Fréttir - Eyjafréttir


Fréttir - Eyjafréttir - 05.05.2011, Blaðsíða 18

Fréttir - Eyjafréttir - 05.05.2011, Blaðsíða 18
18 Fréttir / Fimmtudagur 5. maí 2011 iHandbolti barna: Mótin verða ekki mikið stærri - segir Magnús Bragason, hjá ÍBV-íþróttafélagi, sem hélt um síðustu helgi eitt stærsta handboltamótið sem haldið hefur verið hérlendis Um síðuslu helgi var haldið risa- stórt handboltamót barna í Vestmannaeyjum. Alls voru þátt- takendur um 800 talsins frá fjórtán félögum en um var að ræða eldra ár í 6. flokki, bæði í drcngja- og stúlknatlokki. Mótið tókst afar vel og hið eina sem sett var út á, voru samgöngur. Magnús Bragason var einn þeirra sem komu að mótshaldinu en hann sagði að líklega sé þetta eitt stærsta handboltamót sem haldið hefur verið hér í Eyjum. „Jafnvel á land- inu öllu en handboltamótin verða ekki mikið stærri en þetta. En við tókum að okkur þetta mikla verkefni og margir sem komu að mótshaldinu með einum eða öðrum hætti. Eg vil einmitt nota tækifærið og þakka þeim fjölmörgu sem aðstoðuðu okkur um helgina. An allra þessara sjálfboðaliða hefði ekki verið hægt að halda þetta mót.“ Hann bætti því við að allir þeir sem hann hafi rætt við um helgina, hafi verið afar ánægðir. „Auðvitað hefðum við viljað hafa Landeyja- höfn opna því þá hefðum við fengið fleiri foreldra. Samgöngurnar gerðu okkur svolítið erfitt fyrir en allt hafðist þetta og ég gat ekki séð annað en að allir hafi verið mjög ánægðir. Eitt lið komst ekki á mótið, því miður, en aðrir komust til Eyja. Aðstaðan hér fyrir svona mót er auðvitað alveg einstök. Þessir krakkar fá hér að spila á þremur handboltavöllum í fullri stærð, allir undir sama þakinu og svo er sund- laugin í sama húsi. Nýja útisvæðið sló algjörlega í gegn hjá þessum krökkum. Þessi aðstaða þekkist ekki annars staðar en svo vorum við að nota Týsheimilið líka. Eftir mótið kom fólk, faðmaði mann og þakkaði fyrir helgina þannig að ég reikna með að allir hafi verið sáttir í mótslok. IBV var með fjölmennasta hópinn í mótinu en fímm karlalið voru í mótinu og tvö kvennalið. A-lið drengjanna varð í öðru sæti í sinni deild, þeir unnu þrjá leiki en töpuðu einum. Strákarnir enduðu jafnframt E-LIÐ ÍBV drengja lenti í öðru sæti í sinni deild um helgina. Islandsbo.►' hlandsbot lilondil (íonrfjboti'1 \dsbonk A-LIÐ ÍBV stúlkna lenti í öðru sæti í sinni deild. B-LIÐ ÍBV stúlkna endaði í þriðja til fimmta sæti í sinni deild. í þriðja sæti íslandsmótsins en ár- angurinn úr öllum mótum vetrarins er lagður saman. Alls tóku yfir 80 lið þátt í vetur þannig að árangur A- liðsins er frábær. B-liðið vann sína deild í mótinu, vann þrjá leiki og gerði eitt jafntefli. C-liðið vann einn leik en tapaði þremur en D- liðið vann sína deild og vann alla sína leiki. E-liðið vann þrjá en tapaði einum og lenti í öðru sæti í sinni deild. Sigurður Bragason, þjálfari strákanna, sagði að mótið hefði verið algjör snilld og langbesta mót vetrarins. „Það eru allir sammála um það að þessi mót sem við höld- um hér, eru langskemmtilegustu mótin. Alls eru þetta tíu mót yfir veturinn og það toppar okkur enginn. Hér eru góðir dómarar, frábær aðstaða og enn betra skipu- lag.“ A-lið kvenna vann fjóra leiki en tapaði einum og lenti í öðru sæti í sinni deild. B-liðið tapaði þremur en vann einn og endaði í þriðja til fimmta sæti í deildinni. Einbeiting í lagi. Mark í uppsiglingu. Lok, lok og læs hjá Elvari. hloudibanli Islandsbankl A-LIÐ ÍBV drengja sem endaði í þriðja sæti íslandsmótsins B-LIÐ ÍBV drengja vann sína deild í mótinu um helgina. C-LIÐ ÍBV drengja vann einn leik í mótinu. D-LIÐ ÍBV vann alla sína leiki og deildina sína í mótinu.

x

Fréttir - Eyjafréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.