Fréttir - Eyjafréttir - 17.12.2009, Side 12
12
Fréttir / Fimmtudagur 17. desember 2009
ANTON nýtur lciðsagnar í handavinnunni.
ÞÓRA prjónar á stokkinn.
JÓLASKRAUTIÐ sett upp. Jóhanna, Alfreð og Anton.
utan um sápur er eitt af þeim
verkefnum sem fólkið á hæfingar-
stöðinni vinnur við og sápurnar
virka þá sem ekta líkamsskrúbbur.
Sápurnar seljast eins og heitar
lummur og alltaf biðlisti eftir
sápum.
„Eg vinn á tölvu tvisvar í viku, á
móti Óla,“ sagði Dæja þegar hún
var spurð út í helstu verkefnin.
„Við vinnum þetta í samtarfi við
Kára á Bókasafninu," bætir hún við
og nefnir síðan kortaverkefnin. „Eg
byrja á því að mála myndir og svo
eru þær notaðar á gjafakortin sem
við seljum hérna. Mér finnst
skemmtilegt í myndlist og sérstak-
lega er gaman að vinna vatnslita-
myndir," sagði Dæja og er listræn í
sér því hún kemur líka að því að
skreyta kerti með perlum og svo
vinnur hún líka við þælingu.
Ég þæfi stykki og úr þeim verða
til glasamottur og svo þæfum við
líka og útbúum Tryggðatröll. Þau
eru líka mjög vinsæl, og seljast
ágætlega," sagði Dæja og það er
aldrei nein lognmolla um hana enda
er hún alltaf glöð og hress. Ég útbý
líka trefla, mér finnst skemmtilegt á
Hamri,“ segir Dæja og þegar hún er
spurð frekar út í hvað sé skemmti-
legast, segir hún „bara allt.“
„Mér finnst fínt að vera á hæfmg-
arstöðinni eins og þetta er. Ég fór
að vinna í Kertaverksmiðjunni í
haust en brotnaði illa á annarri
hendinni. Ég varð að hætta þess
vegna en það er best að hafa
tilbreytingu og erfitt að vera alltaf í
þessu sama. Það er hundleiðinlegt,"
sagði Dæja og auðvilað byrjuð að
undirbúa jólin. „Já, ég er byrjuð að
undirbúa jólin og það er skemmti-
legt. Alltaf gaman um jólin."
s
Eg er búin að
sauma fullt af
myndum
-segir Júlíana
Júlíana Haraldsdóttir er virkilega
flink að sauma og hún hefur saum-
að fjölda mynda út í stramma.
Núna er hún að sauma jólamynd og
sporin eru mjög jöfn og fallega
unnin. „Ég er búin að sauma fullt
af myndum og finnst það gaman,"
sagði Júlíanna en hún kaupir garn
og myndir á handavinnustofunni á
Hraunbúðum og henni finnst
gaman að koma þangað og skoða
úrvalið.
„Ég er líka að þæfa. Við þæfðum
sápur í gær, mér finnst Ifka gaman
að vinna við heimilisstörf," sagði
Júlíanna en hún hefur mikinn áhuga
á öllu sem tengist heimilishaldi.
Hún hefur gaman að því að baka,
þurrka af, þvo þvotta og brjóta
saman þvott. Og það er Júlíanna
sem sér um að vökva blómin á
Hamri.
Boðið er upp á heitan mat í há-
deginu sem er eldaður á staðnum
og þar er lagt er upp úr að vera
með hollan mat og stunda hreyf-
ingu. Þar af leiðandi fara þeir sem
eru á Hamri í gönguferðir og í leik-
fimi. „Hún varð ólétt stelpan sem
sá um leikfimina,“ segir Júlíana og
brosir.
„Það er skemmtilegt í leikfimi hjá
Steinu og við erum búin að sjá
mynd af litlu stelpunni. Hún kemur
kannski aftur til okkar þegar litla
stelpan er orðin stærri," segir hún
vongóð um að fá Steinu aftur til
starfa á Hamri.
Júlíana er líka að vinna í Kerta-
verksmiðjunni og fyrr um morg-
uninn var hún að bursta kerti en
oftast er hún að pakka kertum t.d.
litlu englakertunum. Hún er farin
að undirbúa jólin og átti aðeins eftir
að kaupa tvær jólagjafir þegar við-
talið fór fram.
