Fréttir - Eyjafréttir - 13.11.2008, Side 4
4
Fréttir / Fimmtudagur 12. nóvember 2008
Úr bloggheimcim:
Eyjamaður vikunnar:
Kreppu kvóta
jól
Það er svolítið
merkilegt að skoða,
hvaða áhrif krepp-
an hefur haft á
smáauglýsingarnar
í blöðunum og svo
að ég taki sem
dæmi; bílar hafa
lækkað verulega í verði og eru
margar auglýsingar, þar sem boðin
er yfirtaka á láni, orðaðar þannig að
með í kaupunum fylgi oft væn
fúlga og jafnvel að seljandi borgi af
bílnum næsta árið. Einnig tók ég
eftir því að í sumar var oft auglýst
undir nafninu nudd og tekið fram
að ekki væri um erótískt nudd að
ræða, núna hinsvegar stendur;
exclusive tantra massage, for men,
women or couples. Einnig er orðið
mikið um auglýsingar, þar sem
auglýstar eru evrur og dollarar til
sölu, svo einhverjir ætla sér að
græða á kreppunni.
Töluverð umræða er um áhrif
kreppunnar hér í Eyjum, og eru
flestar sögumar á þann veginn, að
hinir og þessir útgerðarmenn hafi
verið að taka allt of mikla áhættu í
von um gróða, með því að taka
erlend lán til kaupa á hlutabréfum,
sem núna eru töpuð. Þetta er að
sjálfsögðu mikið áhyggjuefni og
vonandi þýðir þetta ekki að skip
eða aflaheimildir fari frá Eyjum,
því að eins og ég hef oft sagt áður,
þá er útgerðin lífæð Eyjamanna,
því hér verður aldrei reist álver.
Meira á:
http://georg. blog. is
Nýir ræðarar
Ég fylgdist með
fréttum í kvöld og
sá svo Silfrið. Á
ummælum flestra
mátti heyra að
íslcnska kerfið sé
komið að enda-
lokum síns tíma.
Þessi ætterniskapitalismi og vina-
væðingarárátta hér hlýtur að fara
undir fallöxina, nema við viljum
endurtaka sukkið enn á ný. Ég
held reyndar að fáir kjósi það eftir
þetta allsherjarklúður. Enginn eft
er á því að þetta er rétt. Þeir sem
hafa farið með stjórnina hér síðustu
áratugina hafa yfirhöfuð haft eigin
hag eða a.m.k. hag sinna nánustu
eða vina að leiðarljósi en ekki
þjóðarhag við verk sín.
Hvernig getum við breytt þessu
fyrirkomulagi? Einhver sagði að
allir væru svo tengdir að þetta væri
ekki nokkur leið í okkar litla landi.
Meira á:
http.V/eyjapeyji. blog. is
Sjóminjasafn
Myndi aldrei brfóta spegil
Kristberg Gunnarsson er Eyjamaður vikunnar
Um síðustu helgi fór fram Safna-
helgi á Suðurlandi en myndarleg
dagskrá var í Vestmannaeyjum.
Meðal annars var opnun sýning-
arinnar Sambýli manns og lunda á
Fiska- og Náttúrugripasafninu en
við það tilefni voru veitt verðlaun í
hugmyndasamkeppni um pysju-
hótel á safninu. Sigurvegarinn var
hinn 12 ára gamli Kristberg
Gunnarsson en hann er Eyjamaður
vikunnar að þessu sinni.
Nafn: Kristberg Gunnarsson.
Fæðingardagur: 20. júní 1996.
Fæðingarstaður: Auðvitað
Vestmannaeyjar.
Fjölskylda: Ég á eina systur sem
heitir Guðlaug, einn bróður sem
heitir Ásgeir. Pabbi heitir Gunnar
Þór Friðriksson og mamma
Sigurbjörg Jónsdóttir.
Draumabíllinn: Ferrari eða BMW.
Uppáhaldsmatur: Lasagna.
Versti matur: Súrsaðir hrúts-
pungar.
Uppáhalds vefsíða: Youtube.com,
hlusta mikið á tónlist, horfi á körfu-
boltamyndbönd og trommumynd-
bönd.
Hvaða tónlist kemur þér í gott
skap: Skemmtileg tónlist. Held
mikið upp á Good Charlote og
Avenged Sevenfold.
