Fréttir - Eyjafréttir


Fréttir - Eyjafréttir - 05.05.2011, Blaðsíða 13

Fréttir - Eyjafréttir - 05.05.2011, Blaðsíða 13
Fréttir / Fimmtudagur 5. maí 2011 13 ✓ Fanney Asgeirsdóttir, skólastjóri Grunnskólans: Náttúruvísindi á Heimaey og Víkingahátíð 5. bekkiar! Það er komið vor og skólaárið í GRV farið að styttast verulega í annan endann. Eins og venjulega einkennist maí af ýmiss konar viðburðum í skólastarfinu, enda gaman að gera sér glaðan dag þegar sólin hækkar á lofti og auðveldara verður að sinna þeim þáttum skóla- starfsins sem fara fram utan dyra. í GRV er í gangi þróunarverkefni sem heitir Náttúruvísindi á Heimaey og miðar m.a. að því að efla umhverfis- vitund nemenda og gera þá meðvit- aðd um umhverfi sitt og heima- byggð, efla áhuga og námsgleði nemenda og - á seinni stigum verkefnisins - að miðla fróðleik um náttúru Vestmannaeyja gegnum veraldarvefinn. Liður í þessu verkefni eru náttúru- vísindadagar skólans sem orðnir eru árviss viðburður. Eldri nemendur skólans halda sína daga í þessari viku, 4. og 5. maí. Búið er að skipta Heimaey upp í ákveðin svæði, eða umhverfisstíga og hver árgangur fær ákveðið svæði til að vinna með. Nemendur skipuleggja vettvangs- ferð í samráði við kennara sína, afla ýmissa gagna á vettvangi og vinna svo úr þeim eftir að heim er komið. Viðfangsefnin tengjast m.a. gróðri, dýralífi, veðri, jarðfræði og sögu svæðisins og því ættu allir að vera umtalsvert fróðari um umhverfi sitt og heimabyggð, eftir en áður. Á fimmtudaginn heldur 5. bekkur svo Víkingahátíðina sína, í Herjólfs- dal. Hún er uppskeruhátíð verkefnis þar sem verkgreinakennsla árgangs- ins er samþætt leikrænni tjáningu og Islandssögu. Nemendur kynntu sér landnámsöldina og hafa unnið hörðum höndum við að gera búninga, vopn, verjur, skartgripi, víkingasmákökur o.fl. Nú er komið að hápunktinum, sjálfri víkinga- hátíðinni. Þar lifa nemendur sig inn í hugarheim og trúarbrögð fólks á landnámsöld og setja sig í spor þess. Þama geta víkingamir átt von á að rekast á ýmsar misjafnar skepnur. Þeir þurfa að sýna hollustu sína við gömlu goðin með því að inna af hendi ákveðin verkefni. Tekst liðs- mönnum Oðins að drekka af viskubrunninum? Eða mönnum Þórs að finna hamarinn Mjölni? Ná menn Týs að fjötra Fenrisúlfmn? Tekst Loka að ræna Iðunni og eplunum? Þetta á allt eftir að koma í ljós í Dalnum þar sem leikar munu berast um víðan völl. Foreldmm er velkomið að fylgjast með og sam- gleðjast okkur í lokin, við Herjólfs- bæinn. Björgvin G. Sigurðsson, þingmaður skrifar: • • Ograndi tímar - fundaröð um framtíðina Óhætt er að segja að við lifum ögrandi tíma. Erfiða um margt en klárlega tíma- bil breytinga og mikilla sviptinga í sögu heimsins og landsins okkar. Þrot blindrar markaðshyggju á kostnað félagslegra sjónarmiða var vissulega þungt fyrir flesta og heimsbyggðin sýpur enn hveljur vegna efnahagshamfaranna nema kannski Norðurlöndin utan Islands. Hin varfæru velferðarsamfélög í Skandinavíu sem hafa verið byggð upp og varin af frjálslyndum og félagslegum öflum í meira en öld stóðu best af sér storma hamfaranna. Einfaldlega af því að þau tóku ekki þátt í kappinu sem hófst með „upp- reisn frjálshyggjunnar" fyrir rúm- lega þrjátíu árum víða um Vestur- lönd og náði hæsta fluginu hér- lendis eftir aldamótin 2000 með holskeflu einkavæðingar. Verkefnið er að læra af því sem úrskeiðis fór. Byggja upp manneskjulegt þjóðfélag á grundvelli jöfnuðar og félagslegra sjónarmiða. Ár breytinga og uppbyggingar eru líka ár átaka og árekstra líkt og við merkjum daglega í miskunnarlausri stjómmálaumræðu dagsins. Við megum ekki láta átökin og deilumar bera okkur af leið heldur varða veginn til framtíðar með málefnalegum hætti. Næstu vikumar ætlum við þingmenn Samfylkingarinnar í Suðurkjör- dæmi að standa fyrir 10 opnum fundum um allt kjördæmið. Við byrjum á Homafirði miðvikudaginn 4. maí og endum í Reykjanesbæ rúmlega þremur vikum síðar með fundum m.a. í Vestmannaeyjum, Grindavík og Garðinum. Þannig þræðum við okkur enda á milli í þessu mikla og viðfeðma kjördæmi til þess í annan stað að kynna okkar viðhorf og baráttumál en ekki síður til að hlusta á fólkið í kjördæminu á þessum markverðu tímum. Eg hvet alla áhugasama til þess að mæta á fundina. Oháð skoðunum og flokkum. Allir eru velkomnir. Við munum auglýsa fundina í héraðsfréttablöðum og á netinu næstu