Fréttir - Eyjafréttir


Fréttir - Eyjafréttir - 05.05.2011, Blaðsíða 11

Fréttir - Eyjafréttir - 05.05.2011, Blaðsíða 11
Fréttir / Fimmtudagur 5. maí 2011 11 Meiri jákvæðni hér en í Reykjavík ✓ - segir Andri Þorleifsson sem tók við sem vinnslustjóri Isfélagsins á dögunum Andri Þorleifsson, 42 ára, tók við starfi vinnslustjóra hjá Isfélaginu á dögunum en Andri tengist Eyjunum þótt hann sé sjálfur borinn og barnfæddur Reykvík- ingur. Sambýliskona hans er Eyjakonan Anna Lilja Marshall en saman eiga þau soninn Kára Marshall Andrason sem er fimm ára og fyrir átti Anna Lilja dótt- urina Fríðu Jóhönnu Isberg, sem er 18 ára. Andri segist hafa ungur flutt í Garðabæinn þar sem hann bjó fram á unglingsaldur en auk þess hafí hann verið með annan fótinn í Garðinum og alist að hluta þar upp. Andri vann hjá Sölufélagi garð- yrkjumanna ehf. í Reykjavík áður en hann hóf störf hjá Isfélaginu. „Ætli ég hafí ekki verið þar í ein sjö ár áður en ég kom hingað. En áður hafði ég starfað hjá Þormóði ramma á Siglufírði, Skagstrendingi á Skagaströnd, Fogo Island Shrimp Inc. á Nýfundnalandi og víðar,“ sagði Andri þegar hann var spurður út í hvar hann hefði unnið. Hvernig kynntist þú Vestmanna- eyjum ífyrsta sinn? „Mín fyrstu kynni af Vestmanna- eyjum vora ferð hingað með föður mínum og bróður í bamæsku. Ég man nú lítið eftir þeirri ferð. Síðan stundaði ég þjóðhátíð nokkuð stíft á unglingsárunum og upplifði þá stemmningu alla. Ferðunum hingað fjölgaði hinsvegar mikið eftir að við Anna kynntumst 2002. Þá kynnist ég Vestmannaeyjum af einhverri alvöra.“ Eyjarnar griðastaður Hafðir þú, eða þið eitthvað rætt þann möguleika að flytja til Eyja áður en staifið í Isfélaginu bauðst? VarAnna kannski búin að brœða þig með sögumfrá œskuárunum? Við skoðuðum það að flytja hingað fyrir nokkram áram en það datt upp- fyrir. Árið 2009 bauðst okkur að kaupa íbúð hér í Vestmannaeyjum sem nota átti sem sumarafdrep. Það tengdi okkur frekar við Eyjamar sem leiddi til þess að við ákváðum að flytja. Ennfremur langaði mig að fara aftur að vinna við það fag sem ér er menntaður í sem er sjávar- útvegsfræði. Þegar þessi staða var auglýst hjá Isfélaginu sótti ég um og fékk og þá var ekki aftur snúið. Vissulega var Anna búin að segja mér margar sögur af æskuáranum og hef ég dregið þá ályktun að gott sé að alast héma upp og mannlífið sé almennt gott.“ Andri segir að úr fjarlægð hafi Vestmannaeyjar verið ákveðinn griðastaður frá stressinu í borginni. Við komum hingað til að hlaða batt- eríin, slappa af og njóta fegurðar Eyjanna. Það eina sem skyggði á voru þessar hræðilegu Þorláks- hafnarferðir með Herjólfi. Þegar Landeyjahöfn kom í gagnið fóram við að koma oftar og viðhorf mitt til Vestmannaeyja batnaði til muna.“ Hvemig hafa svo fyrstu vikumar verið sem Eyjamaður? „Fyrstu vikumar hér í Eyjum hafa verið fínar. Eyjamenn hafa tekið vel á móti okkur og áberandi miklu meiri jákvæðni í fólki hérna saman- borið við barlóminn í Reykjavík. Það hefur verið mikið að gera bæði í vinnunni og einnig hafa flutning- arnir og aðlögun fjölskyldunnar tekið sinn tíma. Hingað til höfum við búið dálítið þröngt, en við ákváðum að kaupa okkur lítið hús sem við fáum afhent eftir nokkra daga og þá munu aðstæður okkar batna til muna hvað það varðar. Vinnur að mastersverkefni Eins og áður sagði starfar Andri sem vinnslustjóri í frystihúsi ísfélagsins og tók við því starfi 1. desember í fyrra. „Vinnslustjóri hefur umsjón með framleiðslustýringu og hrá- efnisöflun, yfiramsjón með gæða- málum, sér um skráningu fram- leiðslu, starfsmannamál og fram- legðarútreikninga. Auk þess sinni ég ýmsum verkefnum sem tengjast vöruþróun, rannsóknum, þróun vinnsluferla og fleira," sagði Andri þegar hann var beðinn um að útskýra í hverju starfið fælist. Sérðu fyrir þér starfið sem framtíðarstarf eða er stefnan jafnvel tekin áfrekara nám? „Ég sé þetta fyrir mér sem fram- tíðarstarf. Ég er menntaður sem sjávarútvegsfræðingur sem nýtist mér