Fréttir - Eyjafréttir - 17.12.2009, Page 16
16
Fréttir / Fimmtudagur 17. desember 2009
4
Sara María
Sara María Ólafsdóttir:
Afhverju höldum vifl jólin?
Svo við getuiri fengið pakka.
Aitu þér uppáhalds jólasvein?
Stúfur. Hann gaf mér dagatal og
sleikjó. Líka svona snjókarl í kúlu
sem er hægl að kveikja á en ég
verð að passa að hún springi ekki.
Hvafl erlu búin að fá í skóinn ?
Sleikjó, dagatal, ofsaflotta dúkku
en henni fylgdi gítar, föt, skór og
greiða.
Hvernig setur jólasveinninn dótifl í
skóinn ?
Ef dótið er of stórt, þá geymir hann
það í glugganum hjá skónum.
Systir mín sér ekki skóinn sinn og
hún þarf að fara fram úr til að kíkja
í skóinn.
Hvar heldurðu að jólasveinarnir
eigi heima?
I Heimaklelti.
Hvað langar þig í aðfá íjólagjöf?
Svona dúkku sem er með takka og
þegar þú ýtir á hann þá getur hún
labbað sjálf. Svo langar mig líka í
Bratz myndina og Audda og
Sveppa. Kannski líka Leitina að
Villa.
Ætlarðu að gefa einhverjum
jólagjöf?
Já. Elísu, uppáhalds frænku minni,
Þorgerði, Kristbjörgu og Emelíu
sem er lilla frænka mín. Hún
kúkaði einu sinni á leppið og á
spegil.
Ætlarðu á jólaball?
Já. Eg ætla að fara í flottan kjól og
dansa.
Finnst þér gaman að dansa í kring-
um jólatréð?
Já.
Gunnar Bjarki
Sveinsson:
Afhverju höldum við jólin?
Ég veit það ekki.
Attu þér uppáhalds jólasvein?
Gunnar Bjarki
Já tvo, Stúf og Stekkjarstaur. Mér
finnst þeir skemmtilegir.
Hvafl ertu búinn að fá ískóinn?
Límmiða, fótboltakarl og Pétuf
Pan. , .
Hvernig setur jólasveinhinn dótið í
skóinn ?
Veit það ekki en það er allavega
enginn strompur í mínu húsi.
Hvar heldurðu að jólasveinarnir
eigi heima?
I fjöllunum. Ég kíkti einu sinni
upp í ljall með kfki en sá engan.
Hvað langar þig í aðfá í jólagjöf?
Hamstur með bandi. Ég sá svo-
leiðis í dótablaði. Svo langar mig
líka í Spiderman.
Ætlarðu að gefa einhverjum jóla-
gjöf?
Veit það ekki.
Ætlarðu á jólaball?
Já, kannski í skólanum.
Finnst þér gaman að dansa í
kringum jólatréð?
Já, já.
Guðbjörg Sól Sindra-
dóttir:
Afhverju höldum við jólin?
Út af því að þá fær maður jólagjafir
og nýtl dót.
Attu þér uppáhalds jólasvein?
Það er Stúfur af því að hann gaf
mér styttu og svo klippti hann líka
á mér neglurnar.
Hvafl ertu búin aðfá ískóinn?
Sleikjó. Einu sinni þegar ég var
fjögurra ára þá fékk ég kartöflu af
því að ég vildi ekki gera G-stafinn
minn. Maður fær nefnilega kart-
öflu ef maður er óþægur.
Hvernig setur jólasveinninn dótið
og kartöflurnar í skóinn?
Hann notar löfrastiga til að komast
upp en ég held að þeir opni svo
bara dyrnar.
Hvar heldurðu að jólasveinarnir
eigi heima?
Guðbjörg Sól
Unnur Birna
I fjöllunum.
Hvað langar þig í að fá í jólagjöf?
Ég fékk allavega hamstur í
afmælisgjöf. Amma mín, sem
heitir Guðbjörg eins og ég, er búin
að skrifa upp lista. Ég vil fá
Barbie, Bratz og Michael Jackson
mynd.
Ætlarðu að gefa einhverjum
jólagjöf?
Já, Emelíu Erlu af því að hún
verður hjá okkur á jólunum. Hún
er frænka mín.