Aðaláhugamál: Trommur og
körfubolti.
Hvaða mann/konu myndir þú
vilja hitta úr mannkynssögunni:
Ég myndi vilja hitta Travis Barker,
fyrrum trommara Blink 182 og
+44.
Fallegasti staður sem þú hefur
komið á: Það er Mallorka.
Uppáhalds íþróttamaður og
íþróttafélag: Chauncey Billubs,
körfuboltamaður í NBÁ-liðinu
Denver Nuggets og uppáhaldsfélag-
ið mitt er ÍBV.
Ertu hjátrúarfullur: Eitthvað já.
Ég mundi aldrei brjóta spegil.
Stundar þú einhverja íþrótt: Já
ég stunda körfubolta.
Uppáhaldssjónvarpsefni: D.E.W
Toure 2007-2008. Það er íþrótta-
keppni á hjólum og hjólabrettum.
Varstu lengi að hanna nýtt
pysjuhótel: Já ég var svona tvær til
þrjár vikur.
Fékkstu einhverja hjálp: Já, pabbi
hjálpaði mér mikið.
Náðir þú mörgum pysjum síðasta
haust: Já, dálítið mörgum. Ég
held ég hafi náð svona níu pysjum.
Matgazðingcir vikunnar:
Ljúffengur kjúklingarénur
Ég þakka Geira fyrir áskorunina
og tck henni hér með þessum
Ijúffcnga kjúklingarétti.
Bringur - Satay kjúklíngur
I kg skinnlausar og beinlausar
kjúklingabringur.
Marinering:
6 stk. söxuð hvítlauksrif
4 tsk. coriander
4 tsk. Ijós púðursykur
1 msk. svartur pipar
2 tsk. salt
'/2 bolli sojasósa
4 tsk. saxað ferskt cngifer
2 msk. limesafi
6 msk. matarolía
14 bolli ferskt kóríander til skreyt-
ingar
Blandið saman öllum hráefnunum,
skerið bringumar í 4-5 cm breiða
bita (þarf að geta þræðst upp á
grillpinna), bætið kjúklingnum út í
marineringuna og látið standa í 2-3
klst. í ísskáp.
Þræðið kjúlinginn upp á satay
Fjóla Björk Jónsdóttir
er matgœðingur vikunnar
pinna. Grillið pinnana annað hvort
í ofni eða á grilli og penslið
marineringunni yfir við og við.
Hnetusósa:
I bolli gróft hnetusmjör
1 -2 tsk. chilisósa
2 stk. hvítlauksgeirar, pressaðir
3 msk. hunang
1 tsk. cayenne pipar
'A bolli lime safi
‘4 bolli soyasósa
Vi bolli hnetuolía
Blandið hráefnunum saman.
Bragðið á að vera sætt/sterkt.
Smakkið til og bætið við magni af
hráefnum eftir smekk.
Nauðsynlegt að hafa hrísgrjón og
hvítlauksbrauð sem meðlæti, ásamt
salati skv. meðfylgjandi uppskrift:
A. Hita saman í potti 100 g af
rjómaosti og eina dós af salsasósu.
B. Skera niður grænmeti eftir eigin
vali, t.d. tómatar, agúrka, paprika,
rauðlaukur, og setja Doritos snakk í
skál, sósuna ofan á og grænmetið
þar á eftir.
Skora hér með á vinkonu mína
Stellu Skaptadóttur sem er
snillingur í heimagerðum sultum og
öllu sem snýr að matargerð.
Kirkjur bazjarins:
Landakirkja
Fimmtudagur 13. nóvember
Kl. 10.00. Foreldramorgunn. Björg
ljósmóðir sýnir ungbarnanudd.
Kaffi og spjall.
Kl. 20.00. Fundur hjá æskulýðs-
félaginu í KFUM&K-húsinu.
Föstudagur 14. nóvember
Kl. 13.00. Æfing hjá Litlu
lærisveinunum, yngri hópur.
Kl. 14.00. Æfing hjá Litlu
lærisveinunum, eldri hópur.
Laugardagur 15. nóvember
Kl. 20.00. Fundur hjá æsulýðs-
félaginu, forvamarstarf.
Sunnudagur 16. nóvember.
Dagur íslenskrar tungu
Kl. 11.00. Bamaguðsþjónusta.
