Fréttir - Eyjafréttir


Fréttir - Eyjafréttir - 05.05.2011, Blaðsíða 6

Fréttir - Eyjafréttir - 05.05.2011, Blaðsíða 6
6 Fréttir / Fimmtudagur 5. maí 2011 Formaður Þjóðhátíðarnefndar - Ummæli um Stígamót vekja harkaleg viðbrögð: Trúnaðarbrestur varð 1994 -Samtökin með fullyrðingar um fjölda afbrota sem ekki stóðust - Sögðu hóp nauðgara á leið til Eyja -Ekkert sem benti til þess að það væri rétt - Þjóðhátíð fór fyrir vikið illa út úr fjölmiðlaumræðu - Eftir þetta var sam- starfi við Stígamót slitið - Teymi til staðar sem getur komið fórnarlambi á Landsspítalann ef nauðsyn krefur l^—■ ,nfu £)r| “fF • FRÉTTIR 1994 Eins sést á þessum fyrirsögnum var framganga Stígamóta á Þjóðhátíðinni 1994 ástæða mikilla skrifa í Fréttum Fátt hefur verið um meira rætt í þjóðfélaginu en orð Páls Schevings, formanns þjóðhátíðarnefndar á kynningarfundi um þjóðhátíð í Höllinni í síðustu viku. Þar sagði hann, að því miður virðist nærvera Stígamóta magna upp það vandamál sem kynferðisleg valdbeiting er. Þama er hann svara spumingu um samskiptin við Stígamót á fund- inum. Orðrétt svarar Páll: „Það er ljótt að segja það, en ég segi það samt, það er eins og samtökin nærist á því að vandamálið sé til staðar og þau reyni frekar að ýta undir það heldur en hitt.“ Eyjamenn tóku málin í eigin hendur Þessi ummæli Páls, sem situr eftir ærulaus fyrir það eitt að segja sannleikann, hafa farið eins og eldur í sinu um bloggheima eftir að RÚV sagði frá þeim í fréttatíma sínum. Hafa þau orðið tilefni fréttaskrifa á netmiðlum og blöðum og leiðara- skrifa í DV án þess að fram komi að Vestmannaeyingar hafí tekið málin í sínar hendur. Þjóðhátíðarnefnd hafi yfir að ráða teymi sem hefur mennt- un og reynslu til að sinna fórnar- lömbum nauðganar og geti skilað þeim á Landsspítalann ef nauðsyn krefur. Þetta hefur verið þróað frá árinu 1995 án þess að nokkur hafi gert athugasemd við það. Þó margir hafí staldrað við orð Páls, og vissulega hefði hann mátt orða þetta öðruvísi, hefur enginn fjölmiðill, að því er hann segir sjálfur, haft samband og spurt hvað liggi að baki þessum orðum. Og ástæðan er ærin því árið 1994 varð algjör trúnaðarbrestur milli þjóðhátíðarnefndar, lögreglu og í raun fjölmiðla annars vegar og Stígamótakvenna hins vegar sem drógu upp hryllingsmynd af því sem átti að hafa gerst á hátíðinni þetta ár. Fullyrðing þeirra um fjölda kynferð- isafbrotamála stóðst ekki að mati lögreglu. Hópur nauðgara? I viðtölum í fjölmiðlum 1994 draga þær upp dökka mynd af þjóðhátíð sem verður til neikvæðrar umræðu um hátíðina í fjölmiðlum. Enginn þeirra sem Fréttir ræddu við eftir hátíðina 1994 efast um gott starf Stígamóta en þama fóru þær yfir stikið að mati Eyjamanna. Þær höfðu notið hér velvilja og skilnings en þama varð trúnaðarbrestur sem varð til þess að leiðir skildu. I Fréttum 11. ágúst 1994 er viðtal við Stígamót á forsíðu undir fyrirsögninni, Tuttugu ný og gömul mál komu til kasta Stígamóta á þjóðhátíð. I undirfyrirsögn segir: Fleiri nauðganir en í fyrra en gömlu málin tengjast ekki þjóðhátíð. I fréttinni segir að fjórar konur hafí verið frá Stígamótum á þjóðhátíð- inni og hafi ekki veitt af. Má á þeim skilja að af 20 málum sé helming- urinn gömul mál. Fyrir þjóðhátíðina höfðu þær fullyrt að hópur nauðgara væri á leið til Eyja. Þetta