Ætlarðu á jólaball?
Já, ég fer með Sigrúnu Yr.
Finnst þér gaman að dansa í
kringum jólatréð?
Já.
Ragnar Orri Ingi-
marsson:
Afhverju höldum við jólin?
Kannski af því að jólasveinarnir eru
að koma.
Attu þér uppáhaids jólasvein?
Ragnar Orri
Nei, þ'eir eru allir uppáhalds.
Hvafl ertu búinn aðfá ískóinn?
Jólabók og nammi. Ég fékk enga
kartöflu en ég fékk Ifka dótahjóla-
bretti.
Hvernig setur jólasveinninn dótið í
skóinn?
Jólasveinarnir hoppa upp í rúmið,
setja í skóinn og fara svo að tala
við mömmu og drekka kaffi.
Hvar heldurðu að jólasveinarnir
eigi heima?
Uppi í fjöllunum.
Hvaö langar þig í að fá í jólagjöf?
Eitthvað svona fallegt, fallegt dót til
dæmis og einhvern fallegan bíl sem
er bestur í heiminum og getur
stokkið alveg lengst upp í geim.
Ætlarðu að gefa einhverjum
jólagjöf?
Jebb, Leifi Magnúsi vini mínum og
ég ætla líka að gefa mömmu minni
einhverja fallega gjöf.
Ætlarðu á jólaball?
Já ég held það.
Finnst þér gaman að dansa í
kringum jólatréð?
Alltaf.
Hinrik Hugi Heiðarsson:
Afhverju höldum við jólin?
Út af því að... ég man það ekki.
Attu þér uppáhalds jólasvein?
Það er Stekkjarstaur. Hann er
skemmtilegur af því að hann gaf
mér playmo gullritara í skóinn.
Hvað ertu búinn að fá ískóinn?
Gullritarann, nærbuxur, sykurpúða
og hárbursta.
Hvernig setur jólasveinninn dótið í
skóinn ?
Hann opnar gluggann, fer svo inn
og setur í skóinn.
Hvar heldurðu að jólasveinarnir
eigi heima?
Uppi í fjöllum.
Hvað langar þig í að fá í jólagjöf?
Mig langar í einhvað lögguplaymo
Hinrik Hugi
og sparihanska.
Ætlarðu að gefa einhverjum
jólagjöf?
Ég ætla að gefa Arnari Berg, vini
mínum.
Ætlarðu á jólaball?
Bara einhvern tímann.
Finnst þér gaman að dansa í kring-
um jólatréð?
Já.
Unnur Birna Hall-
grímsdóttir:
Af hverju höldum við jólin?
Út af því að Jesús fæddist.
Attu þér uppáhalds jólasvein?
Kerstasníkir, út af því að stundum
þegar hann kemur þá gefur hann
mér eitthvað flott í skóinn.
Hvað ertu búin aðfá í skóinn?
Ég man ekki alveg lengur hvað ég
fékk.
Hvernig setur jólasveinninn dótið í
skóinn ?
Kannski stingur hann hendinni inn
um opinn gluggann. Stundum opna
ég gluggann fyrir þeim.
Hvar heldurðu að jólasveinarnir
eigi heimal
1 fjöllunum.
Hvað langar þig í aðfá í jólagjöf?
Ég hef óskað mér Barbie en mest
langar mig í Bratz eða Pony hest.
Kannski fæ ég Pony hest í skóinn í
nótt. En þegar ég var lítil þá fékk
ég kartöflu en núna er ég breytt og
fæ ekki kartöflu í skóinn.
Ætlarðu að gefa einhverjum
jólagjöf?
Já en ég veit bara ekki hvað ég á að
gefa mömmu og pabba.
Ætlarðu á jólaball?
Já og mig langar að fara í Fríðu-
búningi.
Finnst þér gaman að dansa í
kringum jólatréð?
Já, en einn daginn var ég bara svo
feirnin að ég þorði ekki að dansa.
SKÓLALÚÐRASVEITIN fór um bæinn á föstudaginn og spilaði á nokkrum stöðum. Hér eru krakkarnir í Miðstöðinni en þau verða aftur á ferðinni á Þorláksmessu.