Fréttir - Eyjafréttir


Fréttir - Eyjafréttir - 17.12.2009, Side 29

Fréttir - Eyjafréttir - 17.12.2009, Side 29
Fréttir / Fimmtudagur 17. desember 2009 29 SLAPPAÐ AF Hluti af hópnum með Birgittu Sunnu og Selmu GV og evrópska Comenius skólaverkefnið - Ferðalög til Tékklands og Finnlands: Komu þreyttar heim frá Tékklandi FLOTTAR Þarna kom sér vel að kunna að spranga. Comenius er evrópskt skólaverkefni þar sem skólar koma sér saman um og vinna að verkefnum og skóla- heimsóknum. Verkefnið tekur tvö ár og heitir okkar verkefni, Colour your maps, og tekur einn skóli frá fímm löndum þátt í því, Island, Danmörk, Finnland, Tékkland og Ítalía. Sem dæmi um verkefni sem nem- endur vinna að eru náttúran, gróð- ur, orka, mengun, vatnið, stjörnu- himinninn. útivist og fleira. Nemendur kynnast krökkum frá öðrum löndum, menningu þeirra og matarmenningu sem kemur þeim oft skemmtilega á óvart. Þau eru í sambandi á netinu við hvert annað auðvitað, MSN og Facebook og eru þannig búin að mynda einhver tengsl áður en þau hittast erlendis. Þegar út er komið gista krakkarnir á heimilum og þurfa að bjarga sér sjálfir því ekki eru allir góðir í ensku. Það er samt ótrúlegt hvernig þeir bjarga sér, eins og t.d. með líkamstjáningu og látbragðsleik. Við erum mjög stolt af nemendum okkar sem taka þátt í þessu verk- efni og ferðast með okkur út og eru um leið að koma fram fyrir Islands hönd. Nemendur okkar þykja mjög kurteisir og jákvæðir en eru líka kátir og ófeimnir. En því miður þá komast færri nemendur í þessar ferðir en vilja. Hópurinn er með heimasíður og dagblaðaútgáfu á netinu þar sem flest öll verkefnavinna skólanna fer inn á og slóðin þar er: http://maga- zinefactory.edu.fi/magazines/Colou rYourMaps/?artCat= 1 http://www.colouryourmaps.eu I maí fórum við til Tékklands og hér er ferðasaga þeirra Birgittu S. Bragadóttur og Selmu Jónsdóttur. Ferðasagan okkar, Tékk- land 7. til 16. maí 2009 Fimmtudaginn 7. maí lögðum við af stað, Birgitta Sunna og Selma nemendur í 9. bekk Bamaskólans, ásamt kennurunum Agústu Guðna- dóttur og Dóru Hönnu Sigmars- dóttur, með seinni ferð Herjólfs til Þorlákshafnar. Þaðan keyrðum við til Keflavíkur á gistiheimilið B&B þar sem við gistum í eina nótt. Einar með sjö ítölskum strákum Næsta dag, föstudaginn 8. maí, vöknuðum við klukkan 5, fómm upp á flugvöll og keyptum fullt af nammi. Svo flugum við til Amster- dam í Hollandi og þaðan til Prag í Tékklandi. Þar hittum við Italina. Þar tókum við strætó á neðan- jarðarhraðlestarstöð. Þegar allir voru komnir upp í lestina nema Agústa og ítölsku kennararnir lokaðist hurðin og lestin fór af stað. Þannig að Dóra Hanna var ein með okkur og SJÖ ítalska stráka. Við fómm út á stöð nr. 3 og biðum eftir kennurunum sem urðu eftir. Eftir að við fundum hótelið og höfðum komið okkur fyrir röltum við um miðbæ Prag og fundum fínan veitingastað. A meðan við biðum eftir matnum komu Finnarnir og borðuðu með okkur. Meðan kenn- ararnir voru að klára matinn löbb- uðum við krakkarnir um og Italirnir keyptu sér Praga drinking team peysur og voru allir eins. Fórum til baka til kennaranna og svo upp á hótel að sofa. Tónleikar í kastala- rústum Laugardaginn 9. maí fórum við í fimm hæða verslunarmiðstöð sem heitir Palladium. Svo um hádegið lögðum við af stað í langferð með járnbrautarlest í fimm klst. Við lærðum ítalskt spil og Selma tapaði í ÖLLUM spilunum. Þegar við komum til Brumov- Bylnice tóku krakkarnir, sem við áttum að gista hjá, á móti okkur og við fórum heim með þeim. Um kvöldið fórum við á tónleika í kastalarústum og fengum „ógeðs- legan“ drykk sem heitir Kofola og Tékkamir sögðu að það væri betra en kók. En við héldum bara fyrir nefið og drukkum eins hratt og við gátum. Itölunum, Finnunum og Dönunum fannst