Fréttir - Eyjafréttir


Fréttir - Eyjafréttir - 17.12.2009, Side 10

Fréttir - Eyjafréttir - 17.12.2009, Side 10
10 Fréttir / Fimmtudagur 17. desember 2009 HÓPURINN sem mætir í hæfíngu, Júlíanna, Ólafur, Þóra, Anton, Dæja og Alfreð. Hæfingarstöðin Hamar hefur verið starfrækt í Eyjum síðan í febrúar á þessu ári: Markmiðið að draga úr áhrif- um fötlunar og auka hæfni til starfa og þátttöku í daglegu lífi -Guðbjörg Sigurgeirsdóttir leit við og ræddi við forstöðukonu og fólk í hæfingu Viðtöl Gúðbj'örg STgúrgeifsdöffir' gudbjorg @ eyjafrettir. is Hæfingarstöðin Humar hefur verið starfrækt síðan í febrúar á þessu ári Opnun hæfingarstöðvar hefur verið í burðarliðnunt um nokkurt skeið enda gera lög unt málefni fatlaðra nr. 59/1992 ráð fyrir að starfræktar séu hæfmgarstöðvar fyrir fatlaða. Markmið hæfingar er að draga úr áhrifum fötlunar og auka hæfni til starfa og þátttöku í daglegu lífi. Með tilkomu Hamars hæfmgar- stöðvar hefur verið aukið við at- vinnutengda fjölbreytni í þjónustu við fullorðna fatlaða. Fjölbreytt verkefni og sveigjanlegt umhverfi Jóhanna Hauksdóttir, umsjónar- þroskaþjálfí, segir að á Hamri sé veitt dagþjónusta, hæfing og eða starfsþjálfun en það fari allt eftir áhuga, færni og hæfni hvers og eins. „Markmiðið er fjölbreytt verkefni og sveigjanlegt umhverfi auk þess sem unnið er að atvinnu- leit á almennum vinnumarkaði, óski fólk þess og eigi þess nokkum kost. Við atvinnuleit erum við í tengsl- um við atvinnuráðgjafa fatlaðra en hlutverk hans er m.a. atvinnuleit og stuðningur úti á almennum vinnu- markaði. Verkefni sem innt eru af hendi á Hamri miða að þjónustu við almenning og er lögð áhersla á ÓLA fínnst gaman að vinna við tölvuna. tengingu við samfélagið. Við erum í samstarfi við Heimaey kertaverk- smiðju og fáum þaðan verkefni auk þess sem hluti af okkar fólki starfar árstíðabundið í Heimaey. Einnig erum við í samstarfi við bókasafnið og eru unnin sérstök skráningar- verkefni fyrir safnið. Auk starfs- tengdra verkefna leggjum við áherslu á hreyfingu, tómstundir og aíþreyingu auk ýmissa starfa sem tengjast heimilishaldi og daglegum athöfnum. Þá höfum við talsvert unnið með sköpun og vinnum handverk sem er til sölu hjá okkur og bjóðum við gesti velkomna sem vilja skoða og kaupa hjá okkur handunna muni,“ sagði Jóhanna en hún stýrir starfinu á Hamri. Ég hef áhuga á tölvum -segir Óli sem nýlega gaf út bók Ólafur Jónsson ræðst ekki á garð- inn þar sem hann er lægstur því hann er nýbúinn að gefa út bókina Sögumar hans Óla og hefur selst ágætlega. Hann hefur skrifað sögur í mörg ár og hefur sérstakan áhuga á tölvum og vinnur verkefni fyrir Bókasafn Vestmannaeyja. „Eg er búinn að vera mörg ár að semja sögur og viðtökurnar hafa verið góðar, það eru allir mjög já- kvæðir. Ég skrifa beint á tölvuna og þeir hjá Eyrúnu settu upp og prent- uðu. Ég er búinn að selja hundrað eintök og bókin fæst líka í Odd- inum. Kristleifur tekur ekkert fyrir að selja hana,“ sagði Óli og var í framhaldinu spurður hvað honum líki best að starfa við á Hamri. „Ég hef áhuga á tölvum og mér finnst gaman að vinna á þær. Ég skrifa sögur og svo er ég með tölvuverkefni fyrir Kára á Bóka- safninu. Ég er leita að fréttum frá Vestmannaeyjum,“ sagði Óli og verkefnið snýst um að finna fréttir frá Eyjum sem birtast í vefmiðlum. Leitarvél með nokkrum uppfletti- orðum leitar fréttina uppi sem hann klippir út og færir inn í sérstakt skjal. Þetta er mikil nákvæmisvinna og mikilvægt að setja inn réttar dagsetningar og Óli er mjög nákvæmur og ræður vel við þessa vinnu og þeir sem koma að tölvu- vinnu á Hamri eru langt komnir með að vinna Fréttablaðið. Ólafur vinnur líka við verkefni í Kertaverksmiðjunni en þeir sem sækja hæfingu eiga kost á tíma- bundinni vinnu á tímabilinu sept- ember til desember. „Mér líkar vel að vinna í tölvu en við erum að fást við misskemmtileg verkefni héma. Það er tilbreyting að vinna við kertin og gaman að hitta gömlu félagana. Ólafur vinnur líka við að brjóta Herjólfsbakkana og segir ágætt að fara í þá á ntilli en mark- miðið er að fá atvinnu með stuðn- ingi úti á hinum almenna vinnu- markaði. En ertufarinn að undirbúa jólin? „Já, ég er búinn að kaupa allar gjafir. Ég á kærustu, hún heitir Sólveig Harpa og býr á Sauðár- króki,“ sagði Óli og er hæstá- nægður því kærastan ætlar að heimsækja hann febrúar. „Hún ætlar að koma þegar ég á afmæli. Fyrri kærastan mín bjó á Selfossi en það gekk ekki upp hjá okkur," sagði Óli en hann hefur þekkt Sólveigu Hörpu síðan 1993. „Ég kynntist henni fyrst í Svíþjóð á Norðurlandamóti í sundi og frjálsum. Þar vann ég mörg verð- laun en ég á fimmtíu verðlauna- peninga og bikara. Ég æfi sund og boccia og kærastan mín æfir líka boccia og við hittumst stundum á mótum sem haldin eru í Reykja- vík,“ sagði Óli hress og glaður. Mér finnst gaman í myndlist -segir Dæja, alltaf kát og hress Guðríður Haraldsdóttir vinnur við tölvuverkefni tvisvar í viku auk þess sem hún kemur að þæfingu og kortavinnu á Hamri. Hún færir blaðamanni forláta baðsápu sem hún þæfði utan um í fallegum bleikum og gráum litum. Þæfing

x

Fréttir - Eyjafréttir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.