„Mamma er búin að setja jólaljós
út í glugga en ég vil ekki hafa
kveikt á þeim þegar ég fer að sofa.
Ég veit hvað ég fæ frá mömmu í
jólagjöf, ég mátti velja,“ sagði
Júlíanaog bíður spennt eftir
jólunum.
Þóra prjónar trefla
á prjónastokk
Þóra Magnúsdóttir prjónar trefla og
smyrnar myndir þegar hún er á
Hamri. Hún prjónar á prjónastokk
en það var enginn önnur en Júlí-
anna sem kenndi henni að prjóna á
stokkinn. Júlíanna var svo heppin
að fá prjónastokk frá ömmu sinni
og síðan voru fleiri smíðaðir og nú
er hægt að kaupa þessa ffnu trefla á
Hamri eftir Þóru, Júlíönnu og
Anton.
„Það er gott að vera hérna,“ sagði
Þóra þegar hún var spurð hvernig
henni líki á Hamri og það er stutt í
brosið því hún er bæði glaðlynd og
góð. Hún vann áður í Kertaverk-
smiðjunni en vill heldur vera á
Hamri og það mikilvægt að hafa
val því ekki hentar öllum að starfa
við það sama. Þóra gerir líka
fallegar myndir í vatnslitum sem
nýtast vel á gjafakortin. Þóra fer
líka í tölvuna sem afþreyingu og
leggur kapal o.fl.
„Ég er líka að þæfa, glasamottur
og klæði utan um steina og sápur.
Við vorum í jólasápugerð í gær,“
sagði Þóra en hún fer líka í tölvuna
og notar hana þá sem afþreyingu,
leggur kapal o.fl. Fólkið á Hamri
hefur líka verið að leira og nú er
ætlunin að vera í samstarfi við
Grunnskóla Vestmannaeyja um að
brenna leirinn í ofninum þar enda
brennsluofnar mjög dýrir.“
Þegar Þóra er spurð hvort hún sé
farin að undirbúa jólin brosir hún
og segist vera búin að skreyta. „Ég
fór á tónleika í gærkvöldi með Páli
Oskari og Diddú, það var alveg
frábært. Síðan var jólamót hjá
íþróttafélaginu Ægi og það var
gaman.“
Anton fékk að
stjórna Lúðra-
sveitinni
Anton Sigurðsson hefur áhuga á
handavinnu, prjónar trefla á prjóna-
stokk, nýbúinn með einn og er að
byrja á öðrum. A Hamri eru
nokkrar smiðjur þar sem ákveðin
verk eru unninn. Herjólfsbakkarnir
eru settir saman og heftaðir í
Ægissmiðjunni og þar sem ein
smiðjan var kennd við karlkynið þá
var um að gera að fá Freyjusmiðju
og þar eru gjafakortin unnin, perlað
o.s.frv.
Tæknismiðjan er þar sem tölv-
umar eru en Anton hefur ekki
mikinn áhuga á að vinna við tölvur.
„Tölvan mín er biluð en ég fæ að
fara í tölvuna hjá mömmu. Mín er í
viðgerð. Ég er með síðu á Face-
book, “ sagði Anton.
Þegar hann er spurður út í jóla-
undirbúninginn segist hann hafa
verið í jólaboði þar sem Lúðrasveit
Vestmannaeyja kom og hann fékk
að stjórna sveitinni. „Jarl leyfði mér
að stjórna og hann ætlar að láta mig
vita ef það vantar stjórnanda. A
mánudag verður helgistund í
kirkjunni sem kirkjustarf fatlaðra
stendur fyrir. Við bjóðum vinum og
fjölskyldu," sagði Anton en hann
fer alltaf í Olís á laugardögum og
það er svaka gaman.
„Ég er kominn í jólafrí í Olís svo
ég sef út á morgun,“ sagði Anton
en spjall okkar fer fram á föstudegi.
„Jú, ég er ánægður og vil vera
áfram á Hamri. Svo fer ég á jóla-
hlaðborð í Höllinni með Gleði-
gjöfunum, sem er félagsskapur fyrir
18 ára og eldri, þannig að það er
nóg að gera,“ sagði Anton.
JÚLÍANNA er búin að snuma fullt af myndum í stramma.
DÆJA cr mjög ánægð með starfið á Hamri þar sem hún hefur nóg að gera.