Fréttir - Eyjafréttir - 18.09.2008, Page 16
í sun
investments s.L
FASTEIGNASALA A SPÁNI
LINDA RÓS
(0034)646 930 757
lindarosg@hotmail.com
www.suninvestmentsl.com
piús ÍM wjæaljgyiM Eyjafréttír.is - fréttír milli Frétta
rj'Eulrifjaf itlrifjitUijköUJJ
AFANGA FAGNAÐ. Jónas Gunnarsson og Hafdís með soninn Astþór við opnun stofunnar sem er öll hin
smekklegasta.
Heilbrigt og stílhreint hár inn
Hafdís Ástþórsdóttir hefur keypt
hárgreiðslustofuna Hárlist við
Skólaveg en stofan heitir nú DIZO.
Hafdís keypti stofuna af Ólöfu Unu
Ólafsdóttur og tók við rekstrinum 1.
september.
Auk Hafdísar starfar Ólöf Una á
stofunni eitthvað fram á næsta ár en
þá flytur hún ásamt fjölskyldu sinni
frá Eyjum. Sveinsína Ósk Emils-
dóttir mun koma inn og Margrét
Ríkarðsdóttir starfar einnig á stof-
unni.
Hafdís byrjaði að læra hárgreiðslu
2003 og útskrifaðist í maí 2007.
Hún vann hjá TONI&GUY þar til
hún flutti til Eyja í september 2007
og starfaði hjá Hárhúsinu þar til hún
fór í fæðingarorlof.
Hún segir mikil samskipti við fólk
vera skemmtilegast við starfíð. „Ég
hef alltaf fylgst vel með tfsku og það
er nauðsynlegt að vera meðvitaður
um hvað er í gangi. Það er alltaf
gaman þegar viðskiptavinurinn er
sáttur og ánægður þegar hann fer frá
manni.“
Hvað er það nýjasta í hártískunni?
„Það er allt í gangi núna. Það er
mikið lagt upp úr því að hver og
einn hafí sinn stíl og aðalatriði er að
hárið sé heilbrigt.
Vestmannaeyingar eru duglegir að
hugsa um hárið sitt en hármenningin
er önnur hér en í Reykjavík. Á stof-
unni sem ég vann á þar var yngra
fólk í miklum meirihluta en hér er
meiri fjölbreytileiki í þessu. Hér
hugsar fólk almennt vel um hárið
sitt. Hins vegar mættu yngri
stelpumar vera duglegri að koma,
þær vilja hafa hárið sítt en það
kemur meiri rækt í hárið ef það er
klippt neðan af því. Það er inn að
vera með stílhreint heilbrigt hár,“
sagði Hafdís en það er nóg að gera á
stofunni. Er þegar farið að taka
niður pantanir í desember.
Lamb mjög illa leikið eftir dýrbít suður á Bakka:
Ung börn geta verið í hættu
-Hundar sem komast á bragðið til alls líklegir
Bændur á Breiðabakka urðu fyrir
óskemmtilegri reynslu á þriðjudag.
Aðkoman að lambi sem hefur verið
í umsjón Birgis Sigurjónssonar fjár-
bónda var ömurleg. Lambið var svo
illa bitið og sært að gripið var til
þess ráðs að aflífa það á staðnum.
Þeim sem urðu vitni af ástandi
lambsins var mjög brugðið.
Áverkar á lambinu voru mjög
miklir og allt bendir til þess að dýr-
bítur hafi ráðist á það með þessum
afleiðingum. Hundar mega eins og
kunnugt er ekki ganga lausir nema á
svokölluðu Haugasvæði. Hins vegar
mun vera algengt að hundaeigendur
viðri hunda sína með því að sleppa
þeim lausum suður á eyju við rimla-
hliðið og aki sjálfir á undan þeim á
bílum sínum. Þetta getur skapað
mikla hættu því dæmi eru um að
hundar hafi orðið undir bílum eigen-
da sinna við svipaðar aðstæður.
Fjárbændur telja nær víst að hundur
hafí bitið lambið og hafa miklar
áhyggjur af framhaldinu. Lambið
sem var bitið á þriðjudag var
heimalningur og því gæfari en
önnur lömb en annað lamb hvarf af
Bakka snemma í surnar og ekki
vitað um afdrif þess. Áhyggjur fjár-
bænda eru ekki ástæðulausar.
Lambið var mjög illa farið og leið
miklar kvalir og vísbendingar eru
um að hundur sem er einu sinni
kominn á bragðið sé líklegur til að
ráðast til atlögu aftur. Þá hafa fjár-
bændur ekki síður áhyggjur af því
að börn geti verið í hættu því dýrbí-
tur er til alls líklegur.
Nýtum tækifærið í Vestmannaeyjum
-Ungir sjálfstæðismenn halda milliþing
Von er á í kringum 130 ungum sjálf-
stæðismönnum til Vestmannaeyja
um helgina. Tilefnið er að Samband
ungra sjálfstæðismanna stendur
fyrir milíiþingi sínu. Dagskráin er
glæsileg og byggist upp á Vest-
mannaeyskri afþreyingu og kröf-
tugu málefnastarfi.
Eyjamenn eiga sína fulltrúa í for-
ystusveit ungra sjálfstæðismanna,
en Þórlindur Kjartansson er for-
maður sambandsins. Þá eru Ingi-
björg Guðlaug Jónsdóttir, Helgi
Ólafsson og Skapti Örn Ólafsson öll
í stjórn SUS og starfar Ingibjörg
Guðlaug í dag sem framkvæm-
dastjóri sambandsins. Mikið hefur
mætt á þeim og Eyverjum, félagi
ungra sjálfstæðismanna í Vest-
mannaeyjum, undanfarnar vikur í að
gera þinghaldið og helgina ógleym-
anlega fyrir unga sjálfstæðismenn.
Fréttir ræddu við formanninn og
Eyjamanninn Þórlind.
Hvernig leggst í þig sem gamall
Eyjamaður og formaður SUS að
koma út í Eyjar með milliþing sam-
bandsins?
- Mér finnst það alveg stórkostlegt.
Ég hlakka mikið til að koma út í
Eyjar og gefa öðrum ungum sjálf-
stæðismönnum tækifæri til að upp-
lifa mínar gömlu æskuslóðir og
kynnast Eyjunum og Eyjamönnum.
Er góð stemning fyrir þinginu?
- Það er óhætt að segja að áhuginn á
í Eyjum um helgina
milliþinginu sé ótrúlega mikill.
Þátttaka á milliþingið er vel yfir
meðallagi og mikil stemning meðal
ungra sjálfstæðismanna að koma út í
Eyjar um helgina. Það er síðan bara
að vona að flugveðurguðimir verði
með okkur í liði.
Yfirskrift þingsins er: „Nýtum tœk-
ifcerin Utskýrðu það nánar?
- I Eyjum ætlum við að kynna hug-
myndir um þau mál sem við viljum
að sett séu á oddinn hjá sjálfstæðis-
mönnum í ríkisstjórn. Með því að
setja fram hugmyndir okkar á
skýran og lifandi hátt getum við haft
mikil áhrif.
VIKUTILBOÐ
18. - 24. september
Billy's pizzur
verð nú kr 259/"
verð óður kr 378,-
Orville Örb.popp
verð nú kr 339,-
verð óður kr 398,-
A.B. marsipanbrauð
verð nú kr 128/"
verð úður kr 169,-
Oreo kex
verð nú kr 159,-
verð óður kr 218,-
Létt & laggott 4oog
verð nú kr 168,-
verð dður kr 224,-
SS Cordon bleu
verð nú kr 398,-
verð dður kr 470,-