sögðu þær í fréttum RÚV en kenndu frétta- manni um að hann hafi rangtúlkað ummæli þeirra og snúið þeim þjóð- hátíð í óhag. Sögðu þær að frétta- maður hefði beðist afsökunar á þessu. Þessi frétt vakti hörð viðbrögð, ekki síst fréttastofu RÚV og Krist- rúnar Heimisdóttur, fréttamanns sem sendi frá sér yfirlýsingu sem birtist í Fréttum 18. ágúst. Fréttastofa RÚV vísar fullyrðingu á bug „Vegna forsíðufréttar blaðs ykkar þann 11. ágúst, taka Fréttastofa Út- varps og Kristrún Heimisdóttir fram að í hádegisfréttum útvarpsins þann 24. júlí síðastliðinn, nefndi As- hildur Bragadóttir, starfskona Stígamóta, þjóðhátíð í viðtali, sbr. endurrit fréttarinnar. Fullyrðingar um að Kristrún Heimisdóttir hafi, eins og segir í forsíðufrétt ykkar, „sagst“ hafa snúið þessu þjóðhátíð í óhag og „kom til okkar og baðst afsökunar,” er fullkominn upp- spuni,“ segir í yfirlýsingunni. Samkvæmt endurritinu segir Ás- hildur, „við vitum þess dæmi að það hafí farið hópur af strákum á sömu hátíðarnar trekk í trekk til þess eins að leita uppi dauðadrukknar stúlkur og nauðga þeim. Fyrir þeim er þetta eflaust skemmtun en afleiðing- arnar... við vitum náttúrulega að fyrir þá sem í því lendir, að þetta nálgast mannsmorð." í framhaldi af því spyr Kristrún: „Geturðu nefnt tilteknar hátíðir?" Svar Áshildar: „Ja, ég get nefnt Þjóðhátíðina í Eyjum - við höfum heyrt af því að það er gengi, strákar fimm í hóp sem hafi farið þangað ár eftir ár og það hafa margar stúlkur lent mjög illa í þessum mönnum.“ Fréttir taka fram að Stígamót hafi fengið fréttina í blaðinu þann 11. ágúst tvisvar til yfirlestrar áður en hún birtist. Nutu velvilja í sama blaði er fréttaskýring undir fyrirsögninni, Gengu Stígamót of langt? Þar er rætt við formann þjóð- hátíðarnefndar Þórs sem hélt hátíð- ina þetta ár, lögreglumann, formann Björgunarfélagsins, prest og fé- lagsmálastjóra bæjarins. Tilefnið er framganga Stígamóta, ekki síst eftir hátíðina. Bjami Samúelsson, for- maður þjóðhátíðarnefndar, segist hafa átt gott samstarf við konumar, þær hafi fengið fritt í Dalinn og þeim sköpuð aðstaða sem þær voru ánægðar með. Bjami er greinilega ekki jafn ánægður með ummæli þeirra um hátíðina. Segir að þær ættu líta sér nær í stað þess að ein- blína á þjóðhátíð því í miðbæ Reykjavíkur sé útihátíð um hveija helgi. Fullyrðingar sem ekki stóðust Halldór Sveinsson, lögreglumaður, vekur athygli á að enginn nauðgun- arkæra barst lögreglu þessa þjóð- hátíð og aðeins ein árið á undan þrátt fyrir fullyrðingar Stígamóta um tíu og tuttugu mál. Bjarni Sighvatsson, formaður Björgunarfélagsins, sagði eðlilegt að vekja athygli á þessum málum en umræðan hefði verið á kostnað þjóðhátíðar. Séra Jóna Hrönn Bolladóttir segir að þama hafi komið fram ákveðinn misskilningur sem megi kenna lé- legri fréttamennsku. Um hverja verslunarmannahelgi sé reynt að finna staðinn þar sem allir vondu hlutirnir gerast og þarna hafí Vestmannaeyjar orðið fyrir valinu. Sóttust ekki eftir samstarfi Hera Osk Einarsdóttir, félagsmála- stjóri, segir að Stígamót hafi aldrei óskað eftir samstarfi við félags- málayfírvöld í Vestmannaeyjum. Saknar hún þess. Hera segir starf samtakanna nauðsynlegt, þær vinni ákveðið forvamastarf með komu sinni á þjóðhátíð en hún verði ekki vör við meiri þrýsting í þessum