Fréttir - Eyjafréttir - 10.04.2008, Blaðsíða 1
Bílaverkstæðið Bragginn s f. Flötum 20
Viðgerðir og smurstöð - Réttingar og sprautun - Sími 481 3235 Sími 481 1535
35. árg. I 15. tbl. I Vestmannaeyjum 10. apríl 2008 I Verð kr. 200 I Sími 481-1300 I Fax 481-1293 I www.eyjafrettir.is
ÞAÐ var rokkað feitt á Prófastinum í síðustu viku þar sem Dr. Spock, Sign og Benny Crespos Gang tróðu upp. Nánar inni í blaðinu.
Vertíðin í FES að nálgast 40 þúsund tonn:
Kolmunninn til bjargar
þegar loðnan brást
-Stöðugar vaktir frá 1. mars til 4. apríl
Kolmunnaveiðar á Rockallsvæðinu
vestan við írland ganga vel þar sem
bæði vinnslu- og veiðiskip stunda
veiðarnar. Huginn VE og Guð-
mundur VE vinna mest af aflanum
til manneldis á Rússland en norsk
veiðiskip hafa landað til bræðslu hjá
ísfélaginu.
Unnið er á vöktum hjá FES eins og
gert var allan marsmánuð við loðnu
og kolmunna. A miðvikudag var
nóg að gera og skip biðu löndunar.
Kap VE var nýkomin á miðin í gær,
miðvikudag og Álsey VE heldur til
veiða í dag en 30 til 40 tíma sigling
er á miðin, allt eftir veðrum og vind-
um.
Páll Scheving, verksmiðjustjóri
FES sagði að Isfélagið hefði tekið á
móti kolmunna í bræðslu í febrúar
fyrir loðnuvertíð. „Við vorum búnir
að vinna 3.000 tonn af kolmunna
sem við fengum af norskum skipum
og 500 tonn af Guðmundi VE áður
en loðnuvertíð hófst. Síðan brædd-
um við tæp 20.000 tonn af loðnu á
loðnuvertíðinni og snerum okkur
svo að kolmunna aftur og nú höfum
við tekið á móti 11.000 tonnum,
þar af 10. 000 af norskum skipum.“
Stefnir í 40 þúsund tonn
fyrir vikulok
Næraberg, færeyskur bátur, var að
landa 2000 tonnum í gær, mið-
vikudag og Ingunn AK beið lönd-
unar með 1800 tonn. Faxi RE var á
leiðinni í land með 1500 tonn til
löndunar í FES.
„Það bendir allt til þess að í viku-
lokin verði búið að landa og taka á
móti 20.000 tonnum af kolmunna á
Kolmunninn er af þorskfiskaætt.
Er oftast 20 - 40 cm á lengd en
getur orðið allt að 50 cm
vertíðinni. Þar af eru aðeins 1700
tonn af skipum Isfélagsins en
Guðmundur VE landaði frystum
afurðum og 1200 tonnum til
bræðslu í síðustu viku. Ef við
tökum loðnu og kolmunna saman þá
erum við komnir með 40.000 tonna
vertið og ekki hættir. Huginn VE og
Guðmundur frysta kolmunna um
borð og það er nýtt að ísfélagið
frysti þessa afurð,“ sagði Páll en
kolmunni er af þorskfiskaætt og er
seldur heilfrystur á Rússland til
manneldis.
Vinnudagurinn hefur verið langur
í FES undanfarnar vikur og unnið
nær sleitulaust á vöktum frá því í
byrjun mars. „Við byrjuðum vaktir
1. mars og vorum að til 4. apríl og
slitum þá vöktum og hófum vaktir
aftur 9. apríl. Menn eru auðvitað
ánægðir því þetta er virðisauki fyrir
samfélagið og bæði skapar atvinnu
og tekjur við bræðsluna.
Skipin eru að kaupa ýmsa þjónustu
við löndun og greiða hafnargjöld
o.fl. Flotinn kaupir líka olíu, kost
og aðföng þannig að þetta styrkir
alla þjónustuaðila í bænum,“ sagði
Páll um loðnu og kolmunnavertíð
sem stendur enn.
Oráðið
með
Höllina
Skemmtanahald í Höllinni er enn í
óvissu þar sem ekki hefur enn tek-
ist að koma í veg fyrir hljóð-
mengun frá húsinu. Heilbrigðis-
eftirlit Suðurlands úrskurðaði að
húsið stæðist ekki kröfur vegna
hávaðans en húsið hefur leyfi til
skemmtanahalds sem ekki stendur
lengur en til klukkan eitt eftir
miðnætti.
Félagsmálaráðuneytið gaf leyfi
til tveggja dansleikja til þess að
mæla hljóð sem berst frá Höllinni
og var sá fyrri í janúar og sá
seinni í marsmánuði. Húsið er í
eigu Glitnis og Sparisjóðs Vest-
mannaeyja „Seinni mælingin kom
betur út en fyrri og nú munum við
leggja þetta í hendur á sér-
fræðingum. Eg get ekki sagt neitt
núna um framhaldið, það verður
farið vel yfír þetta og þá kemur í
ljós til hvaða lausna verður grip-
ið,“ sagði Olafur Elísson, spari-
sjóðsstjóri.
Humar
mokveiðist
Humarveiðar eru byrjaðar og
Gandí VE landaði sínum fyrsta túr
í gær, miðvikudag.
Mokveiði er á Eldeyjarsvæðinu
og Gandí kom inn með 1100 kíló
eftir sólarhringsveiði. Að sögn
Guðna Ingvars Guðnasonar,
útgerðarstjóra, hófst humar-
vinnsla strax í frystihúsi Vinnslu-
stöðvarinnar og humarinn sem
veiddist var stór og í fínum gæða-
flokki.
Narfi VE fer á humarveiðar eftir
þorskveiðibann og humar verður
þá unninn hjá Fiskvinnslu VE.
Nagladekkin
undan bílnum
Einn ágætur lesandi Frétta hafði
samband við blaðið og benti á, að
enn eru allof margir með nagla-
dekk undir bílunum.
Hann segir nagladekkin skemma
götur og valda svifryksmengun og
þar af leiðandi ættu bfleigendur að
skipta yfir á sumardekk sem allra
fyrst.
Þá sagði hann alltof fáa á gangi í
sól og blíðu og menn ættu bara að
skilja bílana eftir heima ef þannig
stæði á.
Auk þess væru alltof margir með
bíla í gangi þegar þeir fara inn í
verslanir eða aðrar útréttingar og
útblásturinn geri ekki annað en að
skemma himinhvolfið.
VIÐ LÁTUM BÍLINN GANGA...
... SVO ÞÚ ÞURFIR ÞESS EKKI
netÉhamar
VÉLA- OG BÍLAVERKSTÆÐI
SMURSTÖÐ OG ALHLIÐA BÍLAVIÐGEÐIR / <S£ ÞJÓNUSTUAÐILITOYOTA í EYJUM
FLATIR 21 / S.481-1216 / GSM.864-4616