það líka vont. Sunnudaginn 10. maí vöknuðum við um 8 og fórum að skoða kast- alarústir. Eftir það löbbuðum við tíu kílómetra til að skoða eitt blóm og fórum svo á veitingastaðinn Koliba Restaurant. Um kvöldið fórum við á klúbb með stelpunum sem við gistum hjá og vinkonu þeirra og fengum okkur ís með regnhlíf. Mánudaginn 11. maí fórum við í skólann klukkan 8. Það var nammi- búð í skólanum og krakkarnir voru ekki að latra neitt og átu nammi og ís í tíma. I tónlistartíma áttu þau að syngja en enginn söng. I tékknesku voru bara læti og í stærðfræði reiknuðu þau fjögur dæmi. Síðan fluttum við kynninguna okkar fyrir nemendum skólans en eftir það var hádegismatur. Eftir hádegismat fórum við í floorball sem er eins og bandí og öllum fannst svo leiðin- legt að við fórum í fótbolta í staðinn. Eftir fótboltann fórum við í GPS-túr í hópum um bæinn, en þurftum fyrst að bíða eftir Itölunum af því þeir voru að laga á sér hárið. Við fundum staði og svöruðum spurningum um þá. Síðan fórum við heim og það kom rigning í 10 mínútur þannig við horfðum á sjón- varpið á tékknesku, sem var óskilj- anlegt og fórum svo að sofa. Hressilegt sundlaugar- partí Þriðjudaginn 12. maí fórum við í 20 km hjólaferð sem var næstum öll upp fjall. Stoppuðum, borðuð- um og fórum í fótbolta og einhvern annan skrítinn leik sem heitir Lacross. Hjóluðum til baka aðra leið niður fjallið og vegurinn var mjög slæmur þannig það var erfitt. Um kvöldið var sundiaugarpartý í skólanum og það var gaman. Miðvikudaginn 13. maí fórum við í dýragarð sem hét Zoo Lesná og þar fundum við þann dýrlegasta kóksjálfsala sem við höfðum á ævinni séð. Við (Birgitta, Selma, Niklas, Iira og Katriina) villtumst og komum síðust í rútuna og allir voru að bíða eftir okkur. Svo fórutn við til Zlín og fórum á McDonalds með Norðurlandakrökkunum. Eftir það fórum við með rútunni til Spa Luha ovice og smökkuðum á ölkelduvatni sem kom upp úr jörðinni en það var ógeðslegt. Niklas (frá Danmörku) drakk heilt glas af þessu fyrir 30 tékkneskar krónur. Um kvöldið fórum við allir krakkarnir á pizzastað þar sem þetta var síðasta kvöldið okkar í Brumov. Adrenalíngarður og hellaskoðun Fimmtudaginn 14. maí fórum við með rútu í adrenalíngarð og svo í hellaskoðun. Síðan var keyrt á lestarstöðina og þar kvöddum við Tékkana. Þá tóku við rúmlega þrír tímar í lest. Þegar við komum á lestarstöðina ákváðu Agústa og Dóra Hanna að labba bara á Hotel Axa eins og sönnum Islendingum sæmir og tveir Danir ákváðu að koma með í okkar víkingaför. Auðvitað villtumst við og löbb- uðum um alla Prag og svo þegar þau loksins fundu leiðina þurftum við að labba á hraðbraut með ferða- töskumar og full rúta af ferða- mönnum keyrði framhjá og allir störðu á okkur. Við komum svo á hótelið um 11 leytið og allir hinir voru löngu komnir. Þreyttar konur á heim- leiðinni Föstudagurinn 15. maí fórum við strax í skoðunarferð með Finnunum og Dönunum um Prag. Kennararnir héldu svo áfram að skoða og við löbbuðum til baka og fórum að versla í Palladium. Hittumst á hótelinu kl. 6 og fórum svo öll saman út að borða, líka Itilarnir. Eftir mat röltum við um Prag, fórum svo upp á hótel, kvöddum Italina og pökkuðum niður. Laugardaginn 16. maí vöknuðum við kl. hálf fimm eftir um eins og hálfs tíma svefn. Fórum með leigubfi á flugvöllinn, þar sem við kvöddum Danina og Finnana og stigum upp í flugvél sem flutti okkur til Amsterdam. Flugum svo til íslands, brunuðum í Herjólf og komum heim. Til gamans má geta þess að við stelpurnar sváfum f leigubfinum, í flugvélinni til Amsterdam, á flugvellinum í Amsterdam, í flugvélinni til íslands, í bílnum á leiðinni í Herjólf og í Herjólfi. í skrýtnum leik.

x

Fréttir - Eyjafréttir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.