Fréttir - Eyjafréttir - 29.10.2009, Síða 18
18
Fréttir / Fimmtudagur 29. október 2009
Glæsileg skemmtun á Versló
að þessu sinni var valinn Heiðar
Hinriksson.
Hápunktur skemmtidagskrárinnar
var hins vegar þegar Ingó úr
Veðurguðunum steig á svið og fór
fyrir fjöldasöng. Ingó er annálaður
skemmtikraftur sem nær vel til
fólksins enda ekki að ástæðulausu
sem hann er einn vinsælasti
skemmtikraftur landsins um þessar
mundir. Og það kom bersýnilega í
ljós í Höllinni á laugardag því einn
með gítarinn tókst honum að fá fólk
til að dansa og syngja og um tíma
var hluti gestanna dansandi uppi á
borðum, svo mikil var stemmningin.
Þrjár raddir og beatboxer stigu svo
aftur á svið á eftir Ingó og náðu
skiljanlega ekki að halda uppi jafn
góðri stemmningu og Ingó. Söngur
stelpnanna er þó afar flottur.
En þar með lauk skemmti-
dagskránni og í kjölfarið fylgdi
stórskemmtilegur dansleikur þar
sem Ingó og Veðurguðirnir léku
fyrir dansi en þegar mest var, voru
um 500 manns á dansleiknunr og
stuðið eftir því. Versló ‘09 var því
mjög vel heppnað og stórskemmti-
leg uppákoma.
Á laugardaginn var Verslunar-
mannahallið haldið mcð pompi og
prakt í Höllinni en hallið er orðið
einn af föstu punktum skcmmt-
nnalífsins í Eyjum cftir að hafa
verið endurvakið fyrir nokkrum
árum. Um 250 manns voru í mat
og skemmtun en skipulag salarins
gerði það að verkum að það var
eins og 400 manns væru í salnum.
Ekki var að sjá annað en að fólk
skemmti sér konunglega og
maturinn var frábær.
Eftir að fólk hafði gætt sér á girni-
legum kræsingum Einars kalda og
félaga þá tóku skemmtiatriðin við,
eitt af öðru. Þrjár raddir, ásamt
beatboxer stigu fyrst á svið og flutt-
ningur þeirra var góður. Sveinn
Waage flutti gamanmál í eigin
persónu en síðar um kvöldið steig
skosk hliðarpersóna hans fram,
Brian McBastard, sem náði þó ekki
nærri jafn vel lil áhorfenda og
Sveinn. Svanhildur Guðlaugsdóttir,
fyrrum formaður Félags kaupsýslu-
manna í Vestmannaeyjum var
heiðruð fyrir störf sín síðustu ár og
lögreglumenn notuðu tækifærið og
útnefndu lÖEreglumann ársins sem
Veðurguðirnir slógu í gegn
hjá ungum Eyjamönnum
Ingó og Veðurguðirnir skildu
unga aðdáendur sína í
Vestmannaeyjum ckki út undan
þegar þeir komu hingað um
síðustu helgi. Sveitin skellti upp
unglingaballi á Volcano Café þar
sem unga fólkið fjölmennti og
skemmti sér konunglega. Það var
reyndar erfitt að sjá hvort
gestirnir eða hljómsveitar-
meðlimir hali skemmt sér betur
enda mikið fjör þegar Ingó og
Veðurguðirnir eru annars vegar.
Sveitin tók öll sín vinsælustu lög
og tók unga fólkið vej undir í ilest-
um lögunum. Oskar Pétur
Friðriksson fangaði stemmning-
una á ballinu.