ágætlega í þessu starfi. Ég er reyndar að vinna að mastersverkefni í matvælafræði en það tek ég með vinnu enda mun það nýtast mér í starfi." Nú er það stefna ríkisstjórnarinnar að gjörbreyta kvótakerfinu og sjáv- arútveginum um leið. Þú hefur ekkert hræðst það að taka við starfi íþessum geira við þessar aðstœður? „Breytingar á fiskveiðistjómunar- kerfinu era vissulega til að auka á óvissu um framtíð fyrirtækja og starfsmanna þeirra í þessum geira. Ég hef samt enga trú á því að stjóm- völd á íslandi, hvaða nöfnum sem þau nefnast, fari út í það róttækar breytingar að fyrirtæki í sjávar- útveginum neyðist til að leggja upp laupana með tilheyrandi gjald þro- tum og uppsögnum á starfsfólki. Þannig að ég hræðist það ekkert að vinna í þessum geira við núverandi aðstæður," sagði Andri að lokum. Auðvitað hefur gott starf aðdráttar- afl. Ég lít á þetta sem framtíðar- starf að sjálfsögðu. En auðvitað þarf að koma í ljós hvemig til tekst, hvort okkur muni ekki líða vel héma.“ Fallegri miðbær Örvar segist hafa fylgst með Eyjum úr fjarlægð og segir að hann sjái mikla breytingu á Vestmannaeyjum. „Þegar ég hugsa til baka þá tók maður eftir svartsýni í kringum aldamótin ef ég man rétt. Núna er meiri stemmning, kannski er ein- faldlega neikvæð fylgni við stemmninguna í bænum. Landeyjahöfn hafði hins vegar jákvæð áhrif í sumar, það tóku allir eftir því. Miðbærinn er orðinn fal- legri frá því að ég fór upp á land og gaman að sjá nýju verslunarmið- stöðina.“ Eruð þið búin aðfinna ykkur heim- ili íEyjum? „Við eram enn að leita að húsnæði til leigu, við eram ekki tilbúin að festa kaup á fasteign en viljum leigja til 12-18 mánaða, þurfum jafnframt að selja húsnæði hér á Álftanesi, það mun eflaust ganga brösuglega meðan unnið er að því að draga úr skuldsetningu sveitar- félagsins." ÖRVAR GUÐNIARNARSON, verðandi fjármálastjóri Isfélagsins. Reynsla nýtist í nýju starfi Eins og áður sagði tekur Örvar við sem fjármálastjóri hjá Isfélaginu. Hann hefur m.a. unnið áður við auglýsingagerð en nú síðast starfaði hann hjá Islandsbanka. „I starfinu hjá ísfélaginu felst almenn ábyrgð á fjármálastjórnun félagsins, áætlana- gerð, ársreikningar, bókhald, sam- skipti við hluthafa, innkaup og upp- lýsingatæknimál. Allt bæði spenn- andi og áhugavert. Bæði nám mitt við Háskólann í Reykjavík og fimm ára starfsfreynsla í fjármálageir- anum, bæði hjá Glitni og síðar ís- landsbanka nýtist í nýja starfmu. Frá hrani hef ég t.d. unnið við end- urskipulagningu stærri fyrirtækja En það er rétt, ég var í auglýsinga- geiranum en græði nákvæmlega ekkert á því að hafa þann bakgrann í því starfi sem ég tek við hjá Isfélaginu. Ég hálfpartinn festist í því eftir Verzlunarskólann og losn- aði ekki fyrr en 2006 þegar ég hóf störf hjá Glitni og hafði þá verið í nokkur ár í háskólanámi með auglýsingavinnunni. Ef ég ætti samt að nefna eitthvað sem ég get tekið með mér úr auglýsinga- geiranum þá væri það helst að tölvukunnáttan er með besta móti og alla jafna era skýrslur og ýmis skjöl tiltölulega snyrtilega sett upp, það er mikilvægt.“ Stefna ríkisstjórnarinnar hræðir Örvar segist hafa kynnt sér rekstrarumhverfi sjávarútvegsins fyrir kvótakerfið fyrir fáeinum misserum. „Mér varð ljóst hvemig greinin hefur stórbatnað á sl. áram. Ég sannfærðist um að kvótakerfið væri gott kerfi. Greinin dafnaði t.a.m. þrátt fyrir töluvert sterka krónu á tímabili en fyrir kvóta- kerfið voru eintómar gengis- fellingar, gjaldþrot og leiðindi. Stefna ríkisstjómarinnar sem endur- speglaðist í hinni svokölluðu fymingarleið er aðferð til að reyna að þjóðnýta hagnað greinarinnar en hagnaður greinarinnar er ekki fasti heldur góður árangur í núverandi kvótakerfi. Við fymingu aflaheim- ildanna mun þessi hagnaður gufa upp þegar skammtímahugsun mun taka við af langtímahugsun útgerðarmanna. Að sjálfsögðu hræðir stefnan," sagði Örvar að lokum. Júlíus G. Ingason

x

Fréttir - Eyjafréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.