Söngur og gleði eru allsráðandi.
Skoðað verður í fjársjóðskistuna,
saga sögð o.fl. 6-8 ára starfið
byrjar í kirkjunni og heldur áfram í
Safnaðarheimilinu
Kl. 14.00. Guðsþjónusta. Kór
Landakirkju syngur. Sr.
Guðmundur Órn Jónsson prédikar
og þjónar fyrir altari. Kaffi og
spjall í Safnaðarheimili eftir messu.
Kl. 15.30. NTT-starf í fræðslu-
stofunni.
Kl. 17.00. ETT-starf í fræðslu-
stofunni.
Mánudagur 17. nóvember
Kl. 16.00. Kirkjustarf fatlaðra,
yngri hópur.
Kl. 17.00. Kirkjustarf fatlaðra, eldri
hópur.
Kl. 20.00. Vinnufundur hjá
Kvenfélagi Landakirkju.
Kl. 20.00. Batamessa í Landakirkju
í umsjón Vina í bata.
Þriðjudagur 18. nóvember
Kl. 14.30. Fermingarfræðsla í
fræðslustofunni.
Kl. 20.00. Fundur hjá æskulýðs-
félagi Landakirkju.
Miðvikudagur 19. nóvember
Kl. 11.00. Helgistund á
Hraunbúðum.
Kl. 13.00, 13.45 og 14.30.
Fermingarfæðsla í fræðslustofunni.
Hvítasunnu-
kírkjan
Fimmtudagur 13. nóvember
Kl: 20.30 Biblíulestur.
Laugardagur 15. nóvember
Kl: 20.30 Bænastund ...leitið og þér
munuð finna.
Sunnudagur 16. nóvember
Kl: 13.00 samkoma Lilja Óskars-
dóttir prédikar. Allir hjartanlega
velkomnir, ath. Bænastund verður
fyrir „ofsóttu kirkjunni" í heim-
inum kl: 12.00 fyrir samkomuna,
vertu með!
J
4i
Það má alveg segja
það að eina eigin-
lega sjóminjasafnið
í Eyjum sé til húsa
á Flötunum. En
hann Rabbi á Dala-
Rafni hefur verið
ódrepandi í mörg
ár við að safna gömlum munum og
ekki síst tækjum úr bátum. Hann
hefur komið þessum hlutum vel
fyrir hjá sér á skrifstofu útgerðar-
innar á Flötunum og get ég vitnað
um það því ég hef séð hluta af
safninu. Hann hefur sagt að ef
opnað yrði hér alvöru sjóminjasafn
þá færu þessir hlutir þangað en
hann á mikið hrós skilið fyrir það
að bjarga þessu gamla „drasli“ eins
og sumir líta á þetta. Þessir munir
þykja kannski ekki alveg forngripir
þegar þeir eru ekki nema 15-20 ára
en verða það að lokum. Reyndar er
hann Rabbi með mun eldri hluti en
það og er safnið stöðugt að stækka.
http://www.123. is/tobbivilla/
Nýfazddir Vcstmannacyingar:
ívar Atli fæddist þann 03. ágúst klukkan 18:40.
Skírður 4. október.
Hann vó 3420 gr og var 49 cm við fæðingu.
Foreldrar: Sigrún Sverrisdóttir og Smári Jökull
Jónsson.
Fæddist á Landsspítalanum í Reykjavík.
Kristinn Freyr fæddist þann 18. okt. klukkan 1:55.
Skírður 1. nóvember.
Hann vó 3920 gr og var 52 cm við fæðingu.
Foreldrar: Svanhildur H. Freysteinsdóttir og Sæþór
Jóhannesson.
Fæddist á Heilbrigðistofnun Vestmannaeyja.
Bænastundir virka daga kl: 7.15
ath. breyttann tíma.
Kyrrðarstundir virka daga kl. 17.00
með ljúfri tónlist og fyrirbæn í
boði, Drottinn blessi þig.
Aðventkirkjan
Laugardagur
Samkoma verður laugardaginn 15.
nóvember á Brekastíg 17 sem hefst
með biblíufræðslu kl. 10.30.
Guðsþjónusta kl. 11.30. Halldór Ö.
Engilbertsson prédikar.
Allir hjartanlega velkomnir.