Fréttir - Eyjafréttir - 05.05.2011, Qupperneq 4
4
Fréttir / Fimmtudagur 5. maí 2011
Minning:
Eyjamaður vikunnar:
Karl Jónsson
f.l2.des,1919 - d.l.maí 2011
Næstkomandi
laugardag verður
til moldar borinn
frá Landakirkju,
vinur minn og vel-
gerðamaður, Karl
Jónsson, löngum
kenndur við Dali
og eða Háagarð hér í bæ.
Karl ólst upp á fjölmennu heimili
og hóf ungur að árum vinnu, m.a.
að færa bæjarbúum nýmjólk kvölds
og morgna, er hann bar á sjálfum
sér í litlum mjólkurbrúsum. Hann
lærði rakara- og hárskeraiðn hér
heima, en flutti til Reykjavíkur og
starfaði við iðn sína þar allt til hann
flutti aftur til Eyja um miðjan
sjöunda áratuginn. Hér stofnaði
hann herrafataverslunina Alföt og
rak hana allt til 1973 við góðan
orðstír. 1973 verða vatnaskil hjá
honum í starfi eins og svo mörgum
öðrum og hann gerist lögregluþjónn
og síðar varðstjóri til 1989. En
vinnusemin var honum í blóð borin
og hann gerðist húsvörður Hamars-
skóla, en síðustu starfsárin var hann
„dósent“ í móttöku Endurvinnsl-
unnar.
Kynni okkar Kalla hófust fyrir
hálfri öld, er ég ungur nemi við
Kennaraskóla Islands leitaði rakara
í Reykjavík. Hafandi frétt af Eyja-
mönnum sem ráku rakarastofu á
Vesturgötunni, þar sem antíkbúðin
Fríða frænka er nú til húsa. Hitti
ég þar á einn helsta „samkomustað“
Eyjaskeggja þeirra tíma. Stofuna
ráku þeir félagar Kalli og Halli
(Haraldur Kristjánsson frá
Heiðarbrún) og þar starfaði einnig
Guðlaugur Kristófersson. Naut ég
þar þegar vinaþels og spillti ekki
fyrir að hafa átt heima í Baldurs-
haga og Halli hafði verið í sveit hjá
föðurömmu minni.
Þegar Kalli var fluttur til Eyja
vann ég oft hjá honum í verslun
hans og var þar tíðum glatt á hjalla,
þvf margir ráku þar inn nefið í
spjall og sprell.
Kalli var einn af þessum lífsglöðu
samferðamönnum, sem naut sam-
vista og gleðskapar ekki hvað síst
sér yngri.
Tíminn í Suðurey og tómstunda-
búskapurinn á Breiðabakka er eftir-
minnilegur og þá ekki síður 45 ára
samstarf og samgleði meðal góðra
félaga í Akóges.
Það er ljúft að minnast græsku-
lauss gríns og gleðskapar góðs
drengs, sem nú er allur.
Samúðarkveðjur til Stellu og
annarra vina og vandamanna.
Minningin lifir.
Hermann Einarsson
Úr bloggheimum:
Gísli Hjartarson um snóker:
Flott einvígi
Þetta var svakalega
flott einvígi um
titilinn. Jú, jú,
Higgins hafði sigur
en Judd Trump
klárlega sigurveg-
ari mótsins ef svo
má að orði komast.
Aðeins 21 árs kom hann skemmti-
lega á óvart í mótinu, komst í úrslit
og var yfir eftir fyrri dag í úrslita-
leiknum en missti svo flugið.
Trump er einstaklega sóknarþenkj-
andi spilari og ótrúlega gaman að
sjá hann spila. Hann stóðst ekki
Higgins snúning í dag en gerir það
kannski síðar. Meira að segja
Higgins sagði að það hefði verið
gaman að fylgjast með hinum 21
árs gamla Bristol búa, Trump, spila.
Hlakka til að sjá til hans í fram-
tíðinni. Fylgist nokkuð vel með
þessu móti á Eurosport og þama
var mikið um augnakonfekt í spila-
mennskunni.
http://fosterinn. blog. is
Hvar eru taktarnir?
Eyjamaður vikunnar er Haraldur Geir Hlöðversson.
Um helgina verður sannkallað
risamót í blaki eins og fjallað er um
á íþróttasíðu blaðsins í dag.
