Fréttir - Eyjafréttir


Fréttir - Eyjafréttir - 05.05.2011, Blaðsíða 20

Fréttir - Eyjafréttir - 05.05.2011, Blaðsíða 20
ÍFRÉTTIR) Frétta- og auglýsingasími: 481-1300 / Fax 481-1293 SUmBRFERÐIR UMinsn UMSJCÖÍryJUM: innur Finnbogason eyjabud^simnet.is ÚTSKRIFTARNEMAR við Framhaldsskólann í Vestmannaeyjum tóku daginn snemma á föstudaginn þegar þau dimmiteruðu. Meðal fastra liða í þeirri athöfn er að vekja kennaralið skólans fyrr en ella og um Ieið nágrannana í kring. En flestir taka þessari uppákomu vel enda gleðin ríkjandi. S Páll Oskar semur þjóðhátíðarlagið 2011 Á opnum borgarafundi um þjóð- hátíð, í Höllinni, var farið yfir framtíðarsýn þjóðhátíðarnefndar vegna hátíðarinnar. Páll Scheving, formaður nefndarinnar, hélt tölu og lýsti áherslu nefndarinnar og stýri- hóps sem bærinn og þjóðhátíðar- nefnd koma að. Meðal þeirra nýjunga sem kynntar voru á fundinum var breytt forsala miða. Nú hefst forsalan 6. maí eða á morgun, föstudag. Eini forsölu- staðurinn á landinu er Skýlið við Friðarhöfn en auk þess geta kort- hafar N1 keypt miða í forsölu á heimasíðu félagsins. Forsölunni lýkur svo viku síðar eða 13. maí. Auk þess var dagskrá þjóðhátíðar- innar kynnt en meðal skemmtikrafta má nefna Stefán Hilmarsson, Bubba Morthens, Mannakom, Buff ásamt Röggu Gísla, Agli Ólafssyni og Andreu Gylfa, Bjartmar og Berg- risana, Dúndurfréttir ásamt Eiríki Haukssyni, Ara Eldjárn, Dans á rósum, Tríkot, Ingó og Veðurguðina, Fjallabræður, Hvanndalsbræður, Lúðrasveit Vestmannaeyja og fjöl- marga aðra. Þá verða sérstakir minningartónleikar Oddgeirs Kristj- ánssonar á föstudagskvöldinu og auðvitað fastir Iiðir eins og brennan, flugeldasýningin, blysin og brekku- söngurinn. Þá mun Páll Óskar Hjálmtýsson semja þjóðhátíðarlagið og koma fram á hátíðinni. 10 ára afmælisveisla Hallarinnar: Eyjakvöld á afmælinu Boðið veður upp á Eyjakvöld í Höllinni á föstudagskvöld eða sams konar kvöld og haldin hafa verið á Kaffi Kró í vetur. Obbosí leiðir sönginn og textum verður varpað á tjald þannig að allir geta tekið undir og sungið gömlu góðu Eyjalögin. Á laugardagskvöld verður eitt stærsta kvöld í sögu Hallarinnar en hún verður tíu ára þessa helgi. „Þetta verður sams konar Eyja- kvöld og hafa verið á Kaffi Kró í vetur. Við emm að fá fjölda fólks í tengslum við blakmótið og viljum bjóða þeim upp á ekta Eyjastemmn- ingu en þessi stemmning eins og ég upplifði hana á Kaffi Kró myndast ekki nema með þátttöku Eyja- manna,“ sagði Bjarni Ólafur þegar hann var spurður út Eyjakvöldið. „Við færum okkur yfir á föstu- dagskvöldið og það kostar 1500 krónur á „showið" og diskótek á eftir. Fólk getur líka komið til okkar í mat áður en dagskráin hefst en þá kostar allt saman 4.900 krónur. Með þessu erum við að halda svolítið upp tíu ára afmæli Hallarinnar sem er þessa helgi. Á laugardagskvöldinu er eitt stærsta kvöld Hallarinnar í mörg ár en þá verða á áttunda hundrað manns í mat á lokahófi blakmótsins. Við hvetjum Eyjamenn til að koma og skemmta sér í Höllinni á föstu- dagskvöldinu og þá geta gestir ofan af landi upplifað stemmninguna í gegnum okkur. Obbosí heldur uppi fjörinu og textum verður varpað upp á tjald þannig að allir geta sungið með,“ sagði Bjami Ólafur og vonast til að sjá sem flesta. Ný og endurbætt verslun - Kristleifur Guðmundsson nýr verslunarstjóri í Krónunni Krónan var opnuð í gær, mið- vikudag, eftir gagngerar endurbæt- ur en verslunin hefur verið lokuð frá því um páska. Iðnaðarmenn og starfsfólk hafa unnið við endur- bætur úti og inni og allt orðið klárt þegar verslunin var opnuð klukkan 11.00. Húsnæðið hefur verið málað í ljósum litum að utan og yfirbragðið allt mun léttara en áður og snyrtilegt. Þá hefur verslunin sjálf verið tekin öll í gegn að innan og stækkuð. Kristleifur Guðmundsson, nýr verslunarstjóri Krónunnar, sagði að í rauninni væri búið að endur- nýja allt innanhúss og hægt að tala um nýja verslun. Það leynir sér ekki því verslunin er öll rúmbetri og með breyttu skipulagi en í heildina hafa á milli 40 og 50 manns komið að verkinu. „Það er búið að stækka mjólkurkælinn um helming og skipta út öllum kælum og frystum. Þetta er bylting og við erum komin með búð sem við erum rosalega stolt af. Það er umtalsverð aukning á vöruúrvali og mikið lagt upp úr fersku og ódýru hráefni. Við erum að bjóða ferskvöru sem stenst allar kröfur og væntingar. Nú eru komnir raf- rænir hillumiðar og búðin er til- búin en hún verður auðvitað áfram í þróun. Nú er verið að endumýja alla starfsmannaaðstöðu og það er búið að endumýja öll tæki, kæla og frysta á vörulager,“ sagði Kristleif- ur, rétt fyrir opnun á miðvikudag. ! I----------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------1 j, VIKUTILBOÐ 4.-11. maí — Gevalía kaffi soo gr verð nú kr 598,- verð óáur kr 798,- Pfanner Appclsinu.Trönub.safi 1 Itr Toblerone gulur íoogr verð nú kr 298,- verd óður kr 398,- Knorr Lasagne verd nú kr 498," verð ódur kr 648,- Pepsi/Max/Appelsín dós 0,331 verá nú kr 79,- verá úður kr 118,- SS Griskar Grisahnakkasneiðar verð nú kr/kg 1678,- verð áður kr/kg 2098,- OPNUNARTÍMI: Mán. - Föst. kl. 7.30 - 19.00 Laugardaga kl.10.00 -19.00 Sunnudaga kl.11.00 -19.00

x

Fréttir - Eyjafréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.