vikumar og vonumst við þingmennimir þrír eftir því að sjá ykkur sem flest í fundaröð okkar í maí. Allt er undir og til umræðu; stjómkerfi fiskveiða, gjaldmiðils- málin, orkunýting og atvinnu- sköpun, fjárfestingar í mennta- kerfinu, nauðsynlegar breytingar í velferðarþjónustu og allt hitt sem á brennur. Björgvin G. Sigurðsson, 1. þing- maður Suðurkjördœmis. Sönghópur ÁtVR með tónleika í Reykjavík 14. maí Sönghópur Átthagafélags Vest- mannaeyinga á Reykjavíkur- svæðinu (ÁtVR) heldur tónleika í kirkju Óháða safnaðarins við Háteigsveg í Reykjavík laugar- daginn 14. maí kl. 15. Á efnis- skránni eru ýmis Eyjalög og textar. Stjórnandi er Hafsteinn G. Guðfinnsson. Aðgangseyrir er kr. 1500 og eru allir hjartaniega velkomnir meðan húsrúm leyfir. Sönghópurinn hefur verið starf- andi í sex ár og eru félagar hátt í fimmtíu talsins og flestir ættaðir úr Eyjum. Auk þess starfa þrír til fjórir hljóðfæraleikarar að stað- aldri með hópnum. Æft er reglulega yfir vetrar- tímann í Kiwanishúsinu í Kópa- vogi. Aðalverkefni hópsins er að halda á lofti lögum og textum úr Vestmannaeyjum en þar er af nógu að taka. Hópurinn hefur sungið víða á Reykjavíkur- svæðinu síðustu árin við ýmis tilefni. Haustið 2007 tók Söng- hópurinn þátt í norrænu vísna- síður fyrir lögin úr Eyjum, sem þóttu afar skemmtileg. Fyrir réttu ári hélt hópurinn eftir- minnilega tónleika í Kiwanis- húsinu í Vestmannaeyjum þar sem um 200 manns mættu, okkur til ómældrar ánægju. Sönghópurinn hefur gefið út einn geisladisk með 15 lögum sem heitir „I æsku minnar spor“ og hefur honum verið vel tekið. Diskurinn verður til sölu á tón- leikunum. Félagar í Sönghóp ÁtVR vonast til að sjá sem flesta Eyjamenn sem og aðra er áhuga hafa á sönglist úr Vestmannaeyjum í kirkju Óháða safnaðarins þann 14. maí kl. 15. Forsala aðgöngu- miða verður hjá kórfélögum og við innganginn. Nánari upplýsingar um tón- leikana og forsölu miða verða á heimasíðu Átthagafélagsins: http://atvreyjar.123.is/ móti í Sarö í Svíðþjóð, þar sem og þjóðlagatónlist í þrjá daga. yfir tvö hundruð manns komu Hópurinn vakti verðskuldaða saman og spiluðu og sungu vísna- athygli fyrir sönginn en ekki Tækifæri atvinnulífsins: Ný upp- tökumann- virki Undanfarna mánuði hafa Ný- sköpunarmiðstöð Islands, At- vinnuþróunarfélag Suðurlands og Fréttir staðið fyrir fundaröð um Tækifæri atvinnulífsins. Föstu- daginn 13. maí nk. verður haldinn síðasti fundurinn í þessari funda- röð að sinni og mun hann fjalla um tækifæri varðandi ný upptöku- mannvirki í Vestmannaeyjum. Á fundinn munu koma fulltrúar Vestmannaeyjabæjar og halda erindi sem fjallar m.a. um gerð mannvirkis, kostnað, fyrirhug- aðan rekstur mannvirkisins, hvemig tryggja megi sem besta arðsemi af framkvæmdinni og hvaða tækifæri liggja fyrir at- vinnulífi hér í Eyjum. Einnig er gert ráð fyrir því að á fundinum komi svör varðandi fyrirhugað útboð og rekstur mannvirkis, með hvaða hætti mannvirkið verði rekið í fram- tíðinni og tækifæri sem fylgja því. Þá verður fjallað um hvaða skipum upptökumannvirkið getur sinnt, hvaða tækifæri eru fyrir iðnaðarmenn, hvaða tækifæri eru fyrir útgerðarmenn ásamt því hvemig þjónusta upptökumannn- virkisins verður verðlögð. Fundarmönnum verður að lokum gefinn kostur á að koma spumingum á framfæri við full- trúa Vestmannaeyjabæjar varð- andi málið. Fundurinn er áætlaður á dagskrá föstudaginn 13. maí kl. 12.05- 12:55 á Kaífi Kró. Skráning er hjá Hrafni (hrafn@sudur.is) 481-2961 eða hjá Frosta (frosti@nmi.is) 481- 3355. Sjúkrabíll á Slökkvistöð Framkvæmda- og hafnarráð tók á síðasta fundi sínum fyrir bréf frá Heilbrigðisstofnuninni í Vest- mannaeyjum dags. 26. apríl þar sem óskað er eftir tímabundinni aðstöðu fyrir sjúkrabíl á Slökkvi- stöð Vestmannaeyja en núverandi aðstaða fyrir sjúkrabifreið RKÍ verður ekki til staðar eftir 1. maí nk. Ráðið samþykkti, að fenginni jákvæðri umsögn slökkviliðs- stjóra, að fela framkvæmdastjóra að gera skriflegan samning um tímabundin afnot af húsnæði í Slökkvistöð Vestmannaeyja fyrir sjúkrabifreið RKÍ í Vestmanna- eyjum. Samstarf vegna dýpkunar Á síðasta fundi framkvæmda- og hafnarráðs greindi Sveinn R. Valgeirsson frá viðræðum milli Vestmannaeyjahafnar, Siglinga- stofnunar og Björgunar ehf. um hugsanlega aðkomu Lóðsins varðandi Landeyjahöfn.

x

Fréttir - Eyjafréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.