Fréttir - Eyjafréttir - 10.07.2008, Side 14
14
Fréttir / Fimmtudagur 10. júlí 2008
ALLS sýndi hver hönnuður sex klæðnaöi. Á myndunum fyrir ofan eru frá vinstri föt eftir Hildigunni, Önnu Guðnýju, Selmu^Berglindi og
Freydísi og á myndunum til hliðar eru Heiða og Tobba og Ásta er neðst.
Eldheimar, glæsilegur vettvangur tískusýningar:
Frumlegt, flott og skemmtilegt
Tískusýningin í Eldheimum tókst
mjög vel. Sjö klæðskerar og
fatahönnuðir sem tengjast Eyjum
sýndu hönnun sína og
sýningarstúlkurnar allar frá
Eyjum. Sýningin var mögnuð
enda umhverfíð óvenjulegt og
einstakt.
Hönnuðirnir eru þær Heiða
Eiríksdóttir í samstarii við
Þorbjörgu Valdimarsdóttur,
Selma Ragnarsdóttir, Hildigunn-
ur Sigurðardóttir, Freydís Jóns-
dóttir, Anna Guðný Laxdal,
Berglind Ómarsdóttir og Ásta
Guðmundsdóttir. Sýningin var
skemmtileg því hönnuðirnir hafa,
hver fyrir sig, sinn persónulega
stíl. Fatnaðurinn var frumlegur
og flottur, skemmtilegt að sjá
nýjustu straumana og hvernig
hönnuðir útfærðu þá á sinn per-
sónulega hátt.
Sýningarstúlkurnar eru allar
frá Eyjum og stóðu sig allar mjög
vel þegar þær gengu eftir löngum
göngum í skálinni sem hefur
myndast eftir að vikurinn var
fjarlægður. Sýningarstúlkurnar
eiga hrós skilið fyrir góða
frammistöðu og gáfu þeim frægu
og þekktu ekkert eftir þó
sýningarpallurinn haf'i verið
óvenjulegur. Gestir sátu sitt
hvoru megin og þannig spilaði
saman, fatnaður, tónlist og ein-
stakt umhverfl. Fjöldi manns
fylgdist með af áhuga enda ekki á
hverjum degi sem bæjarbúum
gefst tækifæri til þess að kynna
sér íslenska hönnun, hvað þá
vestmanneyska.
BJARNI Þór og Þórður bera saman bækur sínar í eldsmiðjunni.
BÖRKUR Grímsson, ber sig fagmannlega að við elsmíðina.
VILHELM las kvæði fyrir gesti og allt hjálpaðist að við að magna upp
stemmninguna.
Mögnuð stemmning í
Magnahúsi
Sögusetrið- 1627 og Viska stóðu
fyrir námskeiði í eldsmíði og skeft-
un í Magnahúsi um helgina. Gestir
og gangandi gátu fylgst með, þegar
Bjarni Þór Kristjánsson, eldsmiður
og Þórður Svansson leiðbeindu
nemendum við að hamra járnið
eftir að því hafi verið brugðið í
eldinn. Gamla eldsmiðjan á sér
merkilega sögu og gaman að koma
þar við, ekki síst fyrir þá sem störf-
uðu þar og fyrir peyjana sem
leituðu í smiðjuna til að fylgjast
með og fá hjálp frá köppunum sem
þar réðu ríkjum. Jónatan Jónsson,
kennari, leiðbeindi síðan nem-
endum með skeftun þannig að það
var nóg að gera hjá þeim sem voru
tilbúnir til að læra og tileinka sér
nýtt handbragð um helgina.
Sögusetrið 1627 og Handritin
heim stóðu síðan fyrir skemmtilegri
uppákomu í Magnahúsi á laugar-
dagskvöld. Kári Bjamason,
forstöðumaður bókasafnsins kynnti
Leppalúðakvæði sem allt bendir til
að sé eftir Hallgrím Pétursson. I
kvæðinu koma fyrir sömu nöfn og
á börnum Hallgríms og Guðríðar
Simonardóttur frá Stakkagerði og
þar með tenging við Sögusetrið -
1627. Vilhelm G. Kristinsson las
kvæðið fyrir gesti og allt hjálpaðist
að við að magna upp stemmning-
una, góður upplestur, eldur logaði
og eldsmiðir hömruðu járn. Flott
framtak sem gestir kunnu sannar-
lega að meta.
4