málaflokki kringum þjóðhátíð en aðra daga. „Hér leita konur til okkar þegar á þarf að halda. Okkur hefði þótt eðlilegt að þær hefðu samstarf við okkur og kæmu fram einhver fórnarlömb héðan yrðu þau mál leyst hér heima,“ segir Hera sem hvetur til opinnar umræðu og alls ekki eigi að sverta ákveðna staði. „Svona hlutir gerast því miður alls staðar á landinu og starfið á ekki að beinast að einni helgi heldur þarf að vera allan ársins hring," segir Hera Ósk. Ósk um samstarf ekki sinnt í Fréttum segir Georg Kr. Lámsson, þáverandi sýslumaður í Vestmanna- eyjum, að tölur um níu kynferðis- brot á þjóðhátíð 1994 standist ekki. I viðtalinu er vitnað í tölur frá Stígamótum um 20 kynferðisaf- brotamál, þar af 11 gömul. Aðeins eitt kom til kasta lögreglu að sögn Georgs og var það dregið til baka. „Á þjóðhátíðinni í fyrra fengu Stígamótakonur alla þá aðstöðu sem þær báðu um. Einnig óskaði lög- reglan eindregið eftir samstarfi en þær höfðu aldrei samband. Tölur sem þær hafa gefið út um fjölda kynferðisafbrotamála og nauðgana standast ekki. Um 90 manns voru við löggæslu í Dalnum auk þess sem hundruð ábyrgra borg- ara sækja þjóðhátíð. Er með ólík- indum ef allar þessar nauðganir hafa farið fram hjá fólki og að Stíga- mótakonur skuli ekki hafa gert lögreglu viðvart þó ekki hafi verið ætlunin að kæra öll þessi mál til lögreglunnar." sagði Georg. Eyjamenn brutu ekki trúnað Þetta sýnir að mikill hiti var í Eyjamönnum í garð Stígamóta sem þama höfðu komið á nokkrar þjóð- hátíðir þar sem þær mættu velvild og vilji til samstarfs var fyrir hendi. Sá trúnaður, sem þama var sannar- lega til staðar, var ekki brotinn af Eyjamönnum. Mikið vatn hefur mnnið til sjávar síðan 1994 og Stígamót margsannað sig. En það má ekki verða til þess að það sem aðrir gera á sama vettvangi sé dregið í efa. Framganga fjölmiðla vekur líka athygli, að enginn skuli hafa talað við Pál sem situr eftir með stórskaddaða æm án þess að hafa til þess unnið á nokkum hátt. Omar Garðarsson. Vandinn ekki meiri þar sem við erum Ummæli Páls Scheving, formanns þjóðhátíðar- nefndar, um Stígamót hafa vakið mikla athygli og umræðu í fjölmiðlum og Netheimum. Þar sagði hann eitthvað á þá leið að vandamálið stækkaði þar sem fulltrúar Stígamóta hefðu birst og að þau væru alltaf fleiri og meiri þegar Stígamót væru á staðnum. Anna Þóra Kristinsdóttir, ráðgjafi hjá Stíga- mótum, sagði: „Ég tel að vandinn sé ekki meiri þar sem við erum en það er auðveldara fyrir fólk að leita sér aðstoðar þegar það veit að aðstoð er til staðar og aðstoðin er sýnileg. Annars Ieitar fólk kannski eftir hjálp seinna eða ekki.“ Starfsmenn heilsugæslu eru með neyðarmóttöku allan sólarhringinn á þjóðhátíð. Hvað finnst ykkur um það? „Það er mjög gott,“ sagði Anna Þóra og þegar hún var spurð hvort fleiri sæktu til Stígamóta vegna kynferðisbrota eftir þjóðhátíð en aðra við- burði eða skemmtanir sagði hún erfitt að segja til um það. „Það er alltaf eitthvað um að fólk ieiti til okkar eftir útihátíðir. Á síðasta ári leituðu 14 einstaklingar til Stíga- móta vegna kynferðisofbeldis sem átti sér stað á útihátíð og í einhverjum tilfellum var fólk að leita til okkar einhverjum árum eftir að kynferðis- ofbeldið átti sér stað.“

x

Fréttir - Eyjafréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.