012, Blaðsíða 5
Heimur harmonikunnar
L
Fimmtudaginn 1. mars 2012 var farið um
heim harmonikunnar í sal Listaskóla Rögn-
valdar Ólafssonar á annarri hæð í Edin-
borgarhúsinu á ísafirði. Fararstjórinn var
Helga Kristbjörg Guðmundsdóttir harmon-
ikuleikari og henni til aðstoðar harmoniku-
leikararnir Jón Þorsteinn Reynisson ogÁsgeir
Sigurðsson.
Dagskráin var sú þriðja í röðinni um Tónlist
frá ýmsum hliðum, sem Listaskóli Rögn-
valdar Ólafssonar og Fræðslumiðstöð Vest-
fjarða gangast fyrir veturinn 2011-2012. Er
þessi dagskrárröð hugsuð til að fólkfræðist
um einstaka svið tónlistarinnar, jafnframt
því að njóta þess að hlusta á tónlist í þægi-
legu umhverfi yfir kaffibolla og meðlæti.
Dagskráin hófst með leynigesti sem söng
Sjómannavalsinn eftir þá Svavar Benedikts-
son og Kristján frá Djúpalækvið undirleik
Helgu Kristbjargar. Leynigesturinn reyndist
vera Sveinn Enok Jóhannsson söngvari.
Helga Kristbjörg rakti síðan sögu og þróun
harmonikunnar í máli og tónum, þar sem
þau Jón Þorsteinn skiptust á um að leika á
nikkuna. Ásgeir var með sundurteknar
harmonikur og sýndi hina ýmsu hluta nikk-
unnar eftir því sem þeim var lýst. Auk þess
rakti hann sögur einstakra harmonika úr
safni sínu og sagði skemmti- og reynslu-
sögur af harmonikuleikurum og tónleikum.
Dagskrána endaði Helga Kristbjörg með því
að leika sitt hvort lagið eftir þá ísfirðingana
Baldur Geirmundsson (BG) og Vilberg Vil-
bergsson (Villa Valla), sem báðir voru við-
staddir.
Dagskráin var vel sótt og gestir hinir ánægð-
ustu með kvöldið. Þeir sannfærðust um að
harmonikan er hljóðfæri sem gefur mikla
möguleika. Flest tengjum við harmonikuna
við gömlu dansana. Harmonikan er þó alls
ekki takmörkuð við polka og valsa heldur á
vel við í flestum gerðum tónlistarinnar.
Smári Haraldsson
5