Fréttir - Eyjafréttir


Fréttir - Eyjafréttir - 17.12.2009, Blaðsíða 14

Fréttir - Eyjafréttir - 17.12.2009, Blaðsíða 14
14 Fréttir / Fimmtudagur 17. desember 2009 Krakkarnir á fimm ára deildinni í Hamarsskóla líta sínum augum á jólin: Jólasveinarnir eiga heima í Heimakletti Viðtöl Júlíus G. Ingason Julius@eyjafrettir. is Eins og allir vita eru jólin hátíð barnanna og fullorðnir upplifa jólin sterkt í gegnum börnin. Reyndar er það þannig að börn á öllum aldri fá stjörnur í augun og fiðring í magann þegar líður á desembermánuðinn en yngstu börnin sjá jólin oft á tíðum í öðruvísi og skemmtilegu ljósi. Júlíus G. Ingason leit við inni á nýrri 5 ára deild Grunnskóla Vestmannaeyja og spurði nemendur þar út í jólahátíðina. Daníel Frans Davíðsson: Af hverju höldum við jólin ? Af þvf að Jesúbarnið fæddist og til að fagna afmælinu. Attu þér uppáhalds jólasvein? Stúfur, af því að hann er svo lítill. Hvað ertu búinn aðfá í skóinn? Fyrst fékk ég nammi hjá Stekkjar- staur og svo er ég búinn að fá svona skóladót. Hvernig setur jólasveinninn dótið í skóinn? Hann fer með pokann og setur í hann. Hjá sumu lólki er ekki læst. Hjá mér er læst en þá fer hann bara inn um gluggann. Hvar heldurðu að jólasveinarnir eigi heima? Daníel Frans Uppi í fjalli. Ég prófaði að kíkja upp í fjall með kíki en sá þá ekki. Hvað langar þig aðfá í jólagjöf? Bara svona bílaleik fyrir tölvuna. Ætlarðu að gefa einhverjum jóla- Sjöf? Já, litla bróður. Ég ætla að gefa honum eitthvað dót. Ætlarðu á jólaball? Já. Finnst þér gaman að dansa í kringum jólatréð? Já. Birkir Haraldsson: Af hverju höldum við jólin? Út af því að þá koma tröllin. Grýla og Leppalúði koma líka og líka jólasveinarnir af því að þeir koma til að gefa okkur í skóinn. Attu þér uppáhalds jólasvein? Hurðaskellir. Af því að hann skellir hurðinni svo fast og þá veit ég að hann er kominn. Hvað ertu búinn að fá í skóinn ? Bolta, nammi, Leiftur McQueen vettlinga. Hvernig setur jólasveinninn dótið í skóinn ? Hann tekur eitt dót og setur það bara í skóinn. Hann fer sko í gegnum rúðurnar og notar töfrastaf. Hvar heldurðu að jólasveinarnir eigi heima? I fjöllunum, sko inni í þeim. Það er geðveikt flott þarna og þeir fá frið heima hjá sér. Hvað langar þig að fá í jólagjöf? Birkir Mig langar í dótastrætó, svona grænan. Ætlarðu að gefa einhverjum jóla- gjöf? Já, Boga frænda. Ætlarðu á jólaball? Já ég ætla að hitta jólasveinana þar. Finnst þér gaman að dansa í kringum jólatréð? Já. Sigrún Ýr Halldórsdóttir: Afhverju höldum við jólin? Út af því að það eru bráðum að komajól og þá koma jólasveinarnir. Attu þér uppálialds jólasvein ? Já, það er Stúfur. Hvað ertu búin aðfá ískóinn? Vettlinga, nærbuxur, bangsa og leik fyrir Nintendo. Hvemig setur jólasveinninn dótið í skóinn ? Stúfur er svo lítill að hann verður að stíga upp á rúmið mitt til að setja í skóinn. Ég á svo stórt rúm sem nær alveg upp í glugga. Hvar heldurðu að jólasveinarnir eigi heima? Uppi í fjöllum, í fjallinu sem er í miðjunni. Hvað langar þig í aðfá í jólagjöf? Dúkku. Það er til ein svona sem er ekki alveg venjuleg. Hún leggst alveg niður. Ætlarðu að gefa einhverjum jóla- gjöf? Sigrún Ýr Ég á systur og ég ætla gefa henni og líka pabba. Ég er búin að vera að föndra og svona. Ætlarðu á jólaball? Veit ekki. Ég var einu sinni í ftm- leikum, f græna hópnum og þar var jólaball. En ég fer kannski með vinkonum mínum, Agústu írisi, Guðbjörgu Sól, Söru Maríu, Krist- björgu, Sögu og fleirum. Finnst þér gaman að dansa í kring- um jólatréð? Já. Breki Þorbjörnsson: Afhverju höldum við jólin? Þá koma jólasveinamir. Þeir eru sex. Attu þér uppáhalds jólasvein? Já, Kertasníki og Þvörusleiki. Hvað ertu búinn aðfá ískóinn? Svona sjóræningja og hauskúpu. Hvernig setur jólasveinninn dótið í skóinn? Hann opnar bara gluggann. Hvar heldurðu að jólasveinarnir eigi heinta? I Jólafjöllunum. Jólakötturinn, Grýla og Leppalúði eiga líka heima þar. Grýla étur vondu bömin. Ég er alltaf góður. Hvað langar þig í aðfá í jólagjöf? Spiderman og jólasveinaplaymo. Ætlarðu að gefa einhverjum jólagjöf? Já, ég ætla að gefa ömmu minni. Ætlarðu á jólaball? Nei, mér finnst það leiðinlegt. Finnst þér gaman að dansa í kringum jólatréð? Já. Þorgerður Katrín Adolfs- dóttir: Af liverju höldum við jólin? Út af því að þá koma jólasvein- arnir. Attu þér uppáhalds jólasvein? Stúfur, af því að hann er svo lítill. Hvað ertu búin aðfá í skóinn? Bók, prinsessukúlur og Hello Kitty sokka. Hvernig setur jólasveinninn dótið í skóinn ? Hann fer í gegnum gluggann af því að hann er opinn. Hann teygir bara höndina inn. Hvar heldurðu að jólasveinarnir eigi heima? Uppi í fjalli. Hvað langar þig í aðfá í jólagjöf? Barbie hest. Mér finnst mest gaman að leika mér með Barbie. Ætlarðu að gefa einhverjum jólagjöf? Já ég ætla að gefa Helga Þór og Sigurbimi sem eru bræður mínir. Ætlarðu á jólaball? Já ég ætla að dansa og hitta jóla- sveinana. Finnst þér gaman að dansa í kringum jólatréð? Já, þá syngjum við jólalögin. Breki Þorgerður Katrín

x

Fréttir - Eyjafréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.