Blakhefð er eitthvað sem hefur ekki
verið í Eyjum síðustu ár en á árum
áður áttu Eyjamenn hið þokkaleg-
asta blaklið. Meira að segja
eignuðust Eyjamenn landsliðsmann
í íþróttinni. Sá hefur nú tekið fram
skóna á ný og ætlar að keppa fyrir
hönd IBV á Oldungamótinu í blaki
sem hófst í dag. Haraldur Geir
Hlöðversson heitir kappinn og hann
er Eyjamaður vikunnar.
Nafn: Haraldur Geir Hlöðversson.
Fæðingarstaður: Saltabergi
Vestmannaeyjum.
Fjölskylda: Hjödda, krakkahrúgan,
tveir hundar og kötturinn Túliníus.
Draumabíllinn: Vel skóaður
alvöru pickup undir pallhýsið,
tilbúinn á fjallið.
Uppáhaldsmatur: Lundi a la
Salto med tilbehör eins og pabbi
sagði, verður seint toppað.
Versti matur: Man ekki eftir að
hafa fengið vondan mat.
Uppáhalds vefsíða:
Armwrestling.com
Hvaða tónlist kemur þér í gott
skap: T.d. Deep Purple, Pink
Floyd , Guðmundur Ingólfs, KK,
Maggi Eiríks og fl.
Aðaláhugamál: Vestmannaeyjar,
íþróttir, veiðar, fjallasport.
Hvaða mann/konu myndir þú
vilja hitta úr mannkynssögunni:
Það hefði verið gaman að kíkja á
Gunnsa á Hlíðaraenda.
Fallegasti staður sem þú hefur
komið á: Bjamarey er náttúrulega
með allan pakkann en þar fyrir utan
er Þórsmörkin og nágrenni hennar
algjör snilld.
Uppáhalds íþróttamaður og
íþróttafélag: Sóley og afastrákarnir
Isak og Bóas eru náttúrulega í
uppáhaldi og svo slær hjartað með
ÍBV.
Ertu hjátrúarfullur: Nei.
Stundar þú einhverja íþrótt: Get
varla sagt það en er að æfa indoor
rowing og fyrir keppni í sjómann í
New York í sumar.
Uppáhaldssjónvarpsefni: íþróttir,
dýralífsþættir og vísindi.
Af hverju ákvaðstu að fara í blak
á sínum tíma: Komst ekki hjá því
þegar ég fór í Menntaskólann á
Laugarvatni í den tid.
Hefur verið gaman að rifja upp
gamla takta á æfingum í vetur:
Samveran og hreyfingin frábær en
gömlu taktamir, „hvar em þeir“?
Hvað er það sem gerir blak svona
skemmtilegt: Utheimtir ekki svo
mikla tæknikunnáttu til þess að
hafa gaman af leiknum.
Stefnið þið á sigur í ykkar deild
um helgina: Að sjálfsögðu er alltaf
stefnt á sigur.
Ætlið þið að halda áfram næsta
vetur: Ég gæti vel trúað því ef
maður verður á fótum!
Eitthvað að lokum: Mig langar að
bjóða alla blakara velkomna til
Eyja og um leið færa blakdeild
Þróttar bestu þakkir fyrir móts-
haldið.
Matgazðingur vikunnar:
Tekur áskorun Gunnu í Verkó
Ég tek áskorun Gunnu vinkonu
minnar í Verkó. Ég œtla að gefa
uppskriftir að kjúklingarétti og
súkkulaði pecanböku sem hafa
verið vinsœlar meðal mínsfólks.
Kjúklingaréttur
4 kjúklingabringur
Kryddlögur:
Ca. 1/3 engifer, ferskt, meðalstórt
2 rif hvítlaukur
1 glas Lemon Grass 110 grömm
(frá Thai Choice) ekki nota vökvann
1-2 tsk. fljótandi hunang
1 dl sesamolía
1 dl soyasósa
Fyrst er engifer og hvítlaukur sett í
matvinnsluvél og tætt. Því næst er
Lemon Grass, hunangi, sesamolíu
og soyasósu bætt í og hrært saman
smá stund og látið liggja í krydd-
leginu.
Skerið bringumar í 3-4 bita eftir
því hversu stórar þær eru og leggið
í kryddlöginn. Best er að láta
bringumar liggja í leginum í
nokkrar klukkustundir, því lengur
því betra. Það er t.d. upplagt að
gera þetta kvöldið áður.
Kjúklingurinn er léttsteiktur á
pönnu og síðan settur í smurt eld-
fast mót. Hellið restinni af krydd-
leginum á pönnuna og sjóðið í smá
stund og hellið yftr bringumar. Gott
er að setja álpappír yfir mótið.
Bakað í 20 mínútur við 180°C.
Skraut:
1 chilli
Ferskur koríander eftir smekk.
Skorið örsmátt og sett yftr kjúk-
Matgæðingur vikunnar er Hildur
Oddgeirsdóttir.
linginn þegar hann kemur úr ofn-
inum.
Sósa (Dressing):
3/4 - 1 glas mangó chutney, frá
Sharevood
1-1 1/2 ds. sýrður rjómi
1 rif hvítlaukur
Örlítið karrý
Þessu er hrært saman. Sósan verður
miklu betri ef hún er útbúin
kvöldið áður. Auk hennar er gott að
hafa með réttinum hrísgrjón og
snittubrauð.
Súkkulaði pecanbaka
Botn:
2 dl pecanhnetur
1 dl púðursykur
1/4 tsk. kanill
2 msk. smjör (lint)
4 dl hveiti
2egg
Fylling:
60 g suðusúkkulaði
120 g smjör
2 dl sykur
3 egg
60 g síróp
3 dl pecanhnetur (mylja þær
aðeins)
1-2 dl súkkulaðirúsínur dökkar
Lýsing:
Setjið pecanhnetur, púðursykur og
kanil í matvinnsluvél og maukið
vel. Blandið smjöri, hveiti og
eggjum út í, deigið á að vera
svolítið blautt. Þrýstið deiginu í 24
cm smurt eldfast form þannig að
deigið nái vel upp á kantana.
Pecanhnetum og súkkulaðirúsínum
stráð ofan á deigið. Bræðið saman í
vatnsbaði súkkulaði, smjör og
síróp. Þeytið eggin og sykurinn vel
saman og setjið súkkulaðiblönduna
saman við. Þessu er hellt yftr hnet-
umar og rúsínumar. Bakað við
160°C á blæstri í 30 til 40 mínútur.
Berið bökuna fram volga með ís
eða þeyttum rjóma.
Ég ætla að halda boitanum innan
fjölskyldunar og Hafnarfjarðar og
skora á son minn Birgi Hrafn og
sambýliskonu hans Guðbjörgu
Birnu að vera nœstu matgæðinga
Frétta. Það er alltaf spennandi og
skemmtilegt aðfara í matarboð til
þeirra. Eyjamönnum sendi ég bestu
kveðjur og vona að karla og
kvennaliðum IBV gangi vel áfót-
boltavellinum í sumar.
Kirkjur bozjarins:
Landakirkja
Fimmtudagur 5. maí
Kl. 10. Mömmumorgunn í
Safnaðarheimilinu.
Kl. 11-12. Viðtalstímar presta alla
virka daga. Einnig bakvakt í síma
488 1508. Fram til fimmtudags-
kvölds 5. maí er sr. Karl V.
Matthíasson að leysa af vegna
prestastefnu.
Kl. 20. Æftng hjá Kór Landakirkju.
Laugardagur 7. maí
Kl. 14. Útför Karls Jónssonar.
Sunnudagur 8. maí
Kl. 11. Messa á mæðradegi.
Kirkjudagur Oddfellow systra sem
lesa úr Ritningunni. Þema: Drottinn
er minn hirðir. Altarisganga. Kór
Landakirkju. Organisti Guðmundur
H. Guðjónsson. Prestur sr. Kristján
Bjömsson. Kaffisopi á eftir í
Safnaðarheimilinu.
Hvítasunnu-
kirkjan
Fimmtudagur 5. maí
Kl. 17:00 Þann fimmta, fimmta
klukkan fimm verður loka
Krakkafjörið í vetur.
Kl. 20:00. Brauðsbrotning, Gestir
frá MCI biblíuskólanum.
Sunnudagur 8. maí
Kl. 13:00 Samkoma með vinum
okkar úr MCI biblíuskólanum sem
taka þátt í samkomunni.
Mánudagur 9. maí
Kl. 20:00 Kvennasamvera, sú
síðasta í vetur.
Verið hjartanlega velkomin.
Aðventkirkjan
Laugardaginn 7. maí
Samkoman hefst kl. 11.00 með
Biblíufræðslu fyrir böm og full-
orðna. Bama og ungmennastarf í
höndum Ericu Do Carmo. Einnig
verður biblíufræðsla fyrir fullorðna.
Efnið er aðgengilegt öllum á vef
kirkjunnar á www.adventistar.is
undir fræðsluefni/Biblíulexia.
Guðsþjónusta kl. 12.00. Bein
útsending frá aðventkirkjunni í
Reykjavík. Manfred Lemke
prédikar þar. Allir hjartanlega
velkomnir.
Sími hjá safnaðarpresti er 8662800,
netfang thora@adventistar.is.