Fréttir - Eyjafréttir


Fréttir - Eyjafréttir - 17.12.2009, Síða 23

Fréttir - Eyjafréttir - 17.12.2009, Síða 23
Fréttir / Fimmtudagur 17. desember 2009 23 STÓRFJÖLSKYLDAN kemur saman í tilefni af 60 ára afmæli Kristmanns og Kristínar en leiðir þeirra hafa legið saman síðan í 6 ára bekk. BRÆÐURNIR, Ágúst og Kristmann við störf í KK. Þessar stóru verslunarkeðjur eins og Kaupás, sem starfar hér, gera sína viðskiptasamninga við ís- lensku fyrirtækin sem framleiða vöruna sem ég fæ svo til mín og dreifi svo til Krónunnar og 11-11. Ég er tengdur tölvukerfi Olgerðar- innar og Kjörís og útbý nóturnar hér á þeirra reikninga og á kjörum sem viðskiptavinirnir hafa hver fyrir sig.“ Ölgerðin og ÍBV Ölgerðin hefur þróast og stækkað í tímans rás, hafið framleiðslu á söfum, bjór og áfengi. Er orðið eitt stærsta fyrirtæki landsins í inn- flutningi matvæla, áfengis, sæl- gætis, snyrtivara og fleira og fleira. „Ekki má gleyma samningi sem gerður var á milli IBV og Ölgerð- arinnar, sem staðið hefur í nokkur ár og hefur verið framlengdur til 2013. Þetta samstarf er mikill styrkur fyrir ÍBV og hefur eflt allt starf félagsins. Ölgerðin sér t.d. alfarið um að auglýsa og markaðssetja Þjóðhátíð Vestmannaeyja. Þetta samstarf hefur gert stöðu okkar hjá K.K. betri og hjálpað okkur mikið á markaðnum hér. I tilefni af 70 ára samstarfi Öl- gerðarinnar og K.K. verða ýmiss konar tilboð í gangi í bænum." Höfum aukið okkar hlut Það er vægt til orða tekið að segja að íslenskt samfélag hafi tekið koll- steypu síðustu misseri. Hvaða áhrif hefur það haft á reksturinn hjá ykkur? „Við höfum haldið okkar striki og gott betur. Staðan hér hefur verið allt önnur og betri en næstum alls staðar á landinu og við höfum náð að auka sölu og veltuna hjá okkur.“ Er breytt mynstur í innkaupum hjá fólki? „Við verðum ekki miidð vör við það. Þetta sveiflast bara eins og venjulega," segir Kristmann en hvað stendur upp úr þegar litið er til baka? „Við höfum verið mjög heppin með viðskiptavini. Þeir hafa verið okkur trygglyndir og tvö fyrirtæki hafa verið með okkur frá byrjun, Bæjar- sjóður og ísfélagið. Það er líka gaman að nefna það að þessi þrjú fyrirtæki eru, eftir því sem ég beist veit. þau elstu í rekstri í Vest- mannaeyjum í dag, Vestmanna- eyjabær, ísfélag Vestmannaeyja og við.“ Ber ekki kala til nokkurs manns Þegar minnst er á gjaldþrot fyrir- tækja viðurkennir Kristmann að hafa fengið sinn skammt af þeim. „Eigum við nokkuð að vera að ræða það?“ spyr Krislmann og hlær. „Ég er svo heppinn að geta hent því sem ég þarf ekki að vera að burðast með. Lít á þetta sem hluta af dæminu. Auðvitað verður að segjast eins og er að þau eru alltof mörg og alltof stór en það verður að taka því eins og öðru,“ segir Kristmann og ekki á honum að heyra að hann beri kala til nokkurs manns.“ Að lokum segir Kristmann að alltaf hafí þetta snúist um að skapa sér og sínum vinnu. Það hafi verið drifkrafturinn í rekstri Karls Kristmanns. „Þetta hefur alltaf verið fjölskyldufyrirtæki. Bræður mínir tveir hafa unnið með mér, systir konunnar minnar, Kristín og dæturnar þrjár og tveir tengdasynir. Annar þeirra, Ingólfur Arnarsson, er hér allt í öllu og barnabörnin hafa verið mjög liðtæk,. Einnig höfum við verið afar heppin með okkar starfsfólk." segir Kristmann að endingu og ekki annað á honum að heyra en að fyrirtækið eigi sér bjarta framtíð. ÍBV og ölgerðin hafa átt í farsælu samstarfi, ekki síst á þjóðhátíð. KAfeL KMSTKMb UMBQUtá 0B líl k ItVl .lít'l Uk* KK er til húsa við Ofanleitisveg þar sem útsýni er glæsilegt.

x

Fréttir - Eyjafréttir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.