Fréttir - Eyjafréttir


Fréttir - Eyjafréttir - 17.12.2009, Qupperneq 20

Fréttir - Eyjafréttir - 17.12.2009, Qupperneq 20
20 Fréttir / Fimmtudagur 17. desember 2009 Ég spilaði á nikkuna, klæddur í gervið. Þegar karlinn var orðinn fullur og fór að leita á mig sagðist ég þurfa að fara fram á klósett. Þá fór ég inn í mitt herbergi, þreif mig í framan og skellti mér í mín eigin föt. Síðan bankaði ég upp á hjá honum, en hann hleypti mér ekki inn. Það skipti mig engu máli þar sem ég var hvort sem var orðinn blindfullur. Með hönd á því allra heilagasta Svona gekk þetta tvær helgar í röð. Ég mætti til hans í fullum skvísu- skrúða en lét mig hverfa þegar hann gerðist of ágengur. Eftir það var karlinn víst farið að gruna eitt- hvað. „Þegar skvísan fer, kemur Gylfi alltaf rétt á eftir og vill komast inn.“ Þegar við ætluðum að leika þetta þriðju helgina í röð fékk ég ekki sömu móttökur og áður. Alli hafði ekki kveikt á neinum kertum og virtist ekki eins glaður að sjá „vinkonu“ sína og vanalega. Aður en ég vissi hvaðan á mig stóð veðrið rauk hann með krumluna í klofið á mér og áður en ég vissi hafði hann náð föstu taki á mínu allra helgasta. Það virtist ekki duga honum að grípa og finna að þarna væri eitthvað sem hentaði honum ekki, heldur togaði hann nú af öllu afli og ég hélt hann ætlaði að slíta hann af mér. Eftir nokkra slund losaði hann þó takið og ég átti fótum mínum fjör að launa. Hann varð að sjálfsögðu brjálaður, og sama er að segja um alla þá á ver- búðinni sem ekki tóku þátt í grín- inu. Þeim þótti illa farið með aum- ingja Alla. Ég hef allar götur síðan haldið því fram að hann hafi lengt á mér fermingarbróðurinn um nokkra sentimetra í þessum átökum. í slagsmálum á Lillabar Við strákarnir héldum áfram að drekka þótt ekki væri hægt að leika stelpu lengur til að verða sér úti um sopa. Það varð þó erfiðara að bjarga sér um ábót þegar við urðum uppiskroppa með áfengi. Einu sinni þegar okkur vantaði vín kom einn félagi okkar með stórt ílát fullt af einhverju ávaxtasulli sem hann hafði bruggað. Þetta drukkum við þangað til við fórum á Lillabar seinna um kvöldið. Aður en langt um leið höfðu brotist út slagsmál inni á staðnum og löggan mætti á svæðið. Steini bróðir og Dóri slógust við einhverja náunga og börðust svo við lögguna þegar hún reyndi að skakka leikinn. Ég stóð hins vegar álengdar og reyndi að forðast að blanda mér í þessa styrjöld sem endaði með því að löggan sneri Steina niður og settist ofan á hann. Dóri fékk svipaða meðferð. Síðan voru þeir settir í járn og hent í fangaklefa. Stungið í grjótið Ég vissi ekki hvað ég átti af mér að gera á meðan þeir sátu inni. Eftir að hafa ráfað um bæinn frameftir kvöldi ákvað ég að fara niður á lögreglustöð til að forvitnast um hvort ekki ætti bráðum að sleppa þeim út. Lögregluþjónn kom til dyra, en áður en ég náði að bera upp spurninguna var búið að þrffa í öxlina á mér og henda mér inn í klefa. Klefinn minn var beint á móti þeim sem Steini var í. Ofar- lega á hurðinni var lítið kringlótt gægjugat. Nú sá ég hvar Steini var að reyna að troða hendinni úl um gatið og freista þess að opna klef- ann. Hann var grannur og með langar og mjóar hendur, en hafði ekki erindi sem erftði og gafst upp á endanum. Mín fyrsta nótt af mörgum í fangaklefa reyndist þó ekki svo slæm. Við Steini skemmtum okkur konunglega við að hlusta á foringj- ann kalla háskælandi á mömmu sína úr klefanum. Hún var á Siglu- ftrði og heyrði auðvitað ekkert í honum. Eftir á að hyggja var hann sá eini af okkur með viti - hann iðraðist en ekki við. Of ungur til að stinga inn Daginn eftir var réttað yfir okkur. Þetta var árás á lögreglu og því þurfti að kalla til dómara. Ég var leiddur fyrir hann þótt ég hefði ekki slegist við lögguna. Þegar dómarinn spurði mig hvenær ég væri fæddur kom skrítinn svipur á hann. Hann vissi sem var að það mátti ekki stinga mér inn, því ég var ekki nema fimmtán ára. Það vissi ég þó ekki fyrr en löngu seinna. Niður- staða dómarans var sú að reka okkur úr bænum og senda okkur heim með Herjólfi. Þessi niðurstaða dómarans var að mínu mati verri en fangelsisdómur. Þetta þýddi að nú þurfti ég að snúa aftur heim og horfast í augu við pabba - og taka afleiðingum gjörða minna. Það var því ekki einungis sjóveiki sem plagaði mig um borð í Herjólfi heldur bættist kvíðinn ofan á. Hann fylgdi mér í rútinni norður á Akureyri og magnaðist upp þegar við fórum um borð í Drang sem ferjaði okkur til Siglufjarðar. Skammaður fyrir að koma of seint heim Um leið og við komum í land á Siglufirði hittum við mann sem hét Kjartan og var tollvörður. Hann sagði okkur að það vantaði menn á fragtskipið Kötlu, svo að við Steini réðum okkur þangað áður en við fórum heim til að mæta pabba. Klukkan var tvö að nóttu þegar við birtumst heima. Pabbi tók á móti okkur blindfullur, faðmaði Steina að sér og kyssti og sagðist ánægður að fá hann heim. Mér benti hann hins vegar á að koma inn í stofu að tala við sig. Það hvarflaði að mér að hlaupa út í staðinn fyrir að fylgja honum inn í stofu, en ég lét mig hafa það. Pabbi gekk hægum skrefum inn í stofu, settist í sófann og benti á klukku sem hékk uppi á vegg. „Sérðu hvað klukkan er? Var ég ekki búinn að segja þér að koma heim klukkan tíu?“ Vissulega átti ég að koma heim klukkan tíu - en það hafði verið fyrir mánuði. Meira sagði hann ekki og ég slapp því ansi billega. Birt með leyfi útgefanda. Fyrirsögn og millifyrirsagnir eru Frétta. r \ Ós/qifjötsfylífu minm ojj vinum mmum, sanéýíisfófi og stafsfóí/q 9-íraunSúða flkðiíegrajóla ogfarscddar á /<pmandi ári ‘Paífa y/furfyrir vinsemd og umfujggju ígegnum ífið. V Inga Píaraldsdóttir, PíraunBúðum Kæru Vestmannaeyingar! Guð gefi ykkur heilagan jólafrið og gjöfult komandi ár. Þökkum ykkur þær móttökur sem við höfum fengið í Y estmannaeyjum. Kveðja Maríanna og Vamik

x

Fréttir